blaðið - 02.08.2006, Page 23

blaðið - 02.08.2006, Page 23
blaöiö MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2006 I 23 í bæinn. „Við fórum á markað í bæ sem kallast Sarlat og fallegur mið- aldabær. Þarna koma bændurnir með vörur sínar eins og osta, pylsur og vín, allt meira og minna heimalag- að og virkilega gott“ segir }ón Krist- inn. Á föstudagskvöldið var haldið á veitingastað í nágrenninu sem bauð upp á ódýran og góðan franskan heimilismat. „Staðurinn er í miklu uppáhaldi hjá Jim og hann vildi leyfa okkur að kynnast því líka enda urð- um við ekki fyrir vonbrigðum" segir Álfrún. Aldagömul olíuverksmiðja f Dordogne má finna aldagamla hnetuverksmiðju þar sem olía er bú- in til úr hnetum með upprunalegum aðferðum og sömu tækjum og voru notuð fyrir nokkrum öldum. „Þarna var hægt að koma með hnetur sem voru týndar úti í skógi og láta búa til olíu fyrir sig sem var mjög bragðgóð. Allt var þetta búið til í gömlu vélun- um og var gaman að fylgjast með því. Þarna var líka hægt að kaupa vín af bóndum en í héraðinu eru margir með litlar vínekrur. Við heimsóttum eina slíka og fengum að smakka vín úr fyrstu uppskerunni“ segir Álfrún. Borðað á gömlum herragarði Frá flugvellinum í Limoges tekur um í Vi -2 klukkustund að keyra til Bombel. „Það var mjög áhugavert að keyra um sveitir Frakklands og tókum við okkur góðan tíma í það. Við stoppuð- um á leiðinni á gömlum herragarði frá 18. öld þar sem við fengum dýr- indis máltið. Það eru hjón sem reka þennan stað sem er sérstaklega huggulegur og verðið fyrir fjögurra rétta máltíð með góðu léttvíni var hlægilegt“ segir Álfrún. „Eitt hið skemmtilegasta við Frakk- land er þessi mikla matarmenning. Það er tekinn góður tími í að matbúa og svo er setið lengi og matast sem er ólíkt því sem tíðkast hér heima“ segir Jón Kristinn. „Það er líka lögð mikil áhersla á að maturinn sé fallega bor- inn fram og allt verður þetta mjög girnilegt". Réttirnir sem eldaðir eru á nám- skeiðinu eru mjög fjölbreyttir. „Við lærðum t.d. að búa til piparís sem var mjög góður. Svo voru eldaðar gómsætar andabringur, ýmiss kon- ar eftirréttir og svo einfaldir réttir eins og eggjakaka og annað slíkt. Þetta var því virkilega fræðandi og skemmtilegt" segir Álfrún. Nánari upplýsingar um námskeið- ið er að finna á www.cookinfrance. com. Metþátttaka Sunnudaginn i3.ágúst næstkom- andi mun Ferðafélag fslands halda í heljarinnar hópferð í Þjórsárver. Ferðin, sem unnin er í samvinnu við Landvernd, miðast eingöngu við einn dag ólíkt því sem gengur og gerist þegar farið er í ferðir um Þjórsárver. Að kvöldi laugardagsins n.ágúst mun þó þáttakendum verða boðið til kvöldvöku í Árnesi, þar sem heimamenn og náttúrufræðing- ar munu greina frá undrum Þjórs- árvera í máli og myndum auk þess sem fólki gefst tækifæri til að hittast áður en haldið er í ferðina. „Við erum að reyna að gera þetta svolítið létt og skemmtilegt og vilj- um ná til þeirra sem hafa kannski ekki áhuga á að fara í 4-5 daga göngu um Þjórsárver. Yfirleitt eru ferðirnar þangað lengri, svo að þetta er svolítið öðruvísi en gengur og gerist. Þetta svæði hefur mikið verið í umræðunni en fæstir hafa komið þangað og kannski bara séð myndir. Nú er tilvalið tækifæri til að kynnast svæðinu af eigin raun í dagsferð og fá meiri tilfinningu fyr- ir því hvað verið er að tala um,“ segir Páll Guðmundsson, framkvæmda- stjóri Ferðafélags íslands. Hann seg- ir sömu göngu í fyrra hafa heppnast afar vel og því var afráðið að halda í aðra þetta árið. „Við fórum með 220 manna hóp í fyrra og nú er búist við metþátttöku. Það verður ekkert lok- að fyrir ákveðinn fjölda - við bara bætum við rútum." Ferðalangar til messu í Biskupsþúfu Árla sunnudags verður lagt upp frá Árnesi og ekið að Hrauneyjum, áfram Sprengisandsleið og inn á Kvíslaveituveg. Þaðan er farið í Þúfu- ver, um freðmýrarústir, áleiðis að Biskupsþúfu. „1 Biskupsþúfu er stórkostlegt út- sýni yfir Verin vestan Þjórsár. Þaðan sést vestur í Kerlingafjöll, Hjartafell, Arnarfell, Hofsjökul, Vonarskarð og Hágöngur. Sóknarpresturinn í Árnesi ætlar svo að messa fyrir okk- ur á Biskupsþúfu áður en ferðinni er haldið áfram í Eyvindakofaver," segir Páll og bætir við að messan sé til þess að auka á fjölbreytileika ferðarinnar. „Þetta er auðvitað eng- in kristniboðaferð en það verður skemmtilegt að hafa smá messu. Þetta verður bara bæn og sálmur, sem kryddar aðeins ferðina og verð- ur ánægjuleg stund.“ Hægt er að bóka sig íferðina um Þjórsárver fram að ío.ágúst hjá Ferðafélagi tslands. Gómsætar uppskriftir.... Pönnusteikt andabringa með grænmeti og sítrussafa Notið safann og rifinn börkinn af: • 1 lime • 1 sítrónu • 1 appelsína • 300 ml kjúklingasoð • 1 glass af þurru hvítvíni • 1 tsk. brúnn sykur • 12 litlar gulrætur (baby carrots) • Handfylli af frönskum baunum (har- icots verts) • Brokkolí • 150 g smjör • 4 andabringur • Sjávarsalt • Svartur pipar Safinn og skinnið af sítrusávöxtun- um sett í pott ásamt kjúklingasoðinu, hvítvíni og sykri. Látið malla í 20 mínútur þar til vökvinn hefur minnk- að um 2/3. Setjið smjörið út í, saltið og haldið heitu. Látið þó ekki sjóða. Skerið gulræturnar 1 cm strimla og sjóðið í 3 mínútur eða þar til þær eru mjúkar. Gerið hið sama við baunimar og brokkolí. Setjið salt og pipar á andbringurnar. Hitið pönnu og setjið olíu á. Setjið bringurnar á og steikið í 1 mínútu. Snúið þeim við og eldið í 6-8 mínútur. Setjið grænmetið á pönnuna og steik- ið rétt aðeins í smá ólífuolíu í eina mínútu. Skerið bringurnar í 5-6 litla bita hverja og berið fram með grænmet- inu og sósunni. ís með svörtum pipar • 300 ml mjólk • 150 ml þeyttur rjómi • 3 teskeiðar nýmalaður svartur pipar •110 strásykur • 6 eggjarauður Mjólk og rjómi sett í pott og svarti piparinn hrærður saman við. Hitað að suðu og svo látið malla í 5 mínút- ur. Slökkt undir og látið standa með loki í klukkustund. Hitað upp aftur og sykri bætt við, hrært þar til sykurinn er uppleystur. Hitað að suðu og svo hellt yfir eggja- rauður í hitaþclinni skál og hrært stöðugt þar til góðri þykkt er náð. Kælið. Setjið ísinn í box og inn í frysti í klukkustund. Hrærið í honum með gaffli á hálftíma fresti og setjið ísinn í frysti á milii þar til góðri áferð er náð. hilda@bladid.net um Banana Boat ef þú vilt kröftugan Aloe Vera eða E-vítamin varasalva með hárri sólvöm, #30. Líka ef þú viít bragðgóðan ávaxta- eða berja varasalva. Banana Boat SJÁLFBRUNKUKREMIÐ sigraði í visindalegri samanburðar- rannsökn bandaríska timaritsins Glamour: • Dekkir vel • 100% laust við appelsinugulan tón • Alltaf eðlilegur sólbrunkutónn • Engir flekkir • Fæst bæði í kremfbrmi og i úðabrúsa • Hagstætt verð Banana Boat dökksólbrunkukremið (Dark Tanning Lotion) gefúr falLega dökkbrúnan tón um leið og húðin er nærð með rakagefandi jurtum og Lægstu sólvörn i kremi, 4. Banana Boat djúpsólbrunkugelið (Deep Tanning GeL) - stundum kallað gulrótargelið - gefúr endingargððan brons- sólbrunkutón um leið og húðin er styrkt með A- vitamini og lægstu sólvöm i geLi, 4. Biddu um Banana Boat ef þú viLt SÓLBRUNKUFESTANDI After Sun Body Lotion. • Viðheldur æskuljóma húðarinnar. • 2 stærðir, 470 ml og 230 ml GULA BANANA B0AT E-gelið er lausn fyrir marga exem- og psoriasissjúklinga. • Hentar vel í hársvörð (fitu- og oliufritt). • Hindrar myndun þurra húð- flagna. • Slær á kláða • Prófaðu lika sænska Naturica Ört+ kremið frá Birgittu Klemo. Stífl skiptir máli Biddu um Banana Boat ef þú vilt TVÖFALT MEIRA MAGN af hreinu Aloe Vera geli á HELMINGI LÆGRA VERÐI • Græna Banana Boat hreina Aloe Vera gelið gengur allt inn í húðina á innan við 40 sek. • Græðir og kælir Aloe Vera umboðið 897 1784 Fæst í apótekum og heilsubúðum á sólbaðs- og snyrtistofum M/.$ ffukfwrfrktf, Ítúúihr&jfifóS/ýx Tryggðu þér eintak á næsta sölustað 77 Undirbúningur bílferöaiag m Gönguleiðir við tjaldsvæöi Fréttir og fróðleikur Skagafjörður - Hvað er í boði? Bæjarhrauni 22 • 220 Hafnarfjörður • Simi: 565 6500

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.