blaðið - 04.07.2006, Page 4
4IFRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2006 blaöiö
Harmurinn var mikill í kjöifar slyssins.
Á fjórða tug fórust í
lestarslysi á Spáni
Óvíst hvort Færeyskir
dagar verði haldnir að ári
Undirbúningsnefnd hátíðarinnar var ekki ánægð með hátt hlutfall ung-
linga á hátíðinni. Mikið var um drykkju og sóðaskap hátíðargesta.
Að minnsta kosti þrjátíu og fjórir
létust og á þriðja tug slösuðust alvar-
lega í lestarslysi í borginni Valencia
á Spáni í gær. Tveir vagnar í neðan-
jarðarlest ultu af lestarsporinu rétt
áður en lestin kom að lestarstöð í
borginni. Slysið átti sér stað á háann-
artíma. Spænskir fjölmiðlar höfðu
eftir embættismönnum að lestin
hafi verið á of miklum hraða áður en
að hún kom að lestarstöðinni og eitt
Igærvarhleyptafstokkunumnýjum
hlutabréfamarkaði í Kauphöllinni,
sem hlotið hefur nafnið iSEC. Hann
er einkum ætlaður smáum og meðal-
stórum fyrirtækjum, ekki síst fram-
sæknum fyrirtækjum í vexti, sem til
þessa hafa staðið frammi fyrir tak-
mörkuðum kostum til skráningar á
markað. Hampiðjan var fyrsta fyrir-
tækið, sem skráð var á iSEC.
ÞórðurFriðjónsson.forstjóriKaup-
hallarinnar sagði við þetta tilefni:
„Það er mjög ánægjulegt að opnað
hafi verið fyrir viðskipti á iSEC og
við bjóðum Hampiðjuna velkomna
á hinn nýja markað. iSEC er ætlað
að fjölga fjárfestingartækifærum á
íslenska markaðnum og veita litlum
og meðalstórum fyrirtækjum tæki-
færi til vaxtar á hlutabréfamarkaði.
Með þessum markaði er boðin hlið-
stæð þjónusta og í flestum nálægum
kauphöllum. Við bindum miklar
vonir við iSEC og væntum þess að
Falleg - sterk - náttúruleg
Suöurlandsbraut 10
S'miSHSSM XSTRÖND
www.simnet.is/strond ' nr.
hjóla hennar hafi brotnað með fyrr-
nefndum afleiðingum. Starfsmenn
sjúkrahúsa í nágrenninu settu upp
neyðarmóttöku í tjöldum við lestar-
stöðina og boð voru látin út ganga
um að þörf væri á blóðgjöfum.
Talsmaður innanríkisráðuneytis
Spánar sagði stuttu eftir slysið að úti-
lokað væri að um hryðjuverk væri að
ræða. Slysið er eitt mannskæðasta
lestarslys í sögu Spánar.
þessi markaður verði hagfelldur
fyrir fyrirtæki og fjárfesta í framtíð-
inni. “
iSEC sækir fyrirmynd sína til
AIM markaðarins sem rekinn er
af Kauphöllinni í Londo-n. Með
opnun iSEC vill Kauphöllin skipa
sér í flokk kauphalla, sem eru leið-
andi í að auka möguleika smárra og
meðalstórra félaga til vaxtar. iSEC
er jafnframt liður í því að efla sam-
keppnishæfni Kauphallarinnar á
alþjóðavettvangi.
Hampiðjan fluttist af Aðallista
Kauphallarinnar á iSEC við opnun
markaðarins í gær og varð þar með
fýrst fyrirtækja til að skrá sig þar.
Bandaríska líftæknifyrirtækið Cynt-
ellect stefnir einnig á skráningu
seinni hluta júlí ef fagfjárfestaútboð
gengur í samræmi við áform. Auk
þess hafa allmörg fyrirtæki sýnt
markaðnum áhuga og væntir Kaup-
höllin þess að hann verði vaxtafyr-
irtækjum lyftistöng og fjárfestum
uppspretta nýrra tækifæra.
iSEC tilheyrir nýrri tegund hluta-
bréfamarkaða, svokölluðum mark-
aðstorgum fjármálagerninga (MTF).
Lagaramminn er nokkuð rýmri en
fyrir þá markaði sem fyrir eru og
veitir nægt svigrúm til að gera skrán-
ingu á markað raunhæfan kost fyrir
smærri fyrirtæki og fyrirtæki þar
sem eignarhald er enn tiltölulega
þröngt. Mikilvægustu frávikin frá
Aðallista Kauphallarinnar eru þau
að ekki eru gerðar kröfur um stærð,
dreifingu hlutafjár og lengd rekstrar-
sögu og að ákvæði laga um yfirtöku-
skyldu eiga ekki við. Reglur laga um
innherjaviðskipti og markaðsmis-
notkun gilda hins vegar að fullu.
Eftir Atla Isleifsson
Talið er að um 6.000 manns hafi
lagt leið sína á Færeyska daga um
helgina og þar af hafi milli 80-90%
gesta verið unglingar. Lárus Einars-
son, upplýsingafulltrúi Færeyskra
daga, segist vera ánægður með
hvernig til tókst. „Við hefðum viljað
hafa hlutfallslega færri unglinga.
Við auglýstum þetta sem fjölskyldu-
skemmtun og reiknuðum með fleira
fjölskyldufólki. Hátíðin fór vel fram
aðfaranótt laugardagsins. Á laugar-
dagskvöldinu var hins vegar mikið
um drykkju og erill hjá lögreglu. “
Lögreglan stöðvaði bíla á Vega-
mótum á föstudeginum, þar sem
hún hellti niður áfengi og tók af ung-
lingum. Að sögn lögreglunnar í Snæ-
fellsbæ, fengu sumir unglingarnir
veður af þessari aðgerð þegar þeir
nálguðust Vegamót og báðu fólk í
húsbílum til að ferja áfengi fram-
hjá lögreglunni. Þá kvörtuðu sumir
foreldrar yfir því að lögreglan hafi
tekið áfengi af börnunum sínum.
Bitinn í eyra
Mikil ölvun var á hátíðarsvæðinu og
eitthvað um pústra. Búið er að kæra
eina líkamsárás til lögreglu og rán
þar sem maður sló tvo drengi með
tjaldsúlu og hirti af þeim farsíma.
Þrettán voru teknir fyrir ölvuna-
rakstur og fimm með fíkniefni. Eitt-
hvað var um skemmdir á eignum,
meðal annars hraðbanka. Þá var
einn hátíðargestur bitinn í eyrað. Að
sögn lögreglu dugðu fangageymslur
engan veginn til þess að hýsa þá sem
þurfti og var bílskúr notaður til að
létta á álaginu.
Lárus segir að lögreglan hafi
staðið síg mjög vel á hátíðinni. „Lög-
reglan á þakkir skildar, en löggæsla
var mikið efld milli ára. Sem betur
fer komu engin mjög alvarleg mál
upp, þó að eitthvað hafi verið um
fíkniefnamál og pústra. Við getum
því ekki verið annað en sátt þó að
við hefðum kosið að vera með fleira
barnafólk. Þeir sem mættu týndust
í fjöldanum.“
Taka ekki þátt að ári
Þeir sem áttu sæti í undirbúnings-
nefndinni í ár hafa ákveðið að taka
ekki þátt i undirbúningi að ári og
því er óvíst er hvort hátíðin verði
haldin næsta sumar. „Nefndin var
skipuð fimm mönnum sem sáu um
nánast allt sem við kom hátíðinni.
Þetta var mikil vinna og erfið. Við
erum samt mjög ánægð með okkar
starf, enda var ekkert alvarlegt sem
fór úrskeiðis. Við höfum þó ákveðið
að koma ekki að undirbúningi að ári.
Unglingar voru vissulega velkomnir
á hátíðina, en við vorum ekki ánægð
með þetta mikla hlutfall þeirra. Dag-
skrá okkar var alveg stíluð á fjöl-
skyldufólk, nema ballið með hljóm-
sveitinni í svörtum fötum sem
trekkti greinilega að,“ segir Lárus.
Um leið og hátíðinni lauk á sunnu-
deginum var farið í að hreinsa bæ-
inn. „Við fengum mikla aðstoð frá
Snæfellsbæ, þegar kom að hreingern-
ingu og öðru. Bærinn er orðinn jafn
fallegur og hann var,“ segir Lárus.
Fólki leið ekki vel
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæ-
fellsbæjar, segir að hátíðin hafi
ekki farið eins og hann hafði von-
ast til. „Færeyskir dagar hafa verið
haldnir á Ólafsvík í niu ár. Hópur
manna hefur staðið fyrir hátíðinni
sem á hrós skilið fyrir að standa
að skipulagningu hennar. Hingað
hefur komið mikið af fjölskyidu-
fólki og haldin góð veisla. Allir hafa
skemmt sér saman og verið i góðum
gír. I þetta skiptið lentum við hins
vegar í þvi að fá hóp fólks sem var
að hugsa um eitthvað allt annað en
að skemmta sér. Mikið var um sóða-
skap, drykkju og fólki leið ekki vel.
Hópurinn sem stendur fyrir þessa
hátíð vill hafa þetta skemmtun fyrir
alla fjölskylduna.“
atlii@bladid.net
Kauphöllin opnar
hjáleiguna iSEC