blaðið - 02.08.2006, Side 2

blaðið - 02.08.2006, Side 2
2IFRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2006 blaðið blaöiðna Hádegismóum 2,110 Reykjavík Sími: 510 3700 • www.vbl.is FRÉTTASÍMI: 510 3799 netfang: frettir@ bladid.net AUGLÝSINGADEILD: 510 3744 netfang: auglysingar@bladid.net Mynd/Lögreglan á Seylisárái Kárahnjúkar: Mótmælandi verður kærður Loftur Jóhannsson, formaður Fé- lags íslenskra flugumferðarstjóra Undrast að læknir geti greint þriöja að ila frá trúnaðarmálum sjúklings Veikur flugumferðarstjóri: Annar læknir gaf út veikindavottorðið ■ Neyddur til að mæta í vinnu. ■ Læknir brýtur trúnað. ■ Ógnun við flugöryggi Óskar Bjartmarz, yfirlögredu- þjónn á Seyðisfirði, segir að 01- afur Páll Sigurðsson verði kærður íyrir skemmdir sem hann vann á bíl lögreglunnar á mánudag. „Við höfum ekki fundið hann, en við höfum svo sem ekki verið að leita að honum sérstaklega, en hann verður kærður,“ segir Óskar. Skemmdirnar eru ekki miklar að sögn Óskars en þó sjái á bílnum. Auk þess hafi Ólafur reynt að hindra för ökutækis lögreglunnar og því verði hann kærður fyrir at- hæfið. Myndin sem hér birtist var tekin af lögreglumanni á staðnum og sýnir hún Ólaf Pál gefa yfirvaldinu fingurinn. Eftir Höskuld Kára Schram hoskuldur@bladid.net Flugumferðarstjórinn, sem gert var að mæta í vinnu á mánudaginn eftir að trúnaðarlæknir hafði úrskurðað að hann væri heill heilsu, fékk veik- indavottorð frá öðrum lækni eftir að vinnu lauk. Formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra undr- ast að veikur maður skuli dreginn í vinnu. Ákveðið var að fá staðfestingu á öllum veikindum í ljósi mikilla for- falla að undanförnu að sögn fram- kvæmdastjóra flugumferðarsviðs Flugmálastjórnar. „Þetta er mjög óeðlilegt. Það hefur gerst áður að trúnaðarlæknir fari heim til manna. Ég man þó ekki til þess að menn hafi komið í vinnu sem segjast vera veikir. Þessi maður lét sig hafa það að koma en ítrekaði þó að hann treysti sér ekki til þess,“ segir Loftur Jóhannsson, formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra. Á mánudaginn var flugumferðar- stjóra sem tilkynnt hafði sig veikan skipað að mæta í vinnu eftir að trún- aðarlæknir Flugmálastjórnar hafði úrskurðað að hann væri heill heilsu. Maðurinn hafði, að sögn Lofts, þjáðst af beinverkjum og höfuðverk um nóttina og treysti sér ekki til vinnu um morguninn. „Ég veit að þessi starfsmaður spurði trúnað- arlæknirinn að því hvernig hann mældi höfuðverk. Mér skilst að það hafi verið frekar fátt um svör.“ ■ Loftur segir einkennilegt að læknir láti þriðja aðila fá upplýsingar um líðan sjúklings. „Samkvæmt því sem ég veit er engin heimild fyrir því að læknar geti greint þriðja aðila frá trúnaðarmálum sjúklings. Okkur finnst þetta afar einkennilegt." Eftir að maðurinn lauk vakt seinna um kvöldið fór hann á Læknavaktina þar sem læknir úrskurðaði að hann væri veikur og lét hann fá vottorð upp á það. I gær sendi stjórn Félags íslenskra atvinnuflugmanna frá sér ályktun þar sem lýst er yfir áhyggum vegna þeirrar stöðu sem komin er upp í Flugstjórnarmiðstöðinni í Reykja- vík. Átelur stjórnin þau vinnubrögð að veikur maður skuli neyddur til að mæta í vinnu og telur slíkt vera bein ógnun við flugöryggi. Ásgeir Pálsson, framkvæmda- stjóri flugumferðarsviðs Flugmála- stjórnar, segir mikil veikindi flug- umferðarstjóra á síðustu vikum og mánuðum hafi leitt til breytinga á vinnureglum trúnaðarlæknis. ,Trúnaðarlækni er tilkynnt um öll veikindi. Hann hefur síðan sam- band við fólk til að athuga líðan þess og ef hann er sáttur við svör þá er því lokið. Að öðru leyti boðar hann fólk í læknisskoðun. í ljósi þess að veikindi hafa aukist svo mikið þá var þessi vinnuregla sett upp eftir þarsíðustu helgi.“ NÝB VALKOSTIJR Á ' FLIJTMNGAMARKAÐNUM Fiskislóð 26 • 101 Reykjavík • Sími: 578 4600 www.transport.is • transport@transport.is Á förnum vegi Hvernig líkar þér við forseta íslands? Halldór Hreinsson hugbúnaöar- fræðingur „Dorrit er fín. Ólafur hefur svo sem ekkert gert af sér í nokkurn tíma.“ Lára Margrét Möller nemi „Hann er ágætur, allavega ekkert slæmur gæi.“ Hafdís Jóhanna Einisdóttir nemi „Hann er bara æðislegur," Nína Guðríður Sigurðardóttir nemi „Mér finnst hann mjög fínn.“ Ása Ottesen stílisti „Hann er æði.“ 's'qrænmeti sérmerkt þér! Heiöskirt Léttskýjað Skýjað Alskýjað Hlgning, lítilsháttarÁf^. Rigning Súld - Snjókoma.— - Slydda ■ ' - Snjóél - ' —skúr Algarve 27 Amsterdam 16 Barcelona 28 Berlin 21 Chicago 28 Dublin 18 Frankfurt 22 Glasgow 15 Hamborg 21 Helsinki 22 Kaupmannahöfn 19 London 21 Madrid 34 Mallorka 32 Montreal 26 New York 29 Orlando 25 Osló 21 París 21 Stokkhólmur 20 Vín 25 Þórshöfn 12 Veðurhorfur í dag kl: 15.00 Veðursíminn 9020600 Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands Á morgun

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.