blaðið - 29.05.2006, Qupperneq 25
Einn af virtustu tölvunarfræðingum í heimi, Dr. Moshe Y. Vardi, verður gestur
Þekkingarseturs fræðilegrar tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavfk í byrjun
júní. Hann heldur fyrirlestur fyrir almenning um rökfræði, frá Aristóteles og
Evklíð til dagsins í dag.
Allir ættu að geta haft gaman af fyrirlestrinum, en Dr. Vardi hefur haldið fjölda
fyrirlestra fyrir almenning um heim allan.
Á síðustu fimmtíu árum hafa samskiptin á milli rökfræðinnar og tölvunarfræðinnar aukist mjög
mikið. Rökfræði hefur meira að segja verið kölluð „stærðfræðigreining tölvunarfræðinnar"
þar sem rökfræðin gegnir, að margra áliti, svipuðu hlutverki fyrir tölvunarfræðina og
stærðfræðigreining gegnir fyrir eðlisfræði og hefðbundnar verkfræðigreinar. Tölvunarfræði;
Ávöxtur rökfræðinnar; Þegar risarnir réðu ríkjum (And Logic Begat Computer Science: When
Giants Roamed the Earth) verður farið yfir söguna og hvernig rökfræðin hefur haft áhrif á þróun
tölvunarfræðinnar.
Fyrirlesturinn er áhugaverður fyrir aiia þá sem hafa áhuga á verkfræði, stærðfræði,
heimspeki, sagpfræði og aiit annað er viðkemur rökfræði, tækni og þróun.
FYRIRLESARI: DR. MOSHE Y. VARDI
Dr. Vardi starfar sem prófessor í Rice University í reiknifrædilegri
verkfrædi og er forstödumaður tölvu- og upplýsingatæknisvids
vid sama háskóla. Hann hefur unnið til verðlauna hjá ACM og
IBM, hann fékk Gödel verdlaunin árið 2000 og hefur birt yfir
300 greinar í virtum tímaritum og frædiritum um allan heim.
FYRIRLESTUR
FYRIR ALMENNING
UM RÖKFRÆÐI
STA0UR: HASKOLINN I REYKJAVIK
OFANLEITI, STOFA 101
TÍMI: FIMMTUDAGINN l.JÚNÍ
FRÁ KL. 1P.00-18.00 (KAFFIVEITINGAR FRÁ 16:30-1?:00)
AÐGANGUR ÓKEYPIS
❖
HÁSKÓLINN í REYKJAVÍK
REYKJAVlK UNIVERSITY
OFANLEITI 2,103 REYKJAVÍK • HÖFÐABAKKA 9,110 REYKJAVlK
S(MI: 599 6200 www.hr.is
He+jur
í vísmdu'toi
Fyrirlesturinn er styrktur af
Ronnís, Samtökum iðnaðarins
og Félags um e/Iingu verk- og
tæknifræðimenntunar.