blaðið - 04.07.2006, Side 25

blaðið - 04.07.2006, Side 25
blaðiö ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2006 VÍSINDI I 25 Örbylgjuhitaður matur hefur veru- lega skaðleg áhrif á heilsufar Áhöld hafa verið um heilsusemi matar sem hitaður hefur verið í örbylgjuofnum, allt frá því að ör- bylgjuofnar urðu nægilega ódýrir í framleiðslu til að hinn almenni borgari hefði ráð á að kaupa slíkt tæki. Frá upphafi hafa framleið- endur haldið því fram að örbylgju- hitaður matur sé alls hættulaus heilsu manna en efasemdarmenn hafa haldið hinu gagnstæða fram. Á síðustu árum hafa verið gerðar rannsóknir sem gefa til kynna að efasemdarmennirnir hafi haft rétt fyrir sér og örbylgjuhitaður matur hafi verulega heilsuskaðleg áhrif. í dag eru örbylgjuofnar á flestum heimilum og fjölmörgum veitingahúsum. „Þegar örbylgjur fara gegnum efni eins og matvæli verka vatnssameind- irnar í matvælunum eins og örsmáir seglar og reyna að raða sér upp eftir rafsviðinu. Við það fara sameind- irnar sjálfar að sveiflast og núast við aðrar þannig að hiti myndast." Þetta er útlisting Bryndísar Evu Birgis- dóttur, doktors í næringafræði, og Jóhönnu Eyrúnar Torfadóttur, meist- araprófsnema í næringarfræði við Hí, á því hvað gerist við örbylgjuhitun sem finna má á vísindavefnum. I reynd kemur fram í svörum þeirra við spurningum um áhættuna við ör- bylgjuhitun matar að ekki hafi tekist að sýna fram á að hún reynist heilsu fólks skaðleg. Tekið er fram að þess sé vandlega gætt að örbylgjugeislun leki ekki út úr örbylgjuofnum, þeir séu hannaðir með þeim hætti, og að flestir séu sammála um að næring- argildi matarins breytist ekki við örbylgjuhitun. Þessir fáu sem ekki tilheyra flestum hafa þó verulega sannfærandi gagnasafn rannsókn- arniðustaðna málflutningi sínum til stuðnings. Örbylgjuhitað blóð drepur sjúkling Helsta ástæðan fyrir því að þess er svo vandlega gætt að örbylgjugeislun leki ekki úr ofnunum við notkun er sú að það myndi reynast heilsu okkar gríðarlega hættulegt. Ör- bylgjur virka fyrst og fremst á vatn, sykur og fitu og mannslíkaminn er að mestu gerður úr vatni. Heilinn er um 90% vatn og í heild er vatns- Örbylgjuofnar eru nánast fastur eldhúsútbúnaður I dag og vísitölufjölskyldan neytir reglulega örbylgjuhitaðs matar. Margvíslegur matur ætlaður sérstaklega til hitunar í örbylgjuofnum nýtur vaxandi vinsælda. kynna að breytingar verða á blóðinu við örbylgjuhitunina. Þetta tilvik í Ohio varð til þess að sístækkandi hópur fór að efast mjög um hættu- leysi örbylgjuofna. Svissneski næringarfræðingurinn Hans Hertle ákvað í byrjun tíunda áratugarins að efna til rannsóknar á áhrifum örbylgjuhitaðs mats í samvinnu við Bernhard H. Blanc, vísindamann frá Svissnesku tækni- 99...................................... Sovétmenn komust að þvíað hvers kyns matvæli sem höfðu verið hituð í örbylgjuofnum mynduðu krabbameinsvaldandi efni. Einnig voru skráðar truflanirí meltingafærum, sogæðakerfinu og aukning krabbameinsfrumna í blóði. magn líkamans tæp 80%. Það þýðir að örbylgjuáhrif á mannslíkamann yrðu svipuð og fram kemur hér í tilvitnunni að ofan, vatnssameind- irnar í líkamanum færu að sveiflast og núast við aðrar og mynduðu hita. Áhrif þessa á blóðið í mannslíkam- anum eru augljóslega hættuleg enda leiddi blóðgjöf á sjúkrahúsi í Ohio í Bandarikjunum til málaferla gegn sjúkrahúsinu þar sem sjúklingur lést eftir einfalda mjaðmaaðgerð. Sjúklingurinn lést ekki vegna mis- taka í aðgerðinni sjálfri heldur eftir að hjúkrunarkona notaði örbylgju- ofn til að hita blóð sem sjúklingnum var gefið eftir aðgerðina. Hrikalegar niðurstöður I ljósi þess að blóð er að venju hitað við blóðgjöf, þó ekki í örbylgju- ofnum, án nokkurra eftirkasta, og að örbylgjuhitað blóð leiddi sjúkling ti dauða, virðist það klárlega gefa til stofnunni og lífefnafræðistofnun. Niðurstöður þeirra sýndu svo ekki var um villast að áhrif örbylgjuhit- aðs matar á blóðið í neytandanum eru hrikaleg. Hið mikla orkumagn sem losnar úr læðingi við örbylgju- hitun nægir til þess að kljúfa prótín- sameindir og fá þær til að hegða sér ólíkt því sem þær annars gera. Sam- eindabygging matarins breytist og sameindir myndast sem líkaminn þekkir ekki. Blóðsýni fyrir og eftir Átta einstaklingar tóku þátt í rann- sókninni og dvöldust þeir við sömu ytri skilyrði í átta vikur. Þeir höfðu allir verið áður á macrobiotí sku mat- arræði um langt skeið. Enginn þátt- akenda fékk að reykja, drekka áfengi eða stunda kynlíf þessar vikur. Allur maturinn sem þátttakendur neyttu kom frá sömu framleiðendum en þeim var skipt í þrjá hópa, einn fékk Fjölmargir veitingastaðir nota örbylgjuofna til að hita matinn. hráfæði, annar fékk hefðbundið eldaðan mat og sá þriðji örbylgjuhit- aðan mat. Blóðsýni voru teknar fyrir og eftir matmálstíma. Mikil breyting á blóðinu Mikill munur reyndist á áhrifum matarins á þátttakendur og sýndi sig blóðskortur hjá þeim sem neyttu örbylgjuhitaðs mats til lengri tíma. Fækkun rauðu blóðkornanna var greinileg sem og skammtímaáhrif á fjölda hvítra blóðkorna en þeim fjöígaði mjög hjá þeim sem neyttu örbylgjuhitaða matarins. Þá minnk- aði einnig hlutfall ákveðinnar gerðar hvítra blóðkorna 1 blóðinu, sem skipta höfuðmáli fyrir mótefna- framleiðslu líkamans, sem lamaði ónæmiskerfið og hindraði upptöku súrefnis í vefjum. Áhrifin á hlutfall kólesteróls í blóði voru einnig greinileg, kóleste- rólmagnið hækkaði og hlutfall góðs kólestróls og hins slæma kólest- róls versnaði mjög, en kólesteról er fitukennt alkóhól í frumum og líkamsvökvum. Niðurstöður rannsóknarinnar styrktust ennfremur eftir annan mánuð tilraunarinnar en þá var henni hætt. Hótað með fangelsisdómi Blanc og Hertle komust að þeirri nið- urstöðu að hin mikla breyting sem verður á sameindum í örbylgjuhit- uðum mat sundrar í raun efnasam- böndum með geislun og myndar nýjar efnasameindir sem ekki er að finna neins staðar í náttúrunni. Nið- urstöður þeirra félaga voru birtar í Se- arch for Health vorið 1992 en Samtök svissneskra raftækjasala fengu dóm- ara til að gefa út bann á þá félaga að birta niðurstöður rannsóknarinnar. Þeim félögum var hótað með háum fjársektum og allt að árs fangelsi ef þeir hlýttu ekki úrskurðinum. Blanc dró því niðurstöður sinar til baka en Hertel hélt í fyrirlestraferð og heimt- aði að fá að flytja mál sitt fyrir kvið- dómi. Það tók Hertel sex ár að fá birt- ingarbanninu aflétt. Hann þurfti að leita á náðir Mannréttindadóm- stóls Evrópu, sem úrskurðaði gegn svissneska ríkinu og dæmdi það til greiðslu skaðabóta sem numu þá um tæpum fjórum milljónum króna. 99.......................... Samtök svissneskra raftækjasala fengu dóm- ara til að gefa út bann á þá félaga að birta niðurstöður rannsóknar- innar. Þeim félögum var hótað með háum fjár- sektum og allt að árs fangelsi efþeir hlýttu ekki úrskurðinum. Örbylgjuofnar bannaðir í Sovétríkjunum Margvíslegar rannsóknir á áhrifum örbylguhitaðs mats á heilsu manna voru framkvæmdar við Geislatækn- instofnunina í Minsk í Sovétríkj- unum á fimmta og sjötta áratugnum og urðu niðurstöður þeirra til þess að Sovétríkin bönnuðu innflutning og notkun örbylgjuofna árið 1976. Sovétmenn létu ekki þar við sitja heldur gáfu út alþjóðlega viðvörun um umhverfisáhrif og lífeðlisfræði- leg áhrif sem örbylgjuofnar og önnur örbylgjutæki gætu haft. Ein- hverjar niðurstöður þessara rann- sókna voru birtar í bandarískum tímaritum og voru þær allar á sömu lund og niðurstöður svissnesku vís- indamannanna en víðtækari. Sovét- menn komust að því að hvers kyns matvæli sem hefðu verið hituð í örbylgjuofnum mynduðu krabba- meinsvaldandi efni. Einnig voru skráðar truflanir í meltingafærum, sogæðakerfinu og aukning krabba- meinsfrumna í blóði. Þá reyndust marktækt fleiri þjást af magakrabba- meini sem neyttu örbylgjuhitaðs matar. Sovésku vísindamennirnir fundu einnig minnkað næringargildi í ör- bylgjuhitaða matnum. Þeir mældu rýrnun næringarefna á milli 60 og 90% og tóku þau til nýtanleika stein- efna, B-, C- og E-vítamína. Jafnvel næringargildi prótína minnkaði við örbylgjuhitun. Þá tóku þeir einnig eftir hormónabreytingum, sérstak- lega í framleiðslu og jafnvægi kven- og karlhormóna, og jafnvel skaða á heilafrumum. ernak@bladid.net

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.