blaðið - 29.05.2006, Blaðsíða 24

blaðið - 29.05.2006, Blaðsíða 24
32 I MENNIWG MÁNUDAGUR 29. MAÍ 2006 blaðið Best að vera fjarri alfaraleiðum Lokaniðurstaða um lífið Er eitthvað samhengi í valinu á þessum Ijóðlínum? „Ekki nema að þær fjalla allar um landið, eru eins konar hugleiðingar um ísland og okkur. Kannski er þetta eins konar gamaldags þjóðernisrómantík og það er allt í lagi ef hún er laus við þjóðrembu og smáþjóðamont, sem hefur lengi verið lýti á hugsun okkar. Þessi sinfónía er auðskilin, aðgengileg og björt meðan fyrsta sinfónían mín var dökk, flókin og innhverf. Ég nota kór sem syngur lengi vel án orða og er stundum notaður eins og bakgrunnur og stundum eins og hljóðfæri. Undir blálokin syngur kórinn einradda: ,Vér erum þelið sem draumar spinnast úr, vor ævi er stutt og umkringd svefni“. Þetta er úr Ofviðrinu eftir Shakespeare, fallega þýtt af Helga Hálfdanarsyni. Þetta er eins konar lokaniðurstaða um líf okkar í eilífðinni, á landinu okkar Islandi sem er umgjörð um athafnir okkar, þrár og drauma, miðpunktur og leiktjöld hugsana okkar.“ Þú segist vera bókamaður. Hvaða áhrif hefur það haft á tónlistarsköpun þína? „Ég fæ mikið út úr bókmenntum og raunar öllum listgreinum. Ég veit ekki hvort þarna eru einhver bein áhrif en lestur bóka kemur huganum og hugmyndafluginu af stað.“ Ekkert að því að vera borgaraskrekkur Fyrir einhverjum árum fórnaði fólk höndum þegar minnst var á íslenska nútímatónlist. Varðstu sjálfur var við það viðhorf? „Þegar ég byrjaði að semja þá Atli Heimir Sveinsson.„Mér hefur oft fundist að listamenn á fslandi væru að flýta sér að staðna. Ég hef reynt að staðna ekki." 99........................................... „Það eru alltaf einhverjir sem vilja ekki annað en það sem þeir hafa áður heyrt. En ég held að það eigi ekki við um alla. Ég get ekki farið að reikna út meðaltal afsmekk áheyrenda og samið samkvæmt því. Það get ég alls ekki. Maður reynir bara að gera eins vel og maður getur." var það sem ég hafði fram að færa eflaust svolítið framandi fyrir marga. Ég kom heim úr námi árið 1965 og ísland var þá geysilega lokað land. Þá fannst mér íslendingar vera fólk sem sæti ánægt inni í sinni litlu huggulegu stofu í hálfdanskri nýlendu. Nú hefur ísland breyst geysilega mikið. Kannski verður fólk reitt ef eitthvað kemur því á óvart og þá það. Það er ekkert við því að gera. Mér hefur alltaf fundist best að vera fjarri alfaraleiðum. Að gera svolítið öðruvísi en aðrir. Þegar gamli Debussy var spurður hvernig hann kompóneraði sagði hann: „Eg geri mér í hugarlund það sem aðrir hafa samið og svo geri ég eitthvað allt annað“. Eg er dálítið þannig. Það eru nógir aðrir sem gera þetta vanalega og ég ætla ekki að vera í hópi þeirra. Það eru alltaf einhverjir sem vilja ekki annað en það sem þeir hafa áður heyrt. En ég held að það eigi ekki við um alla. Ég get ekki farið að reikna út meðaltal af smekk áheyrenda og samið samkvæmtþví. Það get ég alls ekki. Maður reynir bara að gera eins vel og maður getur. Hversu óvanaleg verk mínu eru verða aðrir að dæma um. En það er ekkert að því að vera borgaraskrekkur." Söngperlur úr arfi rétt- trúnaðarkirkjunnar Á annan dag hvítasunnu, þ. 5. júní klukkan 17.00 mun Mótettukór Hallgrímskirkju halda sína árlegu vortónleika í 24.sinn og flytja kór- tónlist frá Austur-Evrópu. Kórinn er með þessari efnisskrá að fara inn á slóðir í efnisvali sem hann hefur ekki kannað áður. Sungið verður á rússnesku, kirkjuslavnesku, grísku og latínu. Á efnisskránni er eingöngu kór- tónlist án undirleiks, sem fengin er frá rétttrúnaðarkirkjum Austur- Evrópu eða er sprottin upp úr tón- máli þeirra. Þekktustu verkin eru 5 mótettur úr Vesper eftir Rach- maninoff, sem er safn fjölradda helgisöngva fyrir blandaðan kór og hefur notið vaxandi vinsælda hjá unnendum kórtónlistar und- Blaölí/SteinarHugi anfarin ár, en ekki heyrst mikið á íslandi. Kórinn flytur valin verk eftir hinn serbneska og róm- antíska Mokranjac, sem var afar afkastamikið tónskáld og hefur líklega ekki áður verið sunginn af íslenskum kór. Eftir pólska sam- tímatónskáldið Gorecki verða flutt tvö öndvegis verk, Totus tuus og Amen, bæði samin undir áhrifum frá kórstíl austurkirkjunnar. I tengslum við tónleikana stendur kórinn fyrir sýningu á 50 íkonum frá fjórum löndum í Austur-Evr- ópu, en sýning þessi hefur vakið mikla athygli víða um Evrópu að undanförnu, en sýningin kemur hingað frá London. Mót- ettukórinn mun síðan flytja hluta af sömu dagskrá á tónleikum, m.a. í London og Rochester dómkirkjunni um miðjan júní. Miðasala á tónleikana í Hallgríms- kirkju er þegar hafin og fólki bent á að tryggja sér miða í tíma. Erufleiri sinfóníur á leiðinni? „Ég er búinn með sinfóníu númer þrjú. Hún er fyrir tvo einsöngvara, tvísöngur eiginlega allan tímann en svo nota ég bakraddir eins og 1 poppinu- Hún fjallar um lífið, frelsið og dauðann. Ég hef líka lokið við fjórðu sinfóníuna og nú að vinna að þeirri fimmtu fyrir rafhljóð úr hátölurum og stóra hljómsveit. Mér hefur alltaf fundist að sinfónía sé eins og skáldsaga frá 19. öld. Sé um allt. Sinfóníur mínar eru Blaðið/lngó svolítið langar en það verður bara að hafa það. Ég held að það sé ekki hægt að hafa þær styttri. Doðrantur frá 19. öld verður heldur ekki svo mjög styttur. Það hefur fylgt mér að ég hef reynt að bæta einhverju við þessa vanalegu sinfóníuhljómsveit. Ég hef haft gaman af því að fá nýja liti í þetta. Annars er ég alltaf að breytast. Mér hefur oft fundist að listamenn á íslandi væru að flýta sér að staðna. Ég hef reynt að staðna ekki.“ SU DOKU talnaþrautir Lausn síðustu gátu 5 8 2 9 3 1 6 7 4 6 3 9 7 2 4 8 5 1 1 4 7 5 6 8 9 2 3 2 6 3 1 4 7 5 8 9 4 5 1 2 8 9 7 3 6 7 9 8 3 5 6 1 4 2 8 1 6 4 7 2 3 9 5 9 2 5 8 1 3 4 6 7 3 7 4 6 9 5 2 1 8 Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers niu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Gáta dagsins 2 7 1 4 3 9 4 5 2 3 9 6 1 4 2 9 6 6 7 3 9 9 6 8 4 3 8 5 1 r~“ '"ni/i ishDP@IS ©6610015 zaLJLJLJrvL Sinfónía númer 2 eftir Atla Heimi Sveinsson verður flutt tónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands í Háskólabíói næstkomandi fimmtudagskvöld. „Þetta er sinfónía í fimm þáttum þar sem hver þáttur hefur nafn sem sótt er í íslenskan skáldskap,“ segir Atli Heimir. „Fyrsti þáttur hefur heitið Sólskins rönd um miðjan dag eftir Stephan G. Stephansson. Svo kemur annar þáttur Raddir frá hyldýpi hafsins eftir Hannes Hafstein. Síðan Einn um nótt ég sveima eftir Kristján Jónsson Fjallaskáld. Svo kemur Blámi himinhæða sem er úr fánakvæði Einars Benediktssonar og að lokum er Blik afþínum draumi úr lýðveldiskvæði Jóhannesar úr Kötlum. Hver þáttur tengist bókmenntum því ég er mikill bókmenntakall.“

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.