blaðið - 29.05.2006, Page 4
4IFRÉTTIR
MÁNUDAGUR 29. MAÍ 2006 blaöiö
'20%
Afsláttur af málningarvörum
^ÍSLANDS MÁLNING
Sérhönnuö málnlng fyrir Islenskar aðstæður.
_________Sætúni 4 / Sími 517 1500_
Ljóðaveisla
í Vin í dag
I dag kl. 13.00 heldur ljóðskáldið
Guttesen upp á 32 ára afmæli sitt í
Vin, að Hverfisgötu 47.
Boðið verður upp á kaffi og
kræsingar, og stendur skákfélag
Vinjar fyrir léttu skákmóti í tilefni
dagsins.
Þá mun skáldið lesa úr verkum
sínum, en Guttesen á að baki
sex ljóðabækur og dvaldi hin
síðasta, Litbrigðamygla, lengi á
metsölulistum um síðustu jól.
Kvartað yfir
óléttri veður-
fréttakonu
Svissneskir sjónvarpsáhorfendur
hafa kvartað sáran undanfarna
daga yfir því að kasólétt kona flytji
verðurfréttir í sjónvarpinu. Sjón-
varpsstöðinni Tele-Zueri hafa bor-
ist fjölmörg kvörtunarbréf þar sem
þess er krafist að Jeannette Eggen-
schwiler láti af störfum þar til hún
hefur fætt barnið.
Eggenschwiler segist hins vegar
njóta þess að segja veðurfréttirnar
þrátt fyrir óléttuna og kveðst ekki
vera tilbúin að fara í barneignar-
frí þrátt fyrir að vera komin átta
mánuði á leið. „Það virðist sem
einhverjum finnist óþægilegt að
horfa á ólétta konu í sjónvarpi og
einhverjir hafa gengið svo langt að
kalla mig afbrigðilega," sagði Eggen-
schwiler. „Að vera ólétt er eitt af því
náttúrulegasta sem til er og eg ætla
ekki að fara í felur með það. Ég fer af
skjánum þegar ég er tilbúin til þess
og ekki fyrr.“
VÍKURVAGNAKERRURNAR
þessar sterku
Allar gerðir af kerrum
Allir hlutir til kerrusmíða
Víkurvagnar ehf • Dvergshöföa 27
^jSfmi 577 1090 • www.vikurvagnar.is
Lettar vilja að NATO taki
að sér loftvarnir íslands
Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingar, segir að málstaður ís
lands fái góðan hljómgrunn á vorþingi þingmannasambands NATO.
Lettar hafa lagt til í bréfi til Öss-
urar Skarphéðinssonar, formanns
íslensku sendinefndarinnar á vor-
þingi þingmannasambands Atlants-
hafsbandalagsins (NATO), að banda-
lagið taki að sér loftvarnir landsins.
Þingið stendur nú yfir í París og á
því sitja fyrir fslands hönd Össur
og Magnús Stefánsson, þingmaður
Framsóknarflokksins. Össur segir,
að málstaður íslendinga hafi fengið
góðan hljómgrunn á þinginu og að
í dag ætli íslenska sendinefndin að
spyrja framkvæmdastjóra NATO
beint út um afstöðu hans til varnar-
mála hér á landi.
Kjörinn valkostur
„Lettar lögðu til í bréfi til mín, for-
manns íslandsdeildarinnar, að
NATO tæki að sér að sjá um eftirlit
og varnir i lofthelgi þeirra NATO-
ríkja sem ekki hefðu loftvarnir,"
segir Össur í samtali við Blaðið. „Þeir
nefndu sérstaklega ísland, Eystra-
saltslöndin og Slóveníu. Þetta er
kjörinn valkostur fyrir íslendinga,“
segir hann. „Þá myndi NATO sjá
um loftvarnirnar og við yrðum ekki
upp á Bandaríkjamenn komnir sem
hafa sýnt að á þá sé ekki treystandi.“
Össur segir þetta vera mikilvæga
hugmynd sem fangað hefði athygli
manna í þinginu í París. Hann segir
deilu íslands og Bandaríkjanna hafa
verið rædda sérstaklega á þinginu.
„Við höfðum áður sent öllum þeim
þingmönnum sem aðild eiga að
Össur Skarphéðinssonar, formaður is-
lensku sendinefndarinnar á vorþingi þing-
mannasambands Atlantshafsbandalags-
ins, sem fram fer í París, segir að áhyggjur
(slands af loftvörnum landsins hafi fengið
góðar undirtektir á þinginu.
fundinum bréf þar sem staðreyndir
málsins voru skýrðar og við ósk-
uðum liðsinnis þeirra."
Tekið undir máistað íslands
Össur segir að snarpar umræður
hafi skapast um málið og héldu
þeir Magnús báðir ræður þar sem
málstaður Islands var skýrður. „Það
var athyglisvert að bandarísku þing-
mennirnir lýstu fullum skilningi á
okkar afstöðu í málinu, en vísuðu
á harða afstöðu varnarmálaráðu-
neytisins og Donalds Rumsfelds,
varnarmálaráðherra.“ Að sögn Öss-
urar tóku allar Eystrasaltsþjóðirnar
undir málstað Islendinga og sömu-
leiðis Bretar sem Össur segir að hafi
fullan skilning á því að ekki sé hægt
að skilja ísland eftir með þeim hætti
sem í virðist stefna.
Mikilvægt að tryggja ör-
yggi á hafsvæðinu
„Það var einnig athyglisvert að heyra
í talsmanni norsku sendinefndar-
innar sem tók afstöðu með okkur í
málinu. Hann benti jafnframt á að
á næstu árum væri fyrirhugað að
vinna olíu og gas á mjög erfiðum haf-
svæðum í norðri sem væri liður í að
draga úr þvi að Vesturlönd væru háð
olíu frá löndum þar sem erfiðleikar
eru uppi. Hann sagði, að forsenda
þess að þessi olíuvinnsla sé mögu-
leg, væri að tryggja öryggi á þessu
landsvæði. Þess vegna sagði hann
að Norðmenn leggðu á það mikla
áherslu að virkar varnir við ísland
yrðu tryggðar svo hægt verði að hafa
eftirlit úr lofti.“ Össur segir því, að
á vorþinginu hafi málstaður Islands
fengið mjög góðan hljómgrunn, „og
ekki síður þessi hugmynd Letta
um að NATO annist loftvarnir Is-
lendinga og annara sem ekki hafa
flugvarnir."
I dag mun Jaap de Hoop Scheffer,
framkvæmdastjóri NATO, halda
ræðu á þinginu og þá segir Össur
að þeir Magnús ætli sér að ræða við
hann og spyrja beint út um afstöðu
hans til þessara hugmynda.
Minnkandi
hollusta við
stjórnmála-
flokka
Kjörsókn var
talsvert minni
í nýafstöðnum
kosningum en
undanfarin
ár. Tölur hafa
enn ekki verið
teknar saman fyrir landið allt
en ef litið er til einstakra sveit-
arfélaga má sjá vísbendingu um
samdrátt í kosningaþátttöku. I
Reykjavík, fjölmennasta sveit-
arfélaginu, kusu 77,1% atkvæð-
isbærra manna. I sveitarstjórn-
arkosningunum 2002 nam
kosningaþátttakan í Reykjavík
83,9%, en 83,2% á landinu öllu.
Kosningaþátttaka hefur ekki
farið undir 80% í sveitarstjórn-
arkosningunum á Islandi síðan
árið 1950.
Gunnar Helgi Kristinsson,
prófessor í stjórnmálafræði, seg-
ist hafa spáð þvf að kosningaþátt-
takan myndi fara minnkandi
hér á landi likt og í nágranna-
löndunum. „Þetta hefur verið
þróunin á Vesturlöndum og við
höfum verið að bíða eftir þessu
hér á landi," segir Gunnar Helgi.
Hann segir minnkandi hollustu
almennings við stjórnmála-
flokka vera helstu skýringuna á
minnkandi kosningaþátttöku á
Vesturlöndum.
„Þegar litið er til þessara kosn-
inga má nefna að tilfinninga-
hiti f baráttunni virðist hafa
verið minni samanborið við
undanfarnar kosningar. Átökin
hafa oft orðið ansi hörð. I þetta
skiptið sáum við hins vegar fram
á svolítið öðruvísi ástand,“ segir
Gunnar Helgi. Hann segir alla
flokkana hafa verið miðsæknari
en áður. „Við slíkar aðstæður
er Hklegra að margir kjósendur
álíti það breyta litlu hver vinni
kosningarnar. Þá er viðbúið að
kosningaþátttaka minnki,“ segir
Gunnar Helgi.
FRJÁLST
blaöió=
l'*í
Blaöió/SteinarHugi
Akureyrin í Hafnarfjarðarhöfn
Goða grillkjötið er
heitast á grillið í sumar!
Akureyrin EA liggur nú við suð-
urgarð Hafnafjarðarhafnar en
varðskipið Óðinn fylgdi skipinu til
hafnar í gærmorgun. Tveir menn
létust í eldsvoða sem kom upp í tog-
aranum á laugardaginn þegar skipið
var statt 75 sjómílur vestur af Látrar-
bjargi. Ekki er enn vitað um upptök
eldsins. Átján manna áhöfn var um
borð er eldurinn kom upp og var
þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð
á staðinn. Reykkafarar frá Slökkvi-
liði höfuðborgarsvæðisins fóru um
borð og voru sex menn úr áhöfninni
fluttir með þyrlunni á sjúkrahús í
Reykjavík.
Ekki er unnt að greina frá nöfnum
hinna látnu að svo stöddu.