blaðið - 16.05.2006, Side 17

blaðið - 16.05.2006, Side 17
mtw- leg blaða- mennska „Vegna utanferðar í síðustu viku las ég ekki blöðin sem skyldi en eftir að mér hafði verið bent á, að Þorsteinn Pálsson hefði skrifað góðan leiðara í Fréttablaðið föstudaginn 12. maí til að setja ofan í við Berlingske Tidende vegna skrifa blaðsins um Árna M. Mathiesen, fjármálaráðherra, fletti ég blaðinu. Leiðarinn var ágætur. Þegar ég hafði lesið hann sá ég til mín vísað i ritstjórnarhorni á skoð- anasíðu Fréttablaðsins og þar sagði einhver með netfangið bjorn@fretta- bladid.is: „Hitt vekur athygh að í færslu á netsíðu sinni á miðvikudag (10. maí) segist Björn vita að Blaðið hafi rætt við Gísla (Helgason vara- borgarfulltrúa frjálslyndra). Er það degi áður en viðtalið birtist. Streng- urinn milli Björns og Blaðsins virðist því stuttur." Þarna sá ég sem sagt, að fimmtu- daginn 11. maí hefði Blaðið birt viðtal við Gísla Helgason og spurt hann um þá tillögu hans að flytja Reykjavíkur- flugvöll á Álftanes, forsetann í Viðey og ibúa Álftaness í viðlegubúðir á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Ég hafði vakið máls á þessari tillögu Gísla hér á síðunni 5. maí, sama dag- inn og grein hans birtist i Fréttablað- inu, og síðan undrast ég 8. maí, að enginn fjölmiðill skuli hafa vakið máls á tillögu Gísla sem fréttaefni. Mér barst síðan ábending um, að Blaðið hefði sagt frá tillögu Gísla og sagði ég frá því hinn 10. maí. Þau orð túlkar blaðamaður Fréttablaðsins á þann furðulega hátt, að ég hafi vitað um óbirt viðtal Blaðsins við Gísla og dregur siðan af því ályktun um stuttan streng á milli mín og Blaðs- ins. Þessi barnalega blaðamennska dæmir sig sjálf. En hvað segir Gísli Helgason í viðtali við Blaðið? Hann staðfestir, að hann telji flugvöll eiga heima á Álftanesi - þrátt fyrir þessa skoðun sína segist hann sammála stefnu flokks síns í flugvallarmálinu, það er að flugvöllurinn verði í Vatns- mýrinni! Hann hafi skrifað grein sina í Fréttablaðið „meira í gríni en alvöru” og hún sé alls ekki „tákn um kofning innan F-listans.“ Með grein sinni „hafi hann viljað gagnrýna þá mikl(u) áherslu sem umræðan um flugvöllinn hafi fengið í aðdraganda kosninga." Greinin sé „háðsádeila á alla þessa umræðu. Mér finnst um- ræðan orðin svo yfirgengileg að hún er byrjuð að skyggja á mikilvægari málaflokka.“ Spyrja má, hvort viðtalið við Gísla sé eins og grein hans meira grín en al- vara, því að í hverju orði ræðst hann í raun að Ólafi F. Magnússyni, efsta manni F-listans, sem lítur á flugvöll- inn í Vatnsmýrinni sem sitt helsta haldreipi í kosningabaráttunni - um- ræður um flugvöllinn séu einmitt til þess fallnar að styrkja stöðu sína og F-listans.“ Af heimasíðu Björns Bjarna- sonar, www.bjorn.is. Einstakt tœkifœri 250 fm troðfull antikbúð ALLT á að seljast Antiksprengja Lokum í Hafnarfiröi 24. maí, eftir 8 daga ALLT á að seljast af öllum vörum ANTIKBUÐIN Bæjarhrauni 10B Hafnarfirði (bak við Hraunhamar), sími 588 9595 Höfum opnað nyja antikbuð á Laugavegi 118 (neðri hœð bókabúðar) "Ú 1 Verið velkomin Antikbúðin Hlemmi Laugavegi 118 Sími 552 8222 Opið laugardag og sunnudag KAUPUM OG SELJUM Draugasetrlð Sumaropnun: 13-21 alla daga draugasetrid@draugasetrid.is www.draugasetrid.is

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.