blaðið - 29.09.2006, Blaðsíða 24

blaðið - 29.09.2006, Blaðsíða 24
24 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2006 blaðiö fólk folk@bladid.net HVAÐ FINNST ÞER? Hvað finnst þér um nýjan þjálfara á Skaganum? „Þetta verður að minnsta kosti stuð. Það eru ekki allir Skagamenn sáttir, en það er alltaf gaman þegar það er stuð." Ólafnr Páll Gnnnarsson, dag- skrárgerðarmaÖur á Rás 2 Guðjón Þórðarson var í gær ráðinn þjálfari Skagamanna i knattspyrnu. HEYRST HEFUR... Aðdáendur tónlistarmann- anna Stefáns Hilmars- sonar og Eyjólfs Kristjáns- sonar hafa ástæðu til að gleðjast því að í haust er von á nýrri plötu frá þeim félögum. Þetta er fyrsta plata sem þeir senda frá sér þrátt fyrir að hafa starfað saman öðru hverju frá því að þeir tóku þátt í Söngvakeppni evr- ópskra sjónvarpsstöðva með laginu Nínu árið 1991. Á nýju plötunni mun einmitt vera að finna nýja útgáfu af lag- inu góða en að öðru leyti sam- anstendur platan af gömlum er- lendum slögurum frá áttunda áratugnum sem settir hafa verið í íslenskan búning. Kastljósstjórnandinn Sigmar Guðmundsson blandar sér í umræðuna um persónunjósnir og símahler- anir á bloggsíðu sinni. Telur Sig- mar umræð- una góðra gjalda verða en bendir jafnframt á annað brýnt hagsmuna- mál fyrir borgara landsins sem brýnt sé að hulunni verði svipt af. Á hann þar við Svarta listann ógurlega sem hann segir að sé vel þekktur í ýmsum kreðsum þjóðlífsins. „Ég er að sjálf- sögðu að tala um SVARTA LISTA myndbandaleiganna. Þessi helvítis listi hefur gert það að verkum að Þóra fer aldrei útá leigu, bara ég. Stöðvum þetta óréttlæti, strax!“ segir Sigmar. Nú er að bíða og sjá hvort orðið verði við ósk Sigmars þannig að Þóra Tómasdóttir, unnusta hans og samstarfskona, komist aftur út á myndbandaleigu. Skelfilegar fj Guðjón Friðríi segirað Einar upp við skelfil í Elliðavatnsbí kylduaðstæður 1 n sagnfræðingur nediktsson hafi alist r fjölskylduaðstæður Guðjón Friðriksson sagnfræðingur leiðir á morgun göngu um bernsku- slóðir þjóðskáldsins Einars Benedikts- sonar við gamla Elliðavatnsbæinn í Heiðmörk. Guðjón segir að Einar hafi búið þarna fyrstu sjö ár ævi sinnar við skelfilegar fjölskylduaðstæður. „Foreldrar hans voru við það að skilja og það var mikið fyllirí á karl- inum. Þau skildu upp úr þessu og Einar varð eftir hjá föður sínum. Einar fékk sullaveiki þarna sem barn sem herjaði á hann nánast alla ævi,“ segir Guðjón og bætir við að staður- inn tengist einnig voveiflegum at- burðum í ævi Einars. „Ólafur Haukur, yngri bróðir hans, var orðinn rúmlega tvítugur þegar hann ætlaði að taka við búskap á Ell- iðavatni en drukknaði í álnum beint fyrir framan bæinn sem nú er horf- inn undir vatnið. Sveinn eldri bróðir hans dó í æsku á Elliðavatni þannig að þetta var síðasti bróðirinn,“ segir Guðjón. Áveituframkvæmdir föðurins Guðjón segir að Benedikt Sveins- son faðir Einars hafi beitt sér fyrir miklum framkvæmdum á Elliða- vatni svo sem byggingu bæjarins og áveituframkvæmdum. „Landslagið hefur breyst mjög mikið. Stíflugerð hefur stækkað vatnið um næstum helming og upphafið að því voru eig- inlega áveitur sem Benedikt Sveins- son, faðir Einars, lét gera. Hann hlóð þarna stíflugarð og veitti vatni á engjar sem voru þarna áður,“ segir Guðjón. Dagskráin fer aðallega fram inni í gamla steinhúsinu. Húsið hefur verið tekið í gegn að utan en er óinnréttað og sést gamla stein- hleðslan mjög vel en á bak við hana er ákveðin saga sem Guðjón ætlar að segja ásamt fleiri sögum. „Benedikt Sveinsson var skap- bráður maður. Hann fékk íslend- ing til að hlaða húsið en það samd- ist ekki með þeim þannig að hann rak hann á miðjum vetri. Senni- lega hefur Benedikt sjálfur hlaðið það sem eftir var með húskörlum sínum og maður sér hvernig hleðslan er miklu verri eftir að hann tók við.“ Elsta vísa Einars Guðjón mun einnig fara með kvæði Einars, Móðir mín, sem hann orti um móður sína látna. „Þar koma fyrir smámyndir úr æsku hans sem tengjast Elliðavatni. Ég ætla líka að lesa annað kvæði sem er eins konar frumbernsku- minning sem ég held mikið upp á. Það er einnig til ein vísa sem hann er talinn hafa ort þarna sem barn. Hún er frekar frumstæð en er það elsta sem vitað er um eftir hann,“ segir Guðjón Friðriksson að lokum. Gangan hefst klukkan 11 í gömlu „hlöðunni“ í Elliðavatnsbænum þar sem Einar fæddist árið 1864. SUDOKU talnaþraut Lausn síðustu gátu: Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hvertala komi ekki nema einu sinni fyrir (hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem Uþþ eru gefnar. Gáta dagsins: 9 6 4 3 7 1 7 5 2 4 1 4 6 1 6 9 4 2 1 5 3 8 9 7 3 5 9 7 4 9 8 3 5 5 8 2 6 9 4 7 1 3 6 9 3 5 1 7 4 2 8 4 7 i 8 2 3 9 5 6 9 1 5 2 4 8 3 6 7 7 6 4 3 5 1 8 9 2 2 3 8 7 6 9 1 4 5 1 5 7 9 3 6 2 8 4 8 4 6 1 7 2 5 3 9 3 2 9 4 8 5 6 7 1 eftir Jim Unger 11-21 © Jim Unger/dist. by United Medla, 2001 Áttu einhverjar bækur með stórum og góðum litmyndum í og henta vel til að ramma inn? A förnum vegi Gekkstu með Ómari? Ágúst Dúason, nemi Ha? Nei. Hvaða göngu? Ólafur Alexander Jóhannsson, nemi Nei, ég nennti ekki að fara. Kristján Þórisson Nei, ég er mjög ánægður með þessar virkjanir. Halldóra Magnúsdóttir. Nei, því miður. Ég komst ekki. Egill Egilsson, kennari Já, ég fór. Þetta var mjög ánægju- legt, en hefði átt að gerast þrem- ur árum fyrr.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.