blaðið - 04.07.2006, Síða 16

blaðið - 04.07.2006, Síða 16
16 I NEYTENDUR ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2006 MaAÍÖ Að hefja sig til flugs Það getur verið frábært upplifun að ferðast en það er ýmislegt sem getur komið uppá á ferða- Iögum. Farangur getur týnst og flugi getur seinkað eða verið aflýst. Margir kannast við hversu pirrandi það getur verið að lenda í slíkum aðstæðum en réttur neytenda er margvíslegur í þessu sambandi. Á heimasíðu Flugmálastjórnar íslands er að finna margvíslegar upplýsingar sem lúta að réttindum farþega. Þar kemur meðal annars fram að ef flugi seinkar um tvær klukkustundir eða lengur, fyrir flug sem er 1.500 kílómetrar eða styttra, þá er flugrekandi skyldugur til þess að bjóða farþegum máltíðir og hress- ingu og hótelgistingu ef þörf er á. Þá er flugrekandi einnig skyldugur til þess bjóða upp á flutning á milli flugvalla og samskiptaðstöðu. Ef töfin er 5 klukkustundir eða meira verður flugrekandinn að bjóð- ast til að endurgreiða farmiða en fljúga honum engu að síður ókeypis til síns heima. Ábyrð flugrekanda getur engu að síður fallið niður að hluta eða öllu leyti skapist óviðráðanlegar aðstæður sem ekki er mögulegt að afstýra, jafnvel þótt gerðar hafi verið allar nauðsynlegar ráðstaf- anir. Slíkar aðstæður geta meðal annars skapast af völdum ótryggs stjórnmálasambands, veðurskil- yrða, öryggisáhættu, verkfalla eða ákvarðana sem teknar eru af flug- umferðarstjórn sem verða til þess að flugi er aflýst. Mynd/limSmart Mynd/ÁmiTorfason Á heimasíðu Flugmálastjórnar fslands er að finna margvíslegar upplýsingar sem lúta að réttindum farþega. eru ódýrastir? Samanburður á verði 95 oktana bensíns AO Sprengisandur 127,9 kr. Kópavogsbraut 127,9 kr.. Óseyrarbraut 127,9 kr.. < eGO Vatnagarðar 127,9 kr.. Fellsmúli 127,9 kr. Salavegur 127,9 kr.. O Borgartún 129,4 kr. Stóragerði 129,4 kr. ojís Affirr Ánanaust 129,4 kr. Gullinbrú 128,4 kr. Eiðistorg 127,8 kr. Klettagörðum 127,8 kr. Skemmuvegur 127,8 kr. ORKANj 03 ádýrttaMta Arnarsmári 127,9 kr. Starengi 127,9 kr. Snorrabraut 127,9 kr. Gylfaflöt 128,9 kr. Bæjarbraut 129,4 kr. Bústaðarvegur 128,9 kr. SERBLAÐ VIHNUVÉLAR Föstudaginn 7. júlí Auglýsendur, upplýsingar veita Sveiflur á fast- eignamarkaði Nú fyrir skemmstu lækkaði f búða- lánasjóður lánshlutfall sitt úr 90% niður í 80%. Þá var heildar- lánsupphæðin einnig lækkuð úr 18 milljónum niður í 17 milljónir. Ekki eru nema nokkur ár síðan íbúðalánakerfið var opnað fyrir viðskiptabönkunum. Vextir lækk- uðu mikið og margir mátu það sem svo að það væri hagstæðara að endurfjármagna eldri húsnæð- islán í stað þess að halda áfram að borga þau upp. Lánshlutfallið var hækkað á sínum tíma og það fjármagn sem fólk gat fengið að láni stóraukið. Þetta hafði í för með sér spreng- ingu á fasteignamarkaðnum og und- anfarin tvö ár hafa verðhugmyndir litið dagsins ljós sem áður voru óþekktar á íslenskum fasteigna- markaði. Ibúðalánasjóður tók þátt í þessu kapphlaupi bankanna en það var gagnrýnt á sínum tíma og þótti vafasamt á þenslutímum. Aftur til fortíðar með lánin Jón Þór Sturluson hagfræðingur telur að þessi breyting muni koma misjafnlega niður á fólki. „Fyrir þann hóp sem vantar töluvert upp á fjármögnun þýðir þetta að fjármögn- unin verður dýrari. Menn fara þá væntanlega þær leiðir sem fólk fór áður, leita inn í líffeyrissjóðina og inn í annarskonar lán með viðbót- arábyrgðum og að sjálfsögðu með hærri vöxtum. Þetta mun þá óhjá- kvæmilega hafa áhrif á eftirspurn eftir húsnæði til skamms tíma litið,“ segir Jón Þór. Að sögn Jóns Þórs var ákvörðun íbúðalánasjóðs að hafa forystu um að hækka lánshlutfallið í 90% afar umdeild á sínum tíma. „Það voru þannig margir sem töldu það að taka þetta skref á miðju þenslutíma- bili vera ein stærstu mistökin í hag- stjórnuninni. Ef aftur á móti á að draga úr þenslu þá er rétt að lækka lánshlutfallið, sérstaklega á fast- eignamarkaðnum sem hefur verið yfirspenntur,“ segir Jón Þór. Leiðrétting á mistökum Það má kannski með ákveðnum fyr- irvara segja að þessi aðgerð Ibúða- Jón Þór Sturluson hag- fræðingur lánasjóðs sé ekki skref fram á við heldur frekar leiðrétting á mistökum. Það verður þó að hafa í huga að ef fasteignaverð fer lækkandi þá þarf minna stofnfé og það dregur úr vægi breytingarinnar. Þó virðist að fyrir þá neytendur sem eru að kaupa sína fyrstu fasteign eða þá sem eru að minnka við sig sé þetta bjarnar- greiði. „Þessi breyting þarf ekki að hafa afgerandi slæm áhrif að með- altali á húseigendur en hefur slæm áhrif á þá sem eru að minnka við sig og þá sem hafa lítið stofnfé á milli handanna,“ segir Jón Þór. BlaimUi Lækkun iánahlutfalls og heildarláns mun væntanlega hafa þau áhrif að lækka fasteigna- verð til skamms tíma litið

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.