blaðið - 26.07.2006, Blaðsíða 21
blaöiö MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 2006
29
fiölskyldan
fÍAlf'l/xzlrlon (rt\ I i n
fjolskyldan@bladid.net
Kraftaverk lífsins
Áður en þú varst getin vildi ég þig. Áður en þú fæddist
elskaði ég þig. Áður en þú varst klukkustundargömul
hefði ég dáið fyrir þig. Það er kraftaverk lífsins
Maureen Hawkins
Hættuleg efni í
umhverfi barna
Börn leika sér meira úti yfir sum-
artímann og þá getur skapast ný
hætta þegar kemur að eitur-
efnum. Foreldrar hafa gert viðeig-
andi ráðstafanir inni á heimilinu
en gleyma því að leikur barnanna
hefur færst út og þar geta eitur-
efni verið víða.
BÍLSKÚRINN
Börnin eiga frekar leið um bílskúr-
inn á þessum tíma árs. Það er því
mjög mikilvægt að fara vel yfir
hvort þar kunni að leynast hættu-
leg efni. Samkvæmt reglum eiga
öll skaðleg efni að bera aðvörun-
arferhyrning sem er appelsínu-
gulur með svörtu letri og gefur
hættu efnisins til kynna. Hægt
er að skoða þessar merkingar á
heimasíðu Umhverfisstofnunar
www.ust.is. Kynnið ykkur merk-
ingu þeirra. Það er mikilvægt að
færa aldrei afganga af efnum yfir
í aðrar umbúðir. Margar eitranir
hafa orðið þegar fullorðnir hafa
sett eiturefni yfir á gosflöskur.
GRILLW
Þeir sem eru enn að nota kola-
grill eru oft með kveikilög hjá
grillinu. Kveikilögur er eitt af þeim
hættulegu efnum sem barn getur
komist í. Vökvinn er bæði mjög
eitraður og hann getur einnig
farið í lungu barnsins.
þarf ekki nema soþa
af efninu til að verða
fyrir alvarlegri eitrun.
BENSÍN
Bensínbrúsar eru oft
úti í görðum eða
bílskúrum, sérstaklega þar sem
verið er að nota garðsláttuvélar.
Það þarf vart að taka það fram
að bensín er mjög eitrað en á
sama tíma getur það verið freist-
andi fyrir eldri börn að fikta með
það. Á liðnum árum hafa orðið
nokkur mjög alvarleg slys þegar
stálpaðir drengir hér á landi voru
að fikta við að kveikja í bensíni.
Það er mikilvægt að læsa allt
bensín og eldfima vökva inni og
jafnframt að fræða eldri börn um
þær hættur sem fylgir því að fikta
með það.
GEYMIÐ ÖLL SKAÐLEG EFNI f
LÆSTUM HIRSLUM
Eina leiðin til að koma í veg fyrir
að börn verði fyrir eitrunum er að
setja efnin í læstar hirslur. Margir
telja það öruggt að setja efnið í
ólæsta efri skápa eða í efstu hillur,
slíkt er því miður falskt öryggi
eins og margir hafa lært eftir að
barnið varð fyrir eitrun.
Verði barn fyrir eitrun er mikil-
vægt að byrja á því að hringja
til eitrunarmiðstöðvarinnar en
síminn hjá henni er 543 2222.
Þar er hægt að fá upplýsingar
um hvernig á að bregðast við
eitrunum. Ekki gefa barninu
neitt, til dæmis vatn eða mjólk
áður en haft er samband við
eitrunarmiðstöðina.
herdis.storgaard@sjova. is
www.forvarnahusid. is
MARKISUR
www.markisur.com
arfe
Dalbraut 3,105 Reykjavík • Nánari upplýsingar í síma
567-7773 og 893-6337 um kvöld og helgar
Rimini Þóm líður vel á Italíu
en saknarþó alltaf Islands
Fann ástina á Italíu
fáránlegra hluta
Þóra Katrín Gunnarsdóttir fann
ástina á Ítalíu og hefur verið búsett
þar síðustu fimm árin. Utan fjöl-
skyldu og vina segist hún helst sakna
roksins og rigningarinnar hér heima.
„Því lengur sem ég er hér úti þá sakna
ég fáránlegra hluta, hluta sem ég tók
ekki mikið eftir heima eða tók sem
sjálfsögðum hlut. Ég sakna íslenska
vatnsins, villtrar náttúru og allrar
víðáttunnar sem er heima. Landið
er vitanlega yndislegt og ég elska
að koma heim í grenjandi rigningu
og roki. Ég vil helst fá rok og snjó
framan í mig þegar ég kem út af flug-
vellinum heima.“
Ástin greip í taumana
Þóra Katrín starfar sem fararstjóri
fyrir Heimsferðir og segir starfið
mjög skemmtilegt. „Eg er fararstjóri
frá maí fram í september. Þess á milli
tek ég að mér sérferðir hér og þar
og fer til dæmis yfirleitt í einhverja
ferð í nóvember. I ár fer ég væntan-
lega til Suður-Ameríku í þrjár vikur.
í desember fer ég sjálf í frí í mánuð
ásamt manninum minum,“ segir
Þóra Katrín og bætir við að henni
líði voða vel á Ítalíu en sakni þó alltaf
Islands. „Þetta er viss ákvörðun sem
maður tekur, en þegar ástin grípur í
taumana þá líður manni vel hvar sem
maður er. En auðvitað sakna ég fjöl-
skyldu og vina en ég er dugleg að fara
heim. Ég kem yfirleitt í heimsókn til
íslands í október og á vorin. í október
er ég hér í mánuð og í tvær vikur á
vorin.“ Þrátt fyrir að hafa verið bú-
sett á Italíu í fimm ár hefur Þóra
Katrín ekki upplifað ekta ítölsk jól.
„Ég hef ekki ennþá haldið jól á Ítalíu.
En ég eyddi einu sinni jólunum á
Spáni þar sem ég var Erasmus nemi.
Það var rosalega erfitt en ég átti sem
betur fer frænku sem var þar með
mér þannig að við héldum fslensk jól.
Ég hef stundum verið heima um jólin
en yfirleitt förum við í frí til Tælands,
Kambódíu eða Brasilíu yfir jól og ára-
mót,“ segir Þóra Katrín sem stefnir á
að búa í Italíu næstu árin.
Virkilega verið að njóta lífsins
Að sögn Þóru er helsti munurinn á
Ítalíu og Islandi sá að allt er mun af-
slappaðra á Italíu. „Krakkarnir koma
heim úr skólanum klukkan eitt á
daginn, sem og aðrir fjölskyldumeð-
limir, og þá sest fjölskyldan saman
og borðar hádegismat. Faðirinn fer
svo yfirleitt að vinna aftur seinnipart-
inn. Fjölskyldan sameinast aftur um
kvöldið til að borða saman. Heima
snýst allt um vinnu og krakkarnir
eru á leikskóla til fimm eða sex á dag-
inn. Það er því miklu meiri keyrsla
og lífsgæðakapphlaup heima heldur
en hér úti. Hér er virkilega verið að
njóta lífsins. íslendingar njóta vitan-
lega lffsins lfka en það er svo mikið
myrkur yfir vetrartímann heima.
Fólk getur því ekki verið eins mikið
úti við og það lokar sig frekar inni og
vinnur.“
svanhvit@bladid.net
Góða nótt!
Flestir foreldrar þekkja hve mikil-
vægt það er að litlu krilin fái nægan
svefn. Ef börn eru svefnvana eða
þreytt geta þau orðið pirruð og við-
kvæm. Það vill oft bitna á foreldrum
og systkinum sem getur leitt til enn
meiri pirrings. Það er því heillavæn-
legast að öll fjölskyldan fái nægan
svefn svo allir geti notið samveru
hvert annars. Hæfilegur svefntími
5-8 ára barna er talinn vera 10-12
klukkustundir á sólarhring. Um
9-11 ára börn þurfa svipaðan tíma
eða 10-11 klukkustunda svefn á sól-
arhring. Unga fólkið þarf heldur
minni svefn og 13-15 ára börn þurfa
9-10 klukkustundir á sólarhring.
Mamma og pabbi þurfa svo um 7-8
klukkustunda svefn og þá ættu allir
að geta haldið í góða skapið.