blaðið - 29.05.2006, Page 18
26 I MATUR
MÁNUDAGUR 29. MAÍ 2006 blaöið
Borða úr ruslafötum til
að mótmœla kapítalisma
Nýr jaðarhópur sem nefnist „freegans<( breiðir úr sér á Vesturlöndum.
Retilers/Luke MacCregor
Hér má sjá Ashwyn Falkingham, svonefndan „freegan", mótmæla, gramsa í rusli eftir
mat á bak við stórmarkað I London sl þriðjudag.
Þau gramsa í gegnum rusl í leit
að æti til þess að mótmæla m.a.
umhverfisspillingu, kapítalisma
og kjötáti, neyslumenningu og
sóun, en ekki sökum fátæktar.
Þetta fólk líkist ekki útigangs-
fólki, það er oft vel menntað og í
góðum störfum en þau eru sannar-
lega róttæk hvað varðar pólitíska
afstöðu sína og þetta gera þau til
að sýna hana í verki. Freegans eru
því ekki bara í orði heldur einnig
á borði - eða í rusli.
Flestir myndu ætla að svona lifn-
aðarhættir væru eitthvað sem fólk
gerir í stökustu neyð, en svo er alls
ekki. „Freegan“ lífsstíllinn á sífellt
meiri vinsældum að fagna á Vestur-
löndum, sér í lagi í Norður-Ameríku
og einstaklingum sem aðhyllast lífs-
stílinn fer stöðugt fjölgandi.
Orðið „freegan“ er tiltölulega nýtt
í enskri tungu en það er samsett
úr orðunum „free“ og „vegan“, en
,vegan“ er notað um einstakling sem
neitir hvorki kjöts, fisks, né neinna
annarRa afurða úr dýraríkinu, þar á
meðal mjólkurvara og eggja.
Eitt af slagorðum „freegan“ hreyf-
ingarinnar er „We’ll eat your scrap,
but we won’t buy your crap,“ sem
mætti útleggjast „Við borðum af-
ganginn en líðum ekki yfirganginn“.
Sömu reglur gilda fyrir
ruslið og ísskápinn
Madeilene Nelson er ein af þessum
róttæklingum en í viðtali við NBC
sjónvarpsstöðina sagði hún: „Ég
skil að fólki finnist þetta kannski
ógeðfellt en það gilda samt sem
áður sömu reglur fyrir ruslat-
unnur stórmarkaða og ísskápinn
heima í eldhúsi. Maður opnar
ísskápinn og kannar hvað er
til. Skoðar það sem er í honum.
Finnur kannski tómat og ef tóm-
aturinn lyktar eðlilega, lítur vel
út og það virðist ekkert vera að
honum þá borðar maður hann.
Það sama má segja um matinn
sem verður aflögu í verslunum
og á veitingastöðum. Þetta er oft
fínasti matur. Við mannfólkið
berum ágætis skynbragð á hvað
er ætt og hvað ekki, líkt og önnur
dýr og það er ekkert að því að
treysta á eigin skynfæri.“
Skemmtilegt er að benda á
að að hluti útlendinganna sem
omu hingað sl sumar til að mót-
mæla byggingu stóriðjustefnu ís-
lands, eru einmitt „freegans" sem
nærðust meira eða minna með
því að taka dýfur í gámana á bak
við Bónus.
99.................
Við mannfólkið berum
ágætis skynbragð á
hvað er ætt og hvað
ekki líkt og önnur
dýr og það er ekkert
að því að treysta á
eigin skynfæri.
Amerískar pönnukökur
Ómótstœðilegur morgunverður á sólríkum sunnudegi.
Amerískar pönnukökur eru svo sannarlega freistandi morgunverður og þær eiga aukn
um vinsældum að fagna á fslandi í dag.
Kanadískar eða amerískar
pönnukökur eru ólikar öðrum
pönnukökum þar sem lyftiduft
og aðrir skammtar af eggjum,
hveiti og mjólk eru notaðir til
þess að búa til þykkari pönnsur.
Deiginu er vanalega hellt eða
ausið á heita pönnu og þá verður það
um einn sentimeter að þykkt. Lyfti-
duftið gerir það að verkum að litlar
loftbólur myndast á ósteiktu hlið
pönnukökunnar og þá er tímabært
að snúa henni við.
Amerískar pönnukökur eru léttar
i sér og oft eru þær framreiddar sem
morgunmatur þar vestra. Þá þykir
mönnum gott að hella yfir þær hlyn-
sírópi og smjöri.
Ef leiðin liggur til vesturheims þá
er gott að hafa í huga að pönnukökur
ganga þar undir ýmsum nöfnum,
t.d. „hotcakes“, „griddlecakes", eða
Jlapjacks".
Dæmigerð skammtastærð á veit-
ingastað eru þrjár til fjórar pönnu-
kökur sem eru um 14 sentimetra
þykkar. Það er reyndar einnig hægt
að panta minni skammta, en þá er
beðið um „short stack“.
Á amerískum „diner“ eru vana-
lega bornar fram ein eða tvær pönnu-
kökur sem eru þá 25 sentimetra
breiðar. Svo má líka biðja um „silver
dollar" pönnukökur, en þá eru þær
um sjö sentimetra breiðar og koma
fimm eða tíu á disk.
Uppskrift að amerískum
pönnukökum
• 200 gr hveiti
• 3 tsk lyftiduft
• hálf tsk salt
• sogrsykur
• íegg
• 70 gr brœtt smjör
• 2,5 dl mjólk
• vanilludropar
Þurrefnum blandað saman. Eggjum,
mjólk og vanilludropum hrært
saman. Þurrefnunum blandað við
hræruna. Pönnukökupanna hituð á
vægum hita. Smá smjör sett á pönn-
una og pönnukökurnar steikar.
Borið fram með hlynsírópi, sultu,
smjöri eða berjum.
margret@bladid.net
V ,..
æ* % 1?'
Endalaus orka
Um þessar mundir hefur safa-
pressuæði gripið landann. Fólk
flykkist í raftækjaverslanir og
verður sér úti um öflug tæki sem
ætluð eru til þess að kreista safa
úr ávöxtum og grænmeti. Á síð-
asta ári kom út hjá forlaginu Sölku
bókin Endalaus orka! Yfir 200
bráðhollir ávaxta- og grænmetis-
safar eftir Judith Millidge í þýð-
ingu Nönnu Rögnvaldardóttur.
Safaþyrstir lesendur tóku bókinni
opnum örmum og seldist hún fljót-
lega upp. Nú er önnur prentun
fáanleg í verslunum. í bókinni er
að finna alls kyns samsetningar á
hollum og heilnæmum drykkjum
fyrir alla fjölskylduna. Þar er
m.a. að finna drykki sem gagnast
gegn kvefi, flökurleika og ýmsum
lífseigum bakteríum sem herja
á okkur mannfólkið. Hér gefur
að lita sýnishorn að nokkrum
uppskriftum:
Sítrus- og berjasprengja
Verulega ljúffeng og hressandi
safablanda. Eki bíða með að prófa
hana þar til kvefið er komið.
Hráefni:
1 sítróna
2 appelsínur
125 ghindber
Flysjaðu appelsínurnar og sítrón-
una og skiptu þeim í lauf. Skolaðu
hindberin og pressaðu safann úr
þeim. Pressaðusiðan safann úr app-
elsínunum og sítrónunni og helltu
öllu í glas. Skreyttu e.t.v. með app-
elsínubitum og hindberjum sem
þrædd eru á kokkteilpinna.
Apríkósu- og mandarínutríó
Ljúffeng blanda af betakaróteni og
andoxunarefnum sem ráðast til at-
lögu við vetrarkvilla.
Hráefni:
4 apríkósur
ípera
2 mandarínur
Skerðu apríkósurnar i sundur og
fjarlægðu steinana. Taktu stilk-
inn af perunni og afhýddu mand-
arínurnar. Pressaðu safann úr
apríkósunum, mandarínunum og
perunni og blandaðu öllu saman í
glas.
Engifer-eplasafi
Lífgaðu upp á nýpressaðan epla-
safa með dálitlu engiferbragði.
Hráefni:
2 epli
100 ml engiferöl
sítrónusneið
Skerðu eplin í bita og settu þau í
safapressuna. Blandaðu engiferöli
saman við eplasafann í háu glasi
og skreyttu drykkinn e.t.v. með
kokkteilsólhlíf og sítrónusneið.
•«gr- 1 • -
Krakkakokkteill
Þessi ljúffengi safi er fallegur á að
líta og það gæti verið gaman að
bera hann fram þegar á að halda
upp á eitthvað eða þegar fullorðna
fólkið skálar i kampavíni.
Hráefni:
150 g vínber
hálfsítróna
2 appelsínur
Sódavatn
nokkrir klakamolar
Flysjaðu appelsínurnar og skiptu
þeim í geira svo að þær komist
í safapressuna. Taktu e.t.v. frá
eina eða tvær sítrónusneiðar til
að skreyta með. Flysjaðu svo það
sem eftir er af sítrónunni. Skolaðu
vínberin, taktu þau af stilkunum
og pressaðu safann úr þeim. Press-
aðu síðan safann úr appelsínunum
og sítrónunni. Blandaðu safanum
saman, skiptu honum í tvö glös,
bættu við klaka og fylltu glösin
svo af sódavatni.