blaðið - 12.06.2006, Blaðsíða 8
8IFRÉTTIR
MÁNUDAGUR 12. JÚNÍ 2006 blaðiö
Bjarndýr meö kattafælni á háu stigi.
Kisi hrekkir
bangsa
Bjarndýr lenti í hremmingum í
bænum West Milford í New Jersey
ríki í Bandaríkjunum á dögunum.
Dýrið flæktist inn í garð Donnu
nokkurar Dickey en fékk hálfgert
taugaáfall þegar það kom auga á
heimilisköttinn, Jack. Bangsinn
var svo hræddur við hvæs kisa að
hann klifraði umsvifalaust upp i
hæsta tréð í garðinum. Kisi hljóp
að trénu og hélt áfram að hvæsa
að bjarndýrinu. Nágrannarnir
tóku eftir háttarlagi kattarins
og athuguðu hvað olli háttarlagi
kisa. Þeir voru heldur betur hissa
þegar þau sáu stærðarinnar bjarn-
dýr uppi í trénu. Nauðsynlegt var
að færa köttinn inn í hús til þess
að veita bangsanum tækifæri til
þess að fara niður úr trénu og
flýjaábrott.
Donna Dickey segir kött sinn
stunda afar virkt eftirlit með
öðrum dýrum í garðinum og að
hann flæmi þau umsvifalaust í
burtu fari þau á yfirráðasvæði
hans. Þrátt fyrir það segir hún
það koma óneitanlega á óvart
að kötturinn, sem vegur sjö kíló,
skuli hafa afrekað að fæla stærð-
arinnar bjarndýr frá garðinum
sínum.
Ford framleiðir ofurbíl í þágu
bættrar umferðarmenningar
Ford GT kappakstursbíl er ætlað að varpa ljósi á umferðaröryggi og mikilvægi þess að bera ábyrgð í
umferðinni. Framkvæmdastjóri Brimborgar segir slíka bíla geta orðið táknmynd öryggis.
Ford GT er ætlað að vekja athygli á umferðaröryggi og mikilvægi þess að bera ábyrgð f
umferðinni
Einar Magnús Magnússon, upplýs-
ingafulltrúi Umferðarstofu, fagnar
því að bifreiðaumboð sýni ábyrgð
í baráttunni fyrir bættu umferðar-
öryggi. Einn þekktasti kappakst-
ursbíll síðari tíma, Ford GT, var
frumsýndur formlega hér á landi í
flugskýli Arngríms Jóhannssonar,
flugmanns á Akureyrarflugvelli á
fimmtudaginn. Það er Brimborg
sem flytur inn bílinn og er ætlunin
sú að Ford GT kappakstursbíll er
ætlað að varpa ljósi á umferðar-
öryggi og mikilvægi þess að bera
ábyrgð í umferðinni. Framkvæmda-
stjóri Brimborgar segir slíka bíla
geta orðið táknmynd öryggis.
Einar segir það miklu máli skipta
að menn geri sér grein fyrir að slík
tæki eigi ekki heima á vegum eða
götum landsins séu þeir notaðir sem
leikfang. „Bifreiðaumboð hafa sum
brennt sig á að þau hafa verið að kitla
girnd ökumanna að keyra hratt án
þess að benda á að hraðakstur eigi
einungis heima á ákveðnum, afmörk-
uðum svæðumog þá undir merkjum
akstursíþróttafélaga. Umferðarstofa
fagnar þvi að ákveðin breyting hafi
orðið í þeim efnurn."
Að sögn Einars er Umferðarstofa
fylgjandi og fagnar einnig öllum hug-
myndum ákveðinna sveitarfélaga
um uppbyggingu akstursíþrótta-
svæða. „Við teljum að slík uppbygg-
ing sé mjög mikilvæg. Það verði þá
til svæði þar sem hægt er að stunda
akstursíþróttir undir ákveðnum
reglum og eftirliti, auk þess sem
áhættan er í lágmarki,“ segir Einar.
Kraftur og ábyrgð
Egill Jóhannsson, framkvæmda-
stjóri Brimborgar, segir að akstur
kraftmikilla bíla og aukinn hrað-
akstur hafi fjölgað mikið hér á landi
undanfarin ár. „Þetta hefur oft
hræðilegar afleiðingar í för með sér.
Þessi þróun krefst þess að bílainn-
flytjendur axli samfélagslega ábyrgð
í síauknum mæli og við ákváðum
strax að nota Ford GT til að vekja at-
hygli á málum sem snúa að umferð-
aröryggi,“ segir Egill.
Egill segir að það kunni að vera
að sumir telji það vera þversögn að
reyna að stuðla að auknu umferðar-
öryggi með innflutningi á ofursport-
bíl á borð við Ford GT. „Við teljum
að svo þurfi alls ekki að vera. Þvert
á móti getur þessi bíll verið tákn
um hvernig eigi að beisla kraft með
ábyrgð. Það ætlum við að gera með
komu Ford GT hingað til lands,"
segir Egill.
Táknmynd öryggis
Að sögn Egils þurfa ofursportbílar
ekki að vera táknmynd hættunnar
í umferðinni eins og oft vill verða.
„Slíkir bílar geta allt eins verið tákn-
mynd öryggis, því það er eins með
bíla og flest önnur mannanna tól
að það er sjálfur notandinn sem
ræður því hvort að bíllinn sé hættu-
legur eður ei. Við ákváðum því að
nota kynninguna á Ford GT til að
hvetja til öryggis í umferðinni. Við
munum nota öll tækifæri sem gefast
til að sýna fram á hvernig hægt sé að
beilsa kraft með ábyrgð, enda er það
grundvallaratriði við akstur allra
farartækja.“
Að lokinni kynningu á Akureyr-
arflugvelli var bíllinn, sem tekur
aðeins 3,6 sekúndur að koma sér
úr kyrrstöðu í 100 km/klst hraða,
prufukeyrður á flugbrautinni. Ibúar
höfuðborgarsvæðisins fá brátt tæki-
færi til að virða bílinn fyrir sér í
sýningarsal Brimborgar í Reykja-
vík. Ford GT var fyrst kynntur til
sögunnar í Englandi árið 1964. Bíll-
inn var sérstaklega hannaður til að
keppa í þolaksturskeppnum á lok-
uðum brautum, í upphafi í Le Mans
kappakstursins.
iSumai-húsid
°9 garðurinn
Sumarhús
CÓWSÆTT
A GfílLUÖ
í|ffcrnargerd
I Sorgarfjöröur
'“^iavgardur a
'nunarheppní Sumar
Allf fyrir sarð- oí sumarhúsaeiaendur
Alhliba fróbleikur fyrir áhugafólk um ræktun.
% Tímaritið Sumarhúsiö og garöurinn
Ay Tímaritiö Cróandinn
Lauftré á íslandi og Garöurinn allt áriö
;Þriú frábær áskriftarfilboð
gróandinn
(’KAShl ll 0G Kímíim
rMHvmisusr
RT Þú
www.r/t./s
Argangur 2006 af
• tímaritinu Gróandinn
á a&eins kr. 2.130.-
Þrjú blöb á ári, sé greitt me& VISA/MASTERCARD.
Áskriftin gildir í eitt ár og endurnýjast þá sjálfkrafa
sé henni ekki sagt upp fyrir þann tíma.
HII’I’M Uj I l,KÓl)l KtU‘\
"'“‘■Kujowhónw >
At.(RI/VI tíínv i t thi it/ tpj
. ,,V. '' nUJIIIMK H I HMUIU
ÍM,'’> 'i'íintun oc uicuinn
Bókaflokkurinn „Vi& ræktum'
bók nr. 2, Lauftré á íslandi
Tilboö a&eins kr. 2.450.-
Sé greitt með VISA/MASTERCARD.
Áskriftin gildir fyrir hverja bók og endurnýjast
sjálfkrafa sé henni ekki sagt upp.
Önnur bókin í bókaflokknum
Vib ræktum er komin út. Hún
fjallar um 53 tegundir iauftrjáa
sem geta ná& 5 m hæ& hér á
I landi, ræktun þeirra og þrif.
I Bókin bý&st í áskrift á kr 2.450,- mi&ab vi& ab greitt sé meb
I VISA/MASTERCARD. Verb í verslunum kr. 2.900
Nýir áskrifendur tímaritanna
fá a& gjöf bókina Garðurinn
allt ári&, aö andviröi kr. 2.450
og geisladisk meö efni eftir
Stanislas Bohic garöhönnuð.
Árgangur 2006 af tímaritinu
Sumarhúsið og gar&urinn
á a&eins kr. 3.550.-
Fimm blö& á ári, sé greitt með VISA/MASTERCARD.
Áskriftin gildir í eitt ár og endurnýjast þá sjálfkrafa
sé henni ekki sagt upp fyrir þann tfma.
Hægt er a& gerast áskrifandi á vefnum okkar www.rit.is e&a me& því a& hringja í síma 586 8005.
Sumarhúsið
og gar&urinn
Sumarhúsiö og garðurinn ehf.
Síöumúla 15, 108 Reykjavík
Sími 586 8005 • www.rit.is
Hringdu núna! - Áskriftarsími 586 8005