blaðið - 04.07.2006, Blaðsíða 28

blaðið - 04.07.2006, Blaðsíða 28
28 I DAGSKRÁ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2006 blaöiö Hættu að hugsa og reyndu að upplifa hlutina. Ekki eyða peningunum þinum í vitleysu. Þú þarft ekki að borga 200 krónur fyrir kaffibolla, hann kostar ekki svona mikið - kaffið bragðast eins hvort sem það kostar 50 eða 200 krónur. Naut (20. apríl-20. maQ Pað að klára verkefnin getur oft verið erfiðara en að byrja á þeim. Þú þarft samt að Ijúka því sem þú ert byrjuð/byrjaöur á því annars hefurðu litið gagn afhlutunum. ©Tvíburar (21. mal-21. júní) Það að þú getir hugsað um sjálfa(n) þig getur kom- ið sér vel þegar þér líður illa. Dekraðu við sjálfa(n) þig og njóttu þess að vera vel til hafður/höfð því þá mun sjálfstraust þitt aukast. ©Krabbi (22. júnf-22. júli) Ný ævintýri, sem vinur þinn lendir I, hvetja þig til þess að sigla á vit þinna eigin ævintýra. Mundu að þú stjórnar þínu iifi og það er enginn annar sem geturstjórnaðþví. ®Ljón (23. júlí- 22. ágúst) Hættu með þessa fullkomnunaráráttu. Það er ekki neitt í heiminum sem er fullkomið og þú verður að sætta þig við það. Hins vegar getur þú verið mjög vandvirk(ur) og gert þitt besta. «!} Meyja jP (23. ágúst-22. september) Þolinmæðin þrautir vinnur allar. Þú þarft ekkert að vera með of mikið vesen og læti út af hlutum sem þú sjálf(ur) getur stjórnað. Einbeittu þér að einhverju einu og Ijúktu við það. Vog (23. september-23. október) Það gerist ekki allt um leið og þú vilt það. Við það verður þú að sætta þig en þú getur hinsvegar reynt að hafa áhrif á það sem að þér snýr. Einlæg afsökun er mjög mikilsverð. Sporðdreki (24. október-21. nóvember) Notaðu hluta dagsins i að skipuleggja framtíðina og hugleiða hvernig þú getur varið henni. Ekki láta alla aðra hafa áhrif á framtíðarplön þin, hugsaðu þauútfráþér. Bogmaður (22. nóvember-21. desember) Þú hefur ekki mikia orku I dag en það er allt I lagi. Það kemur dagur eftir þennan dag og þá geturðu gert meira og framkvæmt það sem þú ætlaðir að gera i dag. Steingeit (22. desember-19. janúar) Nýtt verkefni sem þér er treyst fyrir gefur þér aukna trú á eigin krafti og mætti. Þú getur miklu meira en þú heldur - þú þarft bara að átta þig á því. Vatnsberi (20. janúar-18. febrúar) Það er búið að vera mikiðað gera hjá þér að undan- förnu og þú hefur varla ráðið við það alll Þú þarft hins vegar ekki að afsaka þig því það hefur verið mikið álag á þér. ©Fiskar (19. febrúar-20. mars) Ný áskorun og ferskir vindar munu feykja þér I gegnum daginn. Láttu sem ekkert sé og leyfðu vindunum að blása þér þangað sem þig langar aðfara. HARMLEIKUR Fjölmiðlar Kolbrún Bergþórsdóttir Auðvitað er líf mitt í rúst. Ég sé ekki fram á veginn. Ég hugsa stöð- ugt: „Hvað á ég að gera?“ Ég á engin svör og sé enga leið og ekkert ljós. Það hvarflaði aldrei að mér að það yrði svona erfitt að sjá á eftir Bras- ilíumönnum úr HM. Ég reyni að finna huggun í þeirri staðreynd að ég á ekki ein um sárt að binda. Öll brasilíska þjóðin er í sárum og hið sama má vitaskuld segja um ensku þjóðina, þá hollensku, tékknesku og öll hin löndin sem misstu lið sín úr keppni. Mér líður bara ekkert betur að vita af því! Ég spyr mig margsinnis: „Hvern- ig gat þetta gerst?“ Allir vita að bras- ilíska liðið var það besta í keppninni. Brasilísku leikmennirnir virtust reyndar líta á það sem svo augljósa staðreynd að þeir héldu að það væri nóg fyrir þá að mæta á völlinn. Auð- vitað gengur þetta ekki þannig fyrir sig, hvorki á leikvellinum né í lífinu sjálfu. Ég mæti í vinnu á hverjum degi en ef ég nenni ekki að einbeita mér þá verður mér ekkert úr verki. Brasilíska liðið hefði mátt muna að þegar á leikvöllinn er komið þá verð- ur einhver vinna að eiga sér stað og það þarf að vera hugsun í henni. Það er ekki nóg að vita að maður er bestur, það verður að sýna það. Nú veit ég hvernig er að tapa kosningum. Það er alveg skelfileg tilfinning og maður gengur í gegn- um mikið sorgarferli. Nú höfum við Brasilíumenn fjögur ár til stefnu og þá mætum við galvösk til leiks á HM og hirðum titilinn. Þá hefur okkur verið skilað því sem okkur bar með réttu. kolbrun@bladid.net SJÓNVARPSDAGSKRÁ 0 SJÓNVARPIÐ 15.55 Fótboltakvöld 16.10 Kóngur um stund (4:12) 16.40 Útog suður 17.05 Leiðarljós (Guiding Light) 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 Fræknir ferðalangar (43:52) (The Wild Thornberries II) 18.25 Andlit jarðar (6:6) 18.30 Gló Magnaða (58:65) (Kim Possible) 19.00 Fréttir, (þróttir og veður 19.35 Kastljós 19.55 Mæðgurnar (17:22) (Gilmore Girls) 20.40 Taka tvö (7:10) 21.30 Metanveröld (Metaanimaailma) 22.00 Tíufréttir 22.25 Lögregluforinginn (5:6) (The Commanderll) 23.1S Dýrahringurinn (10:10) (Zodia- que) 00.05 Kastljós 00.25 Dagskrárlok ■ SIRKUSTV 18.30 Fréttir NFS 19.00 fsland í dag 19.30 Twins (5:18) (e) 20.00 Friends (9:17) (The One With The Birth Mother) 20.30 Sushi TV (4:10) Sushi TV er spreng- hlægilegur þáttur þar sem Japanir taka upp á alls kyns vitleysu. Allt það fyndnasta og furðulegasta sem þú finnur frá japönsku sjónvarpi er í þessum þáttum. 21.00 Bernie Mac (13:22) (It's Mac-Adem- ic) Þriðja þáttaröðin um grínistann Bernie Mac og fjölskylduhagi hans. Bernie tekur að sér þrjú börn og á ekki auðvelt með að aðlagast breytt- um aðstæðum. 21.30 Supernatural (21:22) (Salvation) STÖÐ2 06.58 ísland í bítið 09.00 Bold and the Beautiful 09.20 (fínuformi 2005 09.35 Martha (Bill Hemmer) 10.20 My Sweet Fat Valentina (Valent- ína) 11.10 Sisters (2:7) (Systurnar) 12.00 Hádegisfréttir 12.25 Neighbours 12.50 (fínuformi 2005 13.05 Home Improvement (2:25) 13.30 Supernanny (11:11) 14.15 Numbers (5:13) (Tölur) 15.00 Amazing Race (7:15) (Kapphlaup- iðmikla) 1555 Shin Chan 16.20 Nornafélagið 16.40 HeMan 17.OO The Bold And The Beautiful 17.22 Neighbours 17.47 Simpsons (9:21) 18.12 [þróttafréttir 18.30 Fréttir, íþróttir og veður 19.00 fsland í dag 19.40 Svínasúpan (e) 20.10 Amazing Race (14:14) 20.55 Earthsea (The Legend of Earth (1:2) 22.20 Prison Break (22:22) (Bak við lás ogslá) 23.10 TwentyFour (22:24) (24) 23.55 Bones (10:22) (Bein) 00.40 Liberty Stands Still 02.15 The Kid Stays in the Picture (Bíó- strákurinn) 03.50 Amazing Race (14:14) (Kapphlaupið mikla) 04.35 Prison Break (22:22) (Bak við lás og slá) 05.20 Fréttirog fsland ídag 06.25 Tónlistarmyndbönd frá Popp TÍVÍ ® SKJÁR EINN 07.00 6 til sjö (e) 08.00 Dr.Phil(e) 08.45 Brúðkaupsþátturinn Já (e) 16.10 The O.C. (e) Ekki er allt sem sýnist hjá flotta fólkinu í sólinni Kaliforn- íu. Astir, svik og prettir eru nánast daglegt brauð og fullir vasar af seðl- um eru ekki endilega ávísun á ham- ingju. 17.05 Dr. Phil 18.00 6 til sjö (e) 19.00 Beverly Hills 90210 19.45 Melrose Place 20.30 Whose Wedding is it anyways? Ný raunveruleikasería þar sem fylgst er með fólkinu sem undirbýr brúðkaup ríka og fræga fólksins 21.30 Brúðkaupsþátturinn Já 22.30 Close to Home - lokaþáttur 23.20 Jay Leno 00.05 C.S.I. (e) 00.50 Beverly Hills 90210 (e) 01.35 Melrose Place (e) 02.20 Óstöðvandi tónlist ^^SÝN 18.00 [þróttaspjallið 18.12 Sportið 18.30 HMstúdíó 18.50 HM 2006 Bein útsending frá leik Italíu og Þýskalands í undanúrslit- um HM. Sigurliðið leikur til úrslita en tapliðið leikur um bronsverðlaun. 21.00 4 4 2 HM uppgjör dagsins í umsjá Þorsteins J. og Heimis Karlssonar. Þeim til halds og trausts eru íþrótta- fréttamenn Sýnar og fleiri sérfræð- ingar. Fjallað er um nánast allt milli himins og jarðar sem tengist keppn- inni og knattspyrnulistinni. 22.00 HM 2006 Upptaka frá leik Ítalíu og Þýskalands á HM í Þýskalandi. !V/ NFS 07.00 ísland í bítið 09.00 Fréttavaktin 11.40 Brotúrdagskrá 12.00 Hádegisfréttir 13.00 Sportið 14.00 Fréttavaktin 17.00 Sfréttir 18.00 (þróttirog veður 18.30 Kvöldfréttir 19.00 fsland í dag 19.40 Hrafnaþing 20.20 Brotúrfréttavakt 20.30 Örlagadagurinn (4:10) („Uppgötv- aðidraumalandið") 21.00 Fréttir 21.10 48 Hours 22.00 Fréttir 22.30 Hrafnaþing 23.10 Kvöldfréttir 00.10 Fréttavaktin 03.10 Fréttavaktin 06.10 Hrafnaþing W4E3Í stöð 2 ■ b,ó 06.00 Being Julia (Hin eina sanna Júlía) 08.00 Scooby Doo 2: Monsters Unleas- hed (Scooby Doo 2: Ófreskjan) 10.00 Two Family House (Fjölskylduhús- ið) 12.00 Clint Eastwood: Lff ogferill (Clint Eastwood: Gut Instinct) 14.00 Scooby Doo 2: Monsters Unleas- hed (Scooby Doo 2: Ófreskjan) 16.00 Two Family House 18.00 Clint Eastwood: Líf og ferill 20.00 Being Julia (Hin eina sanna Júlía) 22.00 Rulesof Attraction (Leikreglurást- arinnar) 00.00 Elsker dig for evigt (Ást að eilífu) 02.00 The Believer (Innri svik) 04.OO RulesOf Attraction RÁS1 92,4 / 93,5 • RÁS 2 90,1 / 99,9 • Kiss FM 89.5 • Xfm 91,9 • Bylgjan 98,9 • FM 95,7 • X-ið 97,7 • Útvarp saga 103,3 • Talstöðin 90,9 Hill er fallegust Faith Hill hefur verið krýnd fallegasta kona heims af blað- inu Country Weekly. Þykir hún fegurri en til að mynda Shania Twain, Sara Evans ogfleiri. Aðdáendurstjörn- unnar vilja meina að hún sé gædd öllum þeim kost- um sem glæsileg kona þarf að vera. Hún hafi mikinn kynþokka, njóti vel- gengni í starfi og lifi hamingju- sömu lífi með Tim McGraw og dætrum þeirra. Á eftir Hill röðuðu lesendur Country We- ekly Söru Evans í annað sætið og Carrie Underwood fékk bronsið. Þar fyrir aftan röðuð- ust Martina Mcbride, Shania Twain, Jennifer Nettles, Terri Clark, Miranda Lambert, Trisha Yearwood, Gretchen Wilson og Reba McEntire. Simpson og Lachey endanlega skilin Nick Lachey og Jessica Simpson eru endanlega skilin. Sam- kvæmt skjölum frá skilnaðardómstóli stjörnuparið fyrrverandi þann 30. júní síðastliðinn. Við þetta var nafni söngkonuna aftur breytt í Jessica Simpson en hún tók eftirnafn fyrrverandi mannsins síns þegar þau giftust og hét Jessica Simpson Lachey. Skilnaðurinn var gerður opinber án þess að farið væri ofan í saumana á fjármálum þeirra. Það virðist því sem þau ætli ræða fjármálin sín á milli og útkljá sjálf. Simpson sótti um skilnað í desember í fyrra og kom það eins og þruma úr heið- skíru lofti, því fáa grunaði að skilnaður væri yfirvofandi. í Los Angeles skildi Bloom hrœddur við Depp Hinn ungi og efnilegi Or- lando Bloom, sem leikur eitt af aðalhlutverkun- um í nýju Pirates of the Caribbean-myndinni með Johnny Depp, viður- kennir að hann sé hrædd- ur við stjörnuleikarann. „Það að leika með Johnny Depp tekur á. Það getur meira að segja verið mjög ógnandi," seg- ir Bloom. Hinn 22 ára gamli leikari, sem sló í gegn í The Lord of the Rings, leikur hetjuna Will Turner í nýju sjóræningjamynd- inni sem hefur feng- ið prýðisgóða dóma vestanhafs.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.