blaðið - 29.09.2006, Side 2

blaðið - 29.09.2006, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2006 blaöið VEÐRIÐ I DAG Vindasamt Norðaustan 10 til 18 metrarásekúndu. Súld eða rigning á köflum en þurrt að kaila á Vesturlandi. Hiti 5 til 15 stig, hlýj- ast suðvestanlands. ÁMORGUN Strekkingsvindur Strekkingsvindur úr norðaustri en úrkomulítið vestanlands. Hægara annars staðar og væta Hiti 5 til 10 stig. VÍÐAUMHEIM 1 Algarve 23 Amsterdam 18 Barcelona 26 Berlín 21 Chicago 8 Dublin 15 Frankfurt 23 Glasgow 14 Hamborg 22 Helsinki 12 Kaupmannahöfn 19 London 20 Madrid 24 Montreal 9 New York 15 Orlando 20 Osló 16 Palma 26 París 21 Stokkhólmur 16 Þórshöfn 11 Forvarnardagurinn: Forsetahjón í grunnskóla Forvarnardagurinn var haldinn hátíðlegur í gær í öllum grunn- skólum landsins. Skólabörnum voru kynnt nokkur heillaráð sem ætlað er að forða börnum og unglingum frá fíkniefnum. Heillaráðin hafa verið send inn á hvert heimili í landinu. Dagurinn er haldinn að frumkvæði Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Islands, og í gær heimsótti hann Heiðarskóla í Keflavík og Njarðvíkurskóla ásamt konu sinni, Dorrit Mouss- aieff. Forsetahjónin ræddu við nemendur og kennara í skólun- um um gildi forvarna. Konfúsíusismi: Konur komast á ættartré í fyrsta sinn í tvö þúsund og fimmhundruð ár hafa þeir sem aðhyllast konfúsíusisma viður- kennt kvenkyns afkomendur hins mikla spekings. Ættartré Konfúsíusar verður uppfært og gerð verður grein fyrir þeim niðjum hans sem tilheyra kven- kyni. Að sögn Kongs Dehongs, sem er kominn af spekingnum og sér um að uppfæra ættartréð, eru tímarnir breyttir og því mik- ilvægt að viðurkenna jafnrétti kynjanna. Konur eru ekki hátt skrifaðar í hefðbundnum fræð- um Konfúsíusar og þeim gert að hlýða skipunum karlmanna. Mengunarský yfir Reykjavík Umferðin mengar hlutfallslega meira hér en annars staðar. Koítvisýringsmengun'frá samgöngum ikill útliiástur frá bílum í borginni úrbætur Eftir Gunnar Reyni Valþórsson gunnar@bladid.net Losun koltvísýrings vegna sam- gangna á hvern íbúa er næstmest í Reykjavík samkvæmt mælingum í sjö stórborgum á Norðurlöndum. Aðeins í Málmey í Svíþjóð er meng- unin af völdum umferðar meiri. Reykjavík kemur hins vegar vel út þegar litið er til koltvísýrings- mengunar í heild sinni en losunin er minnst þar þegar allir þættir eru teknir með eins og kynding og iðnaður. Formaður umhverfissviðs segir nauðsynlegt að fá fólk til að hvíla einkabílinn og notast í meira mæli við reiðhjól og strætó. Fleiri bílar með stærri vélar í rannsókninni var losun koltví- sýrings mæld í öllum höfuðborgum Norðurlandanna auk sænsku borg- anna Málmeyjar og Gautaborgar. Sérstaða Reykjavíkur er sú að um 95% mengunarinnar má rekja til samgangna en mengunin hefur auk- ist mest í Gautaborg og í Reykjavík frá árinu 1990. I fréttatilkynningu frá umhverf- issviði borgarinnar kemur fram að aukninguna í Reykjavík megi Hvetur fólk til að taka strætó eða nota reiðhjólið Gísli Marteinn borgarfulltrúi líklega helst rekja til þess að bíla- flotinn hafi stækkað auk þess sem bílar með stórar vélar hafi notið vinsælda. Gísli Marteinn Baldurs- son, formaður umhverfisráðs borg- arinnar, segir að Reykjavík komi vel út í samanburðinum. „Við erum ekki að losa mikið af koltví- sýringi út í andrúmsloftið,“ segir hann. „En vondu fréttirnar eru hinn mikli útblástur frá bílum hér í borginni.“ Gísli segir að þessi staðreynd einfaldi hins vegar lausn málsins. „Við þurfum annars vegar að kappkosta að fá borgarbúa til að ferðast meira um á umhverfis- vænum bílum. Hins vegar ætlum við í nýjum meirihluta að fjölga farþegum í strætó og hvetja fólk til að nota reiðhjólin sem eru stór- góður samgöngumáti eins og Kaup- mannahafnarbúar vita.“ Engin áætlun til um úrbætur? Greintvarfráþessumniðurstöðum á ráðstefnu borganna sem nýlega var haldin í Kaupmannahöfn. Þar kom einnig fram, að allar borgirnar eru með langtímaáætlun um það hvernig draga megi úr losun koltvísýrings, að Reykjavík undanskilinni. Hjalti J. Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri hjá umhverfissviði, segir þetta vera staðreynd. „Þetta er eitthvað sem við eigum eftir að búa okkur til. Hinar borgirnar standa okkur einfaldlega framar og ég tel að það sé komið mál til að við förum að búa okkur til áætlun af þessu tagi,“ segir Hjalti en bætir því við að þetta sé ákvörðun fyrir stjórnmálamennina. Gísli Marteinn segir þetta ekki allskostar rétt, langtímaáætlun sé vissulega fyrir hendi. „Ég gerði nú athugasemd við þessa niðurstöðu á ráðstefnunni,“ segir Gísli. „Við erum með áætlun um að fjölga fólki í strætó, fjölga fólki á hjólum og fjölga fótgangandi vegfarendum. Þessar áætlanir hafa komið fram í samgönguáætlun borgarinnar og þær koma fram í málefnasamningi nýs meirihluta. Það eru því áætlanir ígangi.“ Tekjur ríkisins: Meiri pening- ur í ríkissjóö Tekjur ríkissjóðs á fyrstu átta mánuðum þessa árs jukust um 27 milljarða miðað við sama tímabil í fyrra. Þetta kemur fram í greiðsluuppgjöri ríkissjóðs sem fjármálaráðu- neytið birti í gær. Alls námu tekjur ríkisins 246 milljörðum á fyrstu átta mánuðum ársins og þar af voru skattar á tekjur 79 milljarðar eða um 30%. Þá nam innheimta almennra veltu- skatta um 117 milljörðum og var stærsti einstaki liður þeirra skatta vörugjöld af ökutækjum. Farsímanotkun: Senda færri SMS-skeyti Islendingar senda að jafnaði mun færri SM§-skeyti á dag en aðrar Norðarlandaþjóðir samkvæmt nýjegri skýrslu norrænna samkeppnisyfirvalda. Aðeins Svíar senda færri skeyti. í skýrslunni kemur fram að Islendingar senda að meðaltali um 1,6 SMS-skeyti á dag eða um 600 á ári. Danir eru duglegastir við skeytasendingarnar með um 1.600 skeyti á ári og Norð- menn koma þar á eftir með um þúsund. Finnar eru á svipuðu róli og íslendingar með um 600 skeyti en Svíar eru sparsamastir og senda rétt rúmlega 200 skeyti á ári hverju. hvar sem er og hvenær sem er. ♦áskrifendur skuldbínda sig í 12 mánuðí j J Mícrosoft LoP PowerPoint ÖMicrosoft Excel j *“J MlCÍOSOtt 4___1 FrontPage Lotus. notes v-Al—, Míciosoit q qQutlook Microsolt Sftí Word Mícrosoft SrJ Access \doh ‘Photoshop 2011* TOLVUNAMí TOLVUNAM.I Einsdæmi að ferma aðeins þá sem skráðir eru í Þjóðkirkju Stefna er að þjóna öllum „Meginregla hefur alltaf veri að að- stoða þá sem til Þjóðkirkjunnar leita,“ segir Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, starfsmaður Biskups- stofu, vegna þeirrar stefnu Digranes- kirkju að ferma eingöngu þá sem eru skráðir í Þjóðkirkjuna. Prestur Fríkirkjunnar sagði þetta siðlaust af hálfu Þjóðkirkju. Hún eigi að þjóna öllum í umdæmi kirkjunnar. Að sögn Steinunnar hefur Þjóðkirkjan þjónað mörgum öðrum trúarbrot- um og stefna Digraneskirkju sé eins- dæmi. „Þjóðkirkjan hefur unnið gott starf varðandi sorgarúrvinnslu og fleira þó svo að um önnur trúar- brot sé um að ræða,“ segir hún. Hún segir vandsvarað hvort Biskupsstofa hlutist til um stefnu kirkjunnar. Þjóðkirkjan fyrir alia Að sögn Steinunnar Arnþrúðar Björnsdóttur er það stefna Þjóökirkjunnar að þjóna öll- um sem leita til hennar

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.