blaðið - 26.07.2006, Blaðsíða 11
blaðið MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 2006
FRÉTTIR I 11
Bandaríkin og Indland:
Blendin
viðbrögð
Stjórnvöld í Wash-
ington viður-
kenndu á mánu-
dag að þau vissu
um áform Pakist-
ana um byggingu
nýs kjarnakljúfs
en sögðu að þau hafi
leynt og ljóst reynt að fá þá
til þess að láta af áformum
sínum. Fréttirnar berast á
sama tíma og Bandaríkja-
þing er að hefja umræður
um hvort að það eigi að
staðfesta samning Banda-
ríkjanna og Indlands á sviði
kjarnorkumála. Talið er að
fréttirnar kunni að hafa
nokkur áhrif á þær umræður
enda hefur samningurinn
verið gagnrýndur á þeirri for-
sendu að hann auki líkurnar
á vígbúnaðarkapphlaupi í
Asíu. Auk þess er óttast að
aukin framleiðsla á kjarna-
kleyfu efni í Asíu kunni að
auka líkurnar á því að slík
efni komist í hendurnar á
hryðjuverkamönnum.
Viðbrögð Indverja
við fréttunum
• hafaverið
blendin. Að
öllum líkindum
vissu stjórn-
völd í landinu af
uppbyggingunni
en Indverjar og Pakistanar
hafa gert með sér samning
um gagnsæi í uppbyggingu
á kjarnorkugetu. Háttsettur
embættismaður innan ind-
versku stjórnarinnar gerir
lítið úr skýrslu ISIS og segir
hana gefna út til þess að hafa
áhrif á pólitíska umræðu um
samstarfssamning Indverja
og Bandaríkjamanna á
sviði kjarnorkumála. Hann
bendir á að einn skýrsluhöf-
unda, David Albright, sé
yfirlýstur andstæðingur
samningsins og hann sé að
reyna að hafa áhrif á gang
mála. Stjórnmálaskýrendur
telja að vinstri flokkar á Ind-
landi muni nota fréttirnar
til þess að berjast á móti
sitjandi ríkisstjórn enda eru
þeir andvígir nánu samstarfi
við Bandaríkin.
undanfarin misseri. Deilan
um kjarnorkuáætlun klerka-
stjórnarinnar í Iran, tilraunir
Norður-Kóreumanna, sem
ráða yfir kjarnavopnum, á
langdrægum eldflaugum
og samningur Bandaríkja-
manna og Indverja um kjarn-
orkusamstarf hafa gert það
að verkum að margir óttast
að dregið hafi allverulega úr
getu Alþjóðakjarnorkumála-
stofnunarinnar og aðildar-
ríkja hennar til að hamla út-
breiðslu kjarnavopna.
Stjórnvöld í Pakistan og
Indlandi hafa aldrei staðfest
alþjóðasamninginn gegn út-
breiðslu kjarnavopna og eru
því ekki bundin af honum.
Einn af frumkvöðlum kjarn-
orkuáætlunar Pakistana, dr.
Abdul Qadeer Kahn, hefur
viðurkennt að hafa selt upp-
lýsingar og efni um nýtingu
á kjarnorku til Líbíu, íran og
Norður-Kóreu á sínum tíma.
Olíuflutningabíll valt við Ljósavatnsskarð:
Betur fór en á horfðist
Olíuflutningabíll með fullan
farm af bensíni, valt á veginum
við Ljósavatnsskarð, á milli Akur-
eyrar og Húsavíkur, í gærmorgun.
Ökumaður bílsins slasaðist ekki
alvarlega en talið er að um ío þús-
und lítrar af bensíni hafi lekið úr
tönkum bílsins en alls voru þrjátíu
þúsund lítrar á tönkum bílsins.
„Hún var ekki glæsileg aðkoman
þarna,“ segir Kjartan Ólafsson,
sem staddur var í heyskap á Sigríð-
arstöðum í nágrenni slysstaðarins.
Hann var á meðal þeirra fyrstu sem
kom að slysinu og lokaði veginum
fyrir umferð þangað til lögregla
og sjúkralið kom á vettvang. „Það
þurfti að sprauta töluverðri froðu
yfir bensínið sem lak út enda skilst
mér að um ío þúsund lítrar hafi
farið af tanki bílsins. Sem betur fer
slasaðist bílstjórinn ekki alvarlega
enda skipti það öllu máli.“ Hann
segir slysið engin áhrif hafa haft á
störf fólksins á bænum. „Þetta fór
allt vel að lokum en ég geri ráð fyrir
því að einhver mengun hafi hlotist
af þessu,“ segir Kjartan og heldur
á ný í heyskapinn sem hann segir
ganga mjög vel.
Fró slysstað Miklar tafir urðu
á umferð vegna slyssins.
orniabladid.net
SUND ER
LEIKUR
■ $ ’T' r'
AFGREIÐSLUTÍMI LAUGA
Virka daga frá kl. 6:30 - 22:30
Helgar kl. 8:00 - 22:00
afgreiðslutími er mismunandi eftir
sundstöðum, sjá nánar é www.itr.is
Stakt gjald fullorónir 280 kr.
10 mióa kort fuilorónir 2.000 kr.
Stakt gjald börn 120 kr.
10 miða kort barna 800 kr.
Sund er æóislegt
www.itr.is i sími 411 5000
_________________________ •:
Laugarnar í Reykjavík tljQ
v.