blaðið - 26.07.2006, Side 19
blaðið MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 2006
27
Hvað sem hver segir þá er til
ást sem stenst hverja raun.
Hún er trúföst, hún er alltaf
jafn sterk og hún varir til ævi-
loka. Það er sjálfselskan.
Jean Paul Sartre
Afmælisborn dagsins
GEORGE BERNARD SHAW, LEIKRITAHÖFUNDUR, 1856.
MICK JAGGER, ROKKSTJARNA, 1944.
STANLEY KUBRICK, LEIKSTJÓRI, 1928.
ALDOUS HUXLEY, RITHÖFUNDUR, 1894.
kolbrun@bladid.net
Ljóðabók um
Mandela
Nelson Mandela varð 88 ára
gamall í síðustu viku. í tilefni
afmælisins er komin út Ijóðabók
með Ijóðum um þennan merka
mann. Höfundar Ijóðanna koma
úr ýmsum áttum, þar er að
finna þekkt Ijóðskáld og önnur
óþekkt, poppara og stjórn-
málamenn og meira að segja
er þarna Ijóð um Mandela eftir
tólf ára gamalt barn. Ljóðin eru
vitaskuld óður til Mandela og
frelsisbaráttu hans - með einni
undantekningu. Eitt Ijóðanna er
ort af manni sem var fylgjandi
aðskilnaðarstefnu stjórnvalda í
Suður-Afríku. í Ijóðinu, sem var
ort um miðjan áttunda áratug
tuttugustu aldar, segir að Man-
dela hafi fengið makleg mála-
gjöld með fangelsivist sinni.
Árstíðirnar í
Skálholti
Næstkomandi fimmtudags-
kvöld, þann 27. júlí kl. 20:00,
flytur Bachsveitin í Skálholti
Árstíðirnar fjórar eftir Antonio Vi-
valdi. Árstíðir Vivaldis, sem eru
meðal vinsælustu verka tónbók-
menntanna, hljómuðu síðast
á Sumartónleikum í Skálholts-
kirkju árið 1990 og heyrast nú f
annað sinn á Sumartónleikum.
Það er fiðluleikarinn Kati De-
bretzeni sem leiðir Bachsveitina
og er jafnframt í einleikshlut-
verki. Að loknum tónleikunum,
eða um kl. 21:15, fer fram þriðja
Brynjólfsvaka Sumartónleika,
undir yfirskriftinni Skálholt á
barokktímanum. Að þessu sinni
mun Njáll Sigurðsson fjalla um
fornkirkjusönghandrit.
Kennileiti
minninganna
Menningarstofnanir Reykjavfkur-
borgar hafa tekið sig saman og
skipulagt göngur á fimmtudags-
kvöldum í sumar undir heitinu
Kvöldgöngur úr Kvosinni. Að
þessu sinni verður gangan í um-
sjá Listasafns Reykjavíkur undir
heitinu Kennileiti minninganna
og mun Hafþór Yngvason, safn-
stjóri Listasafns Reykjavíkur,
fara fyrir henni. Lagt verður
af stað frá Hafnarhúsinu kl.
20.00 og mun gangan taka um
klukkustund. I göngunni mun
Hafþór skoða útilistaverk sem
setja svip á borgina og fjalla um
tilgang listar í almenningsrými.
Listin er heilun
Bræðurnir landsþekktu Bubbi og Tolli verða
meðal þeirra mörgu sem koma fram á útihátíð
SÁÁ sem haldin er að Hlöðum í Hvalfirði helg-
ina 28.-30. júlí. Bubbi heldur tónleika á hátíð-
inni og Tolli hefur umsjón með listasmiðju fyrir
börn. Báðir gefa þeir vinnu sína. „Þetta er gamli
skólinn: Sameinaðir stöndum vér, sundraðir föll-
um vér. Stundum verða menn að standa saman
og stundum verða menn ríkari af því að gefa en
að þiggja,“ segir Tolli. Bubbi segir það skipta sig
máli að taka þátt í hátíðinni. „Eg lít á SÁÁ sem
lífgjafa rninn," segir hann. „Það er líka mikils
virði að tengjast grasgrót þar sem alls konar fólk
kemur saman, fólk með ólíkan bakgrunn og
sína hörmungarsögu en allir eru i ljósinu með
börnunum að skemmta sér og hlæja.“
Tolli: „Listiðkun er hluti af
því ao vera mennskur og
tengist því að manneskjan
er andleg vera.“
Listasmiðjan sem Tolli hefur umsjón með er
ætluð börnum undir tólf ára aldri. Fyrirtæki
gefa efni og myndir sem börnin mála verða
hengdar upp og sýndar á myndlistarsýningu síð-
degis á laugardegi. Um tónleika sína á hátíðinni
segir Bubbi að þeir verði „medium-size“, ekki of
langir og ekki of stuttur: „Ólíkt öðrum útihátíð-
um býst ég við að þarna verði gott hljóð og hlust-
að verði á sönginn. Á venjulegri útihátíð er yfir-
leitt tolstoyleg uppákoma, eins konar vígvöllur.“
Listin og mennskan
Bræðurnir hafa ákveðna skoðun á listiðkun
og mikilvægi hennar. „Mannkynið hefur alltaf
stundað listiðkun. Listiðkun er hluti af því að
vera mennskur og tengist því að manneskjan er
andleg vera. Svo er listtjáning á misjafnri bylgju-
lengd, hún getur verið andartaksskemmtun eða
á dýpri nótum en hvort tveggja er nauðsynlegt
til að við getum verið manneskjur og þroskað
okkur saman,“ segir Tolli.
„Listin er heilun," segir Bubbi. „Á því augna-
bliki sem listamaður skapar list þá verður hann
betri maður. Ég held líka að þeir sem upplifa
list, hvort sem það er í klukkutíma eða korter,
verði betri menn af því. Listsköpun og list er
mjög vanmetin sem heilun. Það er alltaf verið
að setja listina upp á stall en ég upplifi hana sem
heilun.“
Lausn innan seilingar
Bubbi og Tolli hafa báðir sigrað í baráttunni
við vímuefni. Þegar þeir eru spurðir hvort þeir
hafi einhver skilaboð til unga fólksins varð-
andi vímuefnanotkun segir Tolli: „Það er lítið
annað hægt að segja en það að ef menn lenda í
ógöngum þá er til lausn. Hún er innan seilingar.
Menn vita hvað ég á við. Hins vegar er mikill
minnihluti sem nær að þiggja þessa lausn. Ótrú-
lega margir tortíma sér og og rústa lífi sínu og
aðstandenda sinna. Hvað á að segja ungu fólki?
Stundum vill maður segja eitthvað við foreldr-
ana.“
Bubbi bætir við: „Ef og þegar komið er í óefni
þá er lausn á vandanum fyrir þá heppnu. Hinir
óheppnu deyja snemma eða eru lengi að murka
úr sér líftóruna. Þannig er þessi sjúkdómur ein-
faldlega."
Bubbi og Tolli koma fram
á útihátíð SÁÁ sem hald-
in er að Hlöðum f Hval-
firði nú um hetglna.
Mynd/ÞÖK
menningarmolinn
Afsögn Churchills
Á þessum degi árið 1945 sagði
Winston Churchill af sér forsætis-
ráðherraembætti eftir að flokkur
hans, íhaldsflokkurinn, tapaði í
þingkosningum. Clement Attlee,
formaður Verkamannaflokksins,
tók við forsætisráðherraembætti.
Churchill varð foringi stjórnarand-
stöðunnar og árið 1951 varð hann
forsætisráðherra á ný. Tveimur ár-
um síðar var hann aðlaður af Elisa-
betu II og hlaut Nóbelsverðlaunin
í bókmenntum. Árið 1955 lét hann
af embætti forsætisráðherra en sat
á þingi til ársins 1964. Churchill,
sennilega merkasti stjórnmálamað-
ur Breta fyrr og síðar, lést árið 1965,
91 árs að aldri. Árið 2002 var hann
valinn merkasti Breti allra tíma í
kosningu hjá BBC.