blaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 20
24 I MENNING
MÁNUDAGUR 12. JÚNÍ 2006 blaöið
Norræn samtímalist í
Listasafni Reykjavíkur
Carnegie ArtAward, sem er bakhjarl einna stœrstu myndlistarverðlauna í heimi, sýnir brot afþví helsta sem nú er gert í nafni norrcenar
samtímalistar t Listasafni Reykjavíkur. Á sýningunni eru verk eftir 21 norrœnan listamann. Öll verkin á sýningunni eru gerð á undan-
förnum tveimur árum. Verðlaun sýningarinnar voru afhent í Osló í september 2005. Um leið hófst átján mánaða sýningarferðalag til allra
höfuðborga á Norðurlöndum, Nice í Frakklandi og Lundúna. Sýningin í heild sinni verður uppi íListasafni Reykjavíkur til 20. ágúst.
Karin Mamma Andersson hlaut fyrstu verðlaun Carnegie Art Award að upphæð 1
milljón sænskar krónur, fyrir hugmyndaríka endurnýjun sína á frásagnarmöguleikum
og andrúmslofti málverksins. f verkum sínum virkjar hún til fullnustu þá möguleika til
sköpunar sérstakra myndheima sem málaralistin býður upp á, myndheima sem eru allt
í senn vel þekktir og fjarstæðukenndir, en með djúpar rætur I líkamlegri og huglægri
skynjun okkar á veröld hlutanna og landslagi, en um leið teygir þetta málverk rætur
sinar inn í tilbúinn heim viðtekinna tákna. Sérstakt einkenni á verkum hennar er ítrekuð
notkun á myndfiötum inni I myndrýminu. Með því að vfsa f aðrar myndir inni f myndum
sfnum hnykkir hún stöðugt á sjónrænni og menningarlegri þýðingu málverksins, þvf
andrúmslofti sem það inniheldur og innbyggðum sannfæringarkrafti þess.
Eggert Péturson hlaut önnur verðlaun Carnegie Art Award að upphæð 600.000 sænskar
krónur fyrir einstakar nærmyndir sínar af gróðri, sem hefur frá öndverðu verið helsta
viðfangsefni hans. Úr fjarlægð virðast málverk hans vera óhlutbundin, en þegar nær er
komið leysast þau upp í ótal raunsæislega útlistuð smáatriði þar sem velþekkt blóm og
annar gróður koma við sögu. Eggert telur sig vera hugmyndalistamann og hefur með
hugarflugi sínu tekist að þróa afmarkað og hógvært viðfangsefni sitt uns það tekur á
sig ásýnd óendanleikans, hvort sem litið er til umfangs mynda hans eða túlkunarinnar.
Petra Lindholm hlaut þriðju verðlaun Carnegie Art Award að upphæð 400.000 sænskar krónur fyrir kvöldstemningu í formi mynd-
bands sem ber heitið Until (2004), fyrst og fremst fyrir málverkatengt myndmál verksins og flókna og órökræna frásagnaraðferð
þess. Lindholm hefur lag á að vekja athygli áhorfandans á stökum myndskeiðum þó svo hann geri sér Ijóst að hann er staddur í miðri
frásögn. Tíminn I verkinu verður til í margs konar samfiéttun frásagnaraðferða þar sem ólíkar frásagnir eru í gangi á sama tíma og
rekast saman, en einnig bítur frásögnin í skottið á sér. Myndband Lindholms krefst itrekaðrar skoðunar - rétt eins og málverk - til að
áhorfandinn skynji til fulls fegurðina og tært inntak þess.
99.................
Eggert telur sig vera
hugmyndalistamann og
hefur með hugarflugi
sínu tekist að þróa
afmarkað og hógvært
viðfangsefni sitt uns
það tekur á sig ásýnd
óendanleikans
SU DOKU talnaþrautir
Sænski listamaðurinn Sirous Namazi hlaut styrk Carnegie Art Award að upphæð 100.000 sænskar krónur fyrir tvö verk sem eru ólík
innbyrðis bæði hvað tækni og stærð áhrærir, en fjalla bæði um vandamál sem snerta túlkun veruleikans og miðlun upplýsinga. Namazi
notar ósvikna kímni til að tefla saman fagurfræðilegum forsendum naumhyggjunnar og hugsunarhætti hrakfallabálksins og útkoman
verður oftar en ekki verk á mörkum málaralistarinnar.
Lausn siðustu gátu
5 7 2 4 1 3 6 8 9
8 3 6 5 2 9 7 1 4
4 9 1 6 7 8 2 5 3
9 1 3 7 4 5 8 2 6
2 6 8 3 9 1 4 7 5
7 4 5 8 6 2 9 3 1
1 5 7 9 8 6 3 4 2
6 2 4 1 3 7 5 9 8
3 8 9 2 5 4 1 6 7
Su Doku þrautin snýst um
aö raöa tölunum írá 1-9
lárétt og lóðrétt í reitina,
þannig að hver tala komi
ekki nema einu sinni fyrir
í hverri línu, hvort sem er
lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu
má aukin heldur aðeins
nota einu sinni innan hvers
níu reita fylkis. Unnt er að
leysa þrautina út frá þeim
tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins
9 2 8 1 5
4 7 9
3 5 7 4 1 2
1 6 9 8
2 4 9 3 7
9 5 4
3 4
5 7
6 2