blaðið - 29.05.2006, Síða 20
28 I SAMSKIPTI
MÁNUDAGUR 29. MAÍ 2006 blaðið
SAMSKIPTI
KYNJANNA
mm
Framhjáhald
Á maður að segjafrá eða
þegja?
Kunningjakona mín er í vanda.
Hún veit til þess að maður vin-
konu hennar hafi verið að halda
framhjá og hún er að reyna að
gera það upp við sig hvort hún
eigi að segja vinkonunni frá því
eða ekki.
-Hvað er réttast íþessu máli?
Er maður meðsekur framhjá-
haldaranum að halda svo mikil-
vægum upplýsingum frá þeirri
sem er svikin? Það er stóra
spurningin.
Sjálfri finnst mér að hún
ætti kannski helst að tala við
sökudólginn til að létta á eigin
andlegu byrði. Gefa honum
aðvörun. Taka hann afsíðis ög
segja „Heyrðu félagi, ég veit
hvað þú varst að gera og nú
spyr ég hvort það sé ekki tími
til kominn að þú ákveðir þig
hvoru megin við girðinguna þú
ætlar að vera“? (þetta er nefnin-
lega ekki í fyrsta sinn sem hann
heldur framhjá). í framhaldinu
getur hann kannski ákveðið
hvort hann segir sinni spúsu
frá svikunum, en hann veit þó
að hann kemst ekki svo auðveld-
lega upp með þetta. Það komast
jú svo örfáir auðveldlega upp
með svona. Ekki einu sinni
Bandaríkjaforseta tókst það
og hann á að heita valdamesti
maður í heimi.
Hvað með vinskapinn?
En hvað ef spúsan fréttir svo
að vinkona hennar hafi vitað
af þessu án þess að segja
henni neitt? Verður hún þá
ekki brjáluð? Slítur hún vin-
skapnum? Það er aftur spurn-
ing. Málið er að vitnið er í raun
í miklum vanda. Hvort er hún
betri við vinkonu sína með því
að hlífa henni við sársaukanum
eða demba honum yfir hana?
Þó að maður sjái slys eiga sér
stað, þá gerir það mann ekki
að lélegum ökumanni. Hún er
í raun bara vitni. Og vitni segja
yfirleitt ekki frá neinu fyrr en
þau eru kölluð til. Ef vitnið hins-
vegar neitar að tala þegar það er
kallað til yfirheyrslu, þá fyrst
verður það sekt um eitthvað.
Framhjáhald er ljótur leikur
sem yfirleitt kemst upp á end-
anum. Þá er um að gera að sak-
ast aldrei við uppljóstrarann,
hver sem hann nú er, heldur
gera málin frekar upp við svik-
arann. Taka ákvörðun um
hvort reyna eigi að byggja upp
traustið aftur eða sleppa því.
Og hvað með trúnaðartraust
vinkonunnar sem þagði? Hún
var í raun að reyna að gera sitt
besta, sama hvað hún gerði. Það
er ekkert alfarið rétt eða rangt
í þessum málum. Það eina sem
er rangt er trúnaðarbresturinn
sem framhjáhaldarinn gerist
sekur um.
ókeypis til
80.000
heimila og fyrirtækja
alla virka daga
blaöió
Hversu lengi varir ástarsorgin?
I ástarsorg er best að halda dag-
legum venjum sínum og að hugsa
ekki of mikið. Þrátt fyrir góðan
ásetning er oft erfitt að halda sig
við þessar góðu reglur og minning-
arnar hellast yfir þann sem er í ást-
arsorg án nokkurs fyrirfara. Þannig
getur tilfinningastraumurinn borið
viðkomandi ofurliði hvenær sem
er og það er fátt annað sem kemst
að í huga hins ástsjúka en; hvenær
kemst ég yfir þetta?
í flestum tilfellum er það bara tím-
inn sem læknar öll sár. Þá er þó gott
að vita hversu miklum tíma maður
arf að eyða í þetta erfiða tímabil.
starsorgarmælirinn er tilraun til
að gefa einhver viðmið um hversu
lengi ástarsorgin heltekur hjartað.
Ástarsorgarmælirinn
Stutt sambönd
(Þrír mánuðir eða minna)
A. Teldu vikurnar sem þú þekktir
ástmögurinn, áður en samband
ykkar varð rómantískt og deildu
svo í þá tölu með tveimur.
B. Teldu þær vikur sem sambandið
varði.
C. Leggðu saman A og B-lið.
D. Teldu hversu mörgum dögum í
viku þú eyddir að meðaltali með
ástinni einu og deildu í þá tölu
með tveimur
E. Margfaldaðu útkomuna úr C-lið
með útkomunni úr D-lið. Svarið
við þessu segir þér til um hversu
margar vikur þú verður að ná þér.
Meðallangt samband
(Eitt ár eða minna)
A. Teldu þá mánuði sem þú varst í
þessu sambandi.
B. Teldu hversu mörgum dögum í
viku þú eyddir að meðaltali með
ástinni einu og deildu í þá tölu
með tveimur
C. Margfaldaðu útkomuna úr A-lið
með útkomunni úr B-lið. Svarið
við þessu segir þér til um hversu
marga mánuði þú verður að ná
þér.
Lengra samband
(Eitt ár eða meira)
A.Áætlaðu hversu hamingjusamur/
söm þú varst frá degi til dags á
skalanum 1-3.
B.Áætlaðu hversu mikið líkamlegt
aðdráttarafl maki þinn hafði á
skalanum 1-3.
C. Leggðu saman útkomurnar úr A
og B-lið og deildu í þá tölu með 2.
Það gefur þér tölu sem táknar ár.
D. Dragðu eitt ár frá heildarútkom-
unni og þá veistu hversu lengi þú
verður að ná þér.
<%%\ TVÍBURAR
21.MAÍ-21.JÚNÍ
HVAÐ SEGIR FREYJA UM KYNIN?
Fólk í tvíburamerkinu er fjölhæft
og hefur tvær ólíkar hliðar. Eitt af
einkennum þess er að það vill helst
sinna mörgum störfum samtímis.
Að hafa nóg fyrir stafni er því
lífsnauðsynlegt. Tvíburinn elskar
nýjungar. Kyrrstaða og vinna á
sama staðnum á ekki við hann og
því er afar lítil hætta á því að þetta
fólk festist í vananum. Stutt og hnit-
miðuð verkefni henta því vel. Starf
með mörgum smáatriðum á yfirleitt
ekki við tvíburann.
Þetta fólk er hrifnæmt og er ein-
beitni lykillinn að velgengni tvíbur-
ans á meðan áhugi er fyrir hendi.
Tvíburinn hefur ríka þörf fyrir að
vinna að félagsmálum og hefur
gaman af því að vera innan um fólk.
Hann er félagslyndur, forvitinn og
nýjungagjarn.
Tvíburafólkið á ekki til mikla þol-
inmæði gagnvart íhaldssömu fólki.
Það veit hvar það stendur hverju
sinni, en gæti verið búið að skipta
um skoðun eftir stuttan tíma. Það
hefur þörf fyrir hreyfingu og oft má
rekast á fólk i þessu merki í stuttum
ferðum bæði innan lands og utan.
Það er margt líkt með fiskinum og
tvíburanum, t.d. þörf fyrir að dylja
hinn raunverulega tilgang sinn.
Karlmaður í tvíbura
Þessi maður er óútreiknanlegur,
a.m.k. finnst flestum konum það.
Til þess að ástarsamband tvíbura-
mannsins lukkist er eins gott að
konan geri sér ljóst að hann verður
að hafa frelsi til að breyta um vinnu
eins oft og honum dettur í hug. Einn
daginn þegar hann kemur heim úr
vinnunni gæti hann verið búinn að
selja húsið ykkar og gleyma að láta
þig vita. Hann er manna líklegastur
til þess að hafa tekið jörð eða bát
upp í söluna.
Tvíburamaðurinn er yfirleitt vin-
sæll og uppáhald gestgjafa. Hann er
liðtækur við grillið og nýtur sín í við-
ræðum. Hann er vel heima í því sem
er að gerast hverju sinni og er lipur
í samræðum.
Hann er ráðgáta og það virðist
litlu máli skipta hvernig afstaða him-
intunglanna var við fæðingarstund
þessa manns, hann breytist frá degi
til dags. Hann er viss með að snið-
ganga konu sem hann er alvarlega
ástfanginn af, þar til hann telur
sig vissann um að hún muni þola
honum alla hans dynti. Þessir menn
eiga það til að leggja gamla vini á hill-
una vegna nýrra vina. Það er ekki af
því að þeim þyki ekki vænt um sína
gömlu vini heldur er það persónu-
leiki tvíburanna sem breytist. Þeim
er einfaldlega í blóð borðið að sækj-
ast eftir kunningsskap þeirra sem
hentar þeim hverju sinni.
Kona í tvíbura
Það hefur stundum verið sagt að
maður sem óskar sér að vera í fjöl-
kvæni eigi að giftast konu í tvíbura-
merkinu. Hugur hennar er á sífelldu
flakki og afstaða hennar til ástar-
mála er breytileg. En maður sem á
tvíburakonu ætti að leggja sig fram
við að finna rómantísku konuna á
bak við allt flöktið og hverflyndið.
Takist honum það verður hann ham-
ingjusamasti maður á jarðríki.
Þessi líflega kona hefur sérstakt
yndi af því breyta heimilinu. Hún
er fagurkeri og þegar sá gállinn
er á henni leggur hún nótt við dag
að gera allt sem best úr garði. Hún
er góð móðir sem fórnar sér fyrir
börnin. Hún hefur ekki neina
ánægju af því að fara í langt ferða-
lag án þeirra og er frekar heima.
Tvíburakonan ferðast með flugi um
landið frekar en bíl, henni liggur á
og tíminn er dýrmætur.
Hún skipuleggur líf sitt en vegna
hins mikla breytileika í sál hennar
standast áætlanir hennar oft ekki.
Hugur hennar er fullur af vonum og
háleitum hugsunum. Hún er smekk-
leg í klæðaburði og oftast hygginn í
innkaupum.
Hún þarfnast þess að maki hennar
sé fastur fyrir, styrki hana og styðji.
Þekkt fólk í tvíburamerkinu
John F. Kennedy
Bob Dylan
Marliyn Monroe
Cole Porter
Hrafn Gunnlaugsson
Bragi Ásgeirsson
Áhrifastjörnur þessa merkis
eru Merkúr, Venus og Sólin.
Happadagar: þriðjudagur.
Happalitir: blátt, grænt og brúnt.
Heillasteinar: agatar og smaragðar.
Happatölur eru oftast 6 og 5.
Marliyn Monroe
Cole Porter
John F. Kennedy
Hrafn Gunnlaugsson
■ ? J_________________________________
Bragi Ásgeirsson BlaHtMH