blaðið - 26.07.2006, Page 9

blaðið - 26.07.2006, Page 9
blaðið MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 2006 FRÉTTIR I 9 Framkvæmdum við stækkun Leifsstöðvar miðar vel: ■ Flokkunarkerfi farangurs með þreföld afköst á við nú ■ Innritunarborðum fjölgað um sextán Eftir Atla (sleifsson „Nauðsynlegt var að stækka flug- stöðina til að mæta aukinni umferð. Við reiknum með rúmlega tveimur milljónum far- þega á þessu ári, ensamkvæmtfar- þegaspám munu liðlega 3,2 millj- ónir farþega fara um stöðina eftir tíu ár. Gert er ráð fyrir sex til sjö prósenta fjölgun á ári og því þarf að bæta aðstöð- una og auka þjónustuna. Farþegum hefur fjölgað mikið á undanförnum árum og mun halda áfram að fjölga. Til samanburðar má nefna að árið 1983, þegar fyrsta skóflustungan var tekin að flugstöðinni, komu 460 þús- und farþegar,“ segir Höskuldur Ás- geirsson, forstjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Lokaáfangi framkvæmda við breyt- ingu og stækkun Leifsstöðvar er nú að hefjast með frekari breytingum á annarri hæð norðurbyggingar flug- stöðvarinnar og verulegri stækkun og uppstokkun á innritunar- og komusal. Verulegar endurbætur voru gerðar á innritunarsal flugstöðvar- innar árið 2004, en gert er ráð fyrir frekari breytingum. Innritunarsal- urinn verður stækkaður enn frekar og innritunarborðum fjölgað um sextán, svo að þau verði sam- tals fjörutíu og eitt. „Til viðbótar höfum við tekið í notkun sex sjálfs- afgreiðslustöðvar til innritunar. Þær hafa mælst vel fyrir og við vonumst til að þær muni festa sig í sessi, líkt og á öðrum flugvöllum. Á sumum flugvöllum notfærir hátt í helmingur farþega sér slíka þjón- Ríkisskattstjóri: Hækkandi fjármagnstekjur síðan bornir út þann dag og í byrjun næstu viku. Opnað var fyrir rafrænt aðgengi einstaklinga að álagningarseðlum í gær á þjónustusíðu ríkisskattstjóra. Að sögn Indriða er álagningin í stórum dráttum í samræmi við vænt- ingar og einkennist af þeirri þenslu sem ríkt hefur hér á landi undan- farið ár. „Það er veruleg hækkun á tekjum og þ.a.l. á sköttum. Þá hækka fjármagnstekjur sérstaklega mikið. Fyrst og fremst er hér um söluhagnað af hlutabréfum að ræða,“ segir Indriði. Fjármálaráðuneytið mun á næst- unni gefa út helstu niðurstöður álagningarinnar í tölum. hoskuldur@bladid.net Vaxtabætur til landsmanna hafa lækkað verulega í ár að sögn ríkisskattstjóra. Búið er að leggja lokahönd á útreikninga á opin- berum gjöldum fyrir árið 2006 og verða álagningarseðlar bornir út í kringum næstu helgi. Að sögn rík- isskattstjóra er álagningin í stórum dráttum í samræmi við væntingar. „Álagningin ber það með sér að áhrifin af hækkun fasteignaverðs til lækkunar vaxtabóta er veruleg,“ segir Indriði H. Þorláksson, ríkis- skattstjóri. Hann segir einnig að hækkandi tekjur Iandsmanna vegi þar þungt. Skattstjórar munu næstkomandi föstudag leggja fram skrár með álagningu opinberra gjalda fyrir árið 2006. Álagningarseðlar verða Skatturinn vill sitt Skattstjórar senda frá sér álagningarseðla f lok vikunnar Höskuldur Ásgeirssona Gagngerar breytingar Heildarstærð Leifsstöðvar verður um 55 þúsund fermetrar þegar framkvæmdum lýkur í vor. ustu og það er einnig markmið okkar,“ segir Höskuldur. Að sögn Höskuldar mun flugstöðin koma sjálfvirku flokkunarkerfi far- angurs í gagnið næsta vor. Hið nýja kerfi mun gegnumlýsa og flokka sjálfvirkt allan farangur brottfarar- farþega og farangur skiptifarþega. „Það mun valda straumhvörfum í starfseminni því að afköst munu þre- faldast frá því sem nú er. Hið nýja kerfi á að anna allt að 3.600 töskum á klukkustund. Núverandi kerfi, sem var sett upp árið 2002, afkastar um 1.200 töskum á klukkustund og hefur ekki undan á álagstímum." Vopnaleitarsvæði flugstöðvarinnar hefur verið flutt upp á aðra hæð stöðv- arinnar af jarðhæðinni. Nýja svæðið var tekið í notkun í apríl síðastliðinn. „Þar eru nú fimm vopnaleitarhlið, í stað þriggja áður. Á næstu árum mun þeim svo fjölga í sjö, sem styttir biðtíma farþega til muna.“ Framkvæmdum er að mestu lokið við Laufskálann svokallaða, þar sem áður var afdrep fyrir reykingarfólk. Skálinn hefur nú verið stækkaður og er nú aðkomuleið farþega úr innritunarsalnum á jarðhæðinni að vopnarleitarsvæðinu. Höskuldur segir að breytingar verði einnig gerðar á komusal flugstöðvarinnar. „Komusalurinn verður endurbættur og komuverslun Fríhafnarinnar færð þannig að hún verði miðsvæðis í salnum. Móttökusalur farangurs verður færður í ný salarkynni, þar sem verður að finna mun lengri færi- bönd fyrir farangurinn en nú er.“ „Við reiknum með að þau svæði sem við erum að endurgera nú eigi að geta dugað í að minnsta kosti tíu ár. Líklega þarf að fjölga flugvéla- stæðum og skoða hvort að þörf sé á að reisa bílastæðahús og ýmsa aðra þjónustu sem tengist bílastæðaþjón- ustu. Þá þarf einnig að auka aðgengi að og frá flugstöðinni. Það eru því nóg af verkefnum framundan þó að þessum stóra áfanga verði lokið árið 2007,“ segir Höskuldur. Höskuldur hlakkar mikið til að framkvæmdunumljúki. „Við ætlum að reyna að klára meginhluta þessara breytinga vorið 2007, en þá munum við jafnframt halda upp á tuttugu ára afmæli flugstöðvarinnar.“ atlli@bladld.net Iðnaðarráðuneytið: Ástæðulaust að afhenda gögn ■ Lögreglan vildi upplýsingar ■ Fékk ekki Eftir Höskuld Kára Schram Ógjörningur var fyrir ríkislög- reglustjóra að aðhafast meira í tengslum við meint embættisbrot fyrrverandi forstjóra Byggðastofn- unar að sögn Jóns H.B. Snorrasonar, saksóknara hjá embætti ríkislög- reglustjóra. Hann segir forsendur fyrir framhaldi málsins hafa brostið eftir að Byggðastofnun og viðskipta- og iðnaðarráðuneytið töldu ekki ástæðu til að láta embættinu í té gögn vegna þess. Óskaði eftir upplýsingum „Ég sendi bréf bæði til iðnaðar- og viðskiptaráðherra og Byggðastofn- unar þar sem ég óskaði þess að þeir tækju afstöðu til málsins og létu mér í té upplýsingar og gögn vegna þess. Þeir tóku hins vegar enga afstöðu og töldu ekki tilefni, hvorki þá né nú, til þess að láta mig fá neitt,“ segir Jón H.B. Snorrason, saksóknari hjá emb- ætti ríkislögreglustjóra. Eins og fram kom í Blaðinu í gær sendi Magnús Þór Hafsteinsson, þing- maður, ábendingu til ríkislögreglu- stjóra í desember í kjölfar ummæla sem Kristinn H. Gunnarsson, þing- maður, lét falla í útvarpsviðtali. Þar sagði Kristinn fyrrverandi forstjóra Byggðastofnunar hafa brotið af sér í embætti með margvíslegum hætti. Ríkislögreglustjóra barst ábending Magnúsar í desembermánuði síðast- liðnum og í kjölfarið voru send bréf til Byggðastofnunar og ráðuneytisins þar sem óskað var eftir upplýsingum um málið. Magnús hefur gagnrýnt þessa málsmeðferð og segir einkenni- legt að ekki hafi verið leitað annarra leiða við öflun gagna. Jón segir opinberar stofnanir og ráðuneyti starfa samkvæmt lögum og það sé þeirra að gæta hagsmuna sinna fyrir hönd eigenda. „Ef að stofnun eða ráðuneyti telja alls ekk- Jón H.B. Snorrason, saksóknari hjá embætti ríkislögreglustjóra Hvorki Byggöastofnun né viðskipta- og iðnaðarráðuneytið töldu ástæðu til að afhenda honum upplýsingar og gögn. ert hafa verið framið sem hallar á hagsmuni þeirra er lítið hægt að gera.“ Forsendur brostnar Vegna afstöðu iðnaðar- og við- skiptaráðuneytisins og Byggðastofn- unar var málinu vísað til ríkissak- sóknara til frekari ákvörðunar. í bréfi sem ríkissaksóknari sendi ríkislög- reglustjóra í maí síðastliðnum er lagt til að ekki verði aðhafst meira í mál- inu. Er vísað í afstöðu ráðuneytis og Byggðastofnunar þessu til hliðsjónar og hversu langt sé síðan forstjórinn fyrrverandi hafi látið af störfum. Jón segir svar ríkissaksóknara vera afgerandi og með því hafi ríkislög- reglustjóri ekki getað aðhafst meira í málinu. „Með þessu afgerandi svari frá ríkissaksóknara má segja að for- sendur málsins hafi brostið. Að hans mati getur málið ekki haft neinn framgang. Ríkissaksóknari vísar m.a. í afstöðu ráðuneytis og Byggðastofn- unar máli sínu til stuðnings. Það væri því eðlilegra, að mínu mati, að gagnrýni Magn- úsarbeindist að þeim.“ RÍKISLÖGREGLUSTJÓRINN Opnunartími: Virka daga kl. 9-18 laugardaga kl. 11-16 SEGIAGERÐIN Æ<

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.