blaðið - 16.05.2006, Side 24
32 I MENNING
ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2006 blaðiö
Fortíð á íleygiíerð
BlaöiMngó
Hilma Gunnarsdóttir.„Fræðimennirnir sem sitja í háskólastöðunum eru allt of ákafir i að gerast viljugir þátttakendur í verkefnum sem
ríkisstjórn eða önnur stjórnmálaöfl standa fyrir og telja að skipti máli."
Ilok þessarar viku hefst þriðja
söguþingið sem haldið hefur
verið hér á landi.
ReykjavíkurAkademían, Sagn-
fræðistofnun, Sagnfræðingafélag
íslands og Sögufélag standa fyrir
þinginu sem hefst á fimmtudág í
Óskju, náttúrufræðihúsi Háskóla
íslands. Þinginu lýkur á sunnudags-
kvöld. Hilma Gunnarsdóttir er fram-
kvæmdastjóri þingsins og hún segir
að það sé hugur í sagnfræðingum
þessa dagana; mikil gróska og hörð
átök um hugmyndir og fræðilegar
nálganir. „Þarna munu íslenskir
fræðimenn kynna nýjustu rann-
sóknir sínar. Meðal annars verður
fjallað um ljósmyndafræði, nýja
strauma í hugvísindum hér á landi
og erlendis, merkingu samtíma-
menningar fyrir söguna og einnig
ákveðið uppgjör við hefðbundna
nálgun innan sagnfræðinnar," segir
hún. „Að auki eru klassísk efni
innan sagnfræðinnar tekin fyrir
eins oglandbúnaðarsaga, kirkjusaga
og miðaldarfræði, en margt af því er
skoðað í ljósi nýrrar hugmyndafræði
í hugvísindum. Ég held að ég geti
fullyrt að sagnfræðin og jafnvel for-
tíðin sé á fleygiferð inn í framtíðina;
fræðaheimurinn er í mikilli gerjun
og mótun nýrra hugmynda má víða
sjá merki í viðfangsefnum sagnfræð-
innar. Það er beinlínis gaman að
vera sagnfræðingur í dag.“
Málstofur fyrir almenning
Hilma segir að Landsbanki Islands,
sem er helsti styrktaraðili þingsins,
hafi farið mjög áhugaverða leið í
stuðningi sínum. Þeir ákváðu að
setja upp málstofur þar sem tekist
væri á um grundavallarhugmyndir
um fortíðina og bjóða almenningi
að koma og hlýða á mál fremstu
fræðimanna þjóðarinnnar. Á sunnu-
daginn eftir hádegi verður því boðið
upp á spennandi dagskrá þar sem
Þórunn Valdimarsdóttir fjallar um
íslenska þjóðsönginn og það hvort
leggja eigi hann niður eða ekki,
Guðmundur Hálfdánarson fjallar
um þjóðernið og stöðu íslands í
því sambandi, Guðni Th. Jóhannes-
son, formaður Sagnfræðingafélags
99.......................
Mjög margir ungir
sagnfræðingar eru
orðnir þreyttir á
þessu geðleysi fræða-
heimsins í garð hinnar
stofnanavæddu
sagnfræði. Við viljum
uppþot, eiginlega bara
upplausn - stokka
spilin upp á nýtt
íslands, fjallar um njósnir og síma-
hleranir á íslandi í kalda stríðinu
,en það má ekki segja meira um það
efni að svo stöddu," segir Hilma.
Loks verður rifist um Gamla sátt-
mála. Þarna gefst almenningi, með
öðrum orðum, tækifæri til að taka
þátt í sannkallaðri söguveislu því
þessi dagskrárliður er öllum opinn
á meðan húsrúm leyfir.
Hilma ítrekar að mikil gróska sé
í sagnfræðirannsóknum hér á landi.
.Alltaf er á svona þingi að finna um-
ræðu um klassískar rannsóknir á
miðaldasögu," segir Hilma, „en
það er líka heilmikið nýtt að gerast
sem hefur breytt skilningi fólks á
þessum fræðum. Áhuginn á mið-
aldasögu virðist alltaf vera að auk-
ast og þar eru ekki síst útlendingar
áhugasamir um þennan hluta menn-
ingararfs íslensku þjóðarinnar."
Frá endurskoðun til upplausnar
Hilma Gunnarsdóttir er fjölhæf
kona því hún var á dögunum að gefa
út myndarlega bók, ásamt meðrit-
sjórum sínum þeim Jóni Þór Péturs-
syni og Sigurði Gylfa Magnússyni,
sem nefnist Frá endurskoðun til upp-
lausnar. Bókin, sem er 444 blaðsíður
að stærð, er gefin út af Miðstöð ein-
sögurannsókna og ReykjavíkurAka-
demíunni og er hugsuð sem innlegg
í íslenska söguþingið. „Þar er verið
að kynna nýjar stefnur og strauma
í íslenskum hugvísindum á nokkuð
róttækan hátt og segja má að hóp-
urinn hafi uppi markvisst andóf
gegn ríkjandi hugmyndum innan
fræðaheimsins um hvernig eigi að
fjalla um fortíðina. Málstofan sem
tengist bókinni verður með óvenju-
legu sniði í þeim skilningi að það
verða tveir málshefjendur, þeir
Halldór Bjarnason og Már Jónsson,
sem munu ræða þær hugmyndir
sem eru reifaðar í bókinni og síðan
sitja höfundarnir fyrir svörum í
pallborði. Það er trú okkar að með
þessu móti fáum við tækifæri til að
taka slaginn á kraftmikinn hátt við
fræðasamfélagið, eða í það minnsta
þann hluta þess sem lætur sér þessi
mál varða.“ Hilma segir að bókin
hafi verið í smíðum frá lok árs 2003
og hópurinn sem birtir efni sitt í
henni sé mjög ákafur í að glíma
við hugvísindi á nýjum forsendum.
„Ég er ákaflega stolt af þessari bók,
finnst hún bæði vera falleg, kraft-
mikil og áhugaverð. Sjálf á ég þarna
langa ritgerð um hina svonefndu
„íslensku söguendurskoðun“ en það
er hreyfing sem kom fram á sjónar-
sviðið upp úr 1980 og hratt af stað
miklum breytingum um söguna og
fortíðina. Nú eru þessar sömu hug-
myndir undir smásjánni og ekki
eru allir ánægðir með hvernig þeim
hefur verið fylgt eftir. í bókinni eru
líka birt viðtöl við þekkta sagnfræð-
inga sem ræða meðal annars stöðu
sagnfræðinnar í samtímamenning-
unni. Sagan er nefnilega stundarfyr-
irbrigði, hún er í hausnum á okkur
sem skrifum hana, við finnum
okkur sjónarhorn og vinnum út frá
því trúverðugar röksemdarfærslur.
Sagan er ekki bara þarna úti í einsk-
ismanns landi sem við köllum fortíð,
hún er inni í höfðinu á okkur öllum.
Það á að gangast við þeirri staðreynd
og vinna út úr þeirri stöðu á frjóan
og skapandi hátt.“ Slíkt bíður upp
á gríðarlega spennandi tækifæri að
áliti Hilmu.
Að segja stjórnmála-
mönnum til syndanna
íslenskir stjórnmálamenn og for-
seti íslands hafa verið sakaðir um
grunnan skilning á sögunni, allt að
því klisjukenndan. Þegar Hilma er
spurð um álit sitt á þeirri gagnrýni
segir hún: „Víða erlendis er gap á
milli þeirrar sögu sem stjórnmála-
menn halda á lofti í opinberri um-
ræðu og fræðimanna sem vinna við
rannsóknir. Þeir síðarnefndu gegna
þýðingarmiklu hlutverki við að
gagnrýna málflutning stjórnmála-
manna sem oft er byggður á blöndu
af misskilningi og hagsmunapoti.
Hér á landi er þessu örlítið öðruvísi
farið; „sögustofnunin“, fræðimenn-
irnir sem sitja í háskólastöðunum,
eru allt of ákafir í að gerast viljugir
þátttakendur í verkefnum sem rík-
isstjórn eða önnur stjórnmálaöfl
standa fyrir og telja að skipti máli.
Þessir opinberu aðilar standa fyrir
ákveðinni söguskoðun og hafa ótví-
rætt ákveðinna hagsmuna að gæta
þegar sagan er skrifuð. Sem dæmi
um þetta má nefna forsætisráðherra-
bókina sem gefin var út fyrir ör-
fáum árum fyrir tilhlutan forsætis-
ráðuneytis Davíðs Oddssonar. Allir
skildu hvern var verið að upphefja í
það skipti auk þess var bókin bara
gamaldags persónusaga. Önnur
dæmi mætti nefna eins og Heima-
stjórnarafmælið, Kristnisöguna og
fleira í þeim dúr. Sagnfræðingar
hafa margir verið alltof ákafir í að
hlaupa eftir slíkum verkefnum í stað
þess að gagnrýna tilurð þeirra og
áherslur sem standast engan veginn
fræðilegar forsendur. Staðreyndin er
sú að sjálfstætt starfandi fræðimenn
þurfa að lifa og þess vegna taka þeir
við svona verkefnum og við því er
ekkert að gera. Fræðaheimurinn er
jú mjög hart leikinn fjárhagslega
vegna takmarkaðs stuðnings hins op-
inbera við skapandi rannsóknir. En
aðalatriðið er þó að við sem stöndum
að bókinni Frá endurskoðun til upp-
lausnar erum að gagnrýna alla pró-
fessorana í sagnfræði sem hlaupa
eftir pilsfaldi ríkisstjórnarinnar í
hvert skipti sem hún gefur þeim
undir fótinn. Mjög margir ungir
sagnfræðingar eru orðnir þreyttir á
þessu geðleysi fræðaheimsins í garð
hinnar stofnanavæddu sagnfræði.
Við viljum uppþot, eiginlega bara
upplausn - stokka spilin upp á nýtt
og hefjast handa við að veita valda-
stofnunum í samfélaginu mikið að-
hald. Þetta er andinn sem svífur yfir
vötnum þessa dagana og þess vegna
er gaman að vera sagnfræðingur.
Ég á sannarlega von á því að þessi
uppgjörsandi muni liggja yfir sögu-
þinginu og koma fram í umfjöllun
fjölmargrafræðimannaumviðfangs-
efni sín. Ég veit líka að aðalgestur
söguþingsins, Liz Stanley, fræði-
maður frá Skotlandi, hugsar mjög á
líkum nótum enda bera rannsóknir
hennar örugglega ferska vinda
inn á þingið. Hún mun halda mál-
stofur og aðalfyrirlestur þingsins
og það verður gríðarlega áhugavert
að fá tækifæri til að hlýða á hennar
mál. Ég vil því nota tækifærið til að
hvetja allt áhugfólk um sögu, fortíð
og menningu að skrá sig á þingið.
Það á erindi við allt hugsandi fólk,“
sagði Hilma Gunnarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri söguþingsins.
kolbrun@bladid. net
SUDOKU talnaþrautir
Su Doku þrautln snýst um
að raða tölunum frá 1-9
lárétt og lóðrétt i reitina,
þannig að hver tala komi
ekki nema einu sinni fyrir
í hverri línu, hvort sem er
lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu
má aukin heldur aöeins
nota einu sinni innan hvers
níu reita fylkis. Unnt er aö
leysa þrautina út frá þeim
tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins
8 3 7
1 5 8 3
5 6 9 4
5 7 6
9 1 4 3 2
6 3 9 7
3 9 8
8 2 9
4 6
SUDDKU5HOP«IS .©6s.ioo.is..
Lausn siðustu gátu
9 2 8 6 7 3 1 4 5
7 6 4 5 8 1 9 3 2
3 1 5 2 9 4 6 7 8
8 5 6 3 1 7 2 9 4
2 7 9 8 4 6 5 1 3
1 4 3 9 2 5 8 6 7
4 8 1 7 5 9 3 2 6
5 3 7 1 6 2 4 8 9
6 9 2 4 3 8 7 5 1