blaðið - 29.09.2006, Blaðsíða 36

blaðið - 29.09.2006, Blaðsíða 36
36 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2006 blaðiö ithrottir@bladid.ne1^ Skeytin inn I o vodat°r %:sm Biðjist afsökunar Samtök samkynhneigöra hafa krafist þess að Paul Scholes biðjist opinberlega afsökunar á að hafa látið niðrandi orð falla um samkynhneigða í leik Manchester United og Benfica á þriðjudags- kvöld. Scholes fékk að lita gula spjaldið á 10. mínútu í leíknum og á að vera sekur um niðrandi munnsöfnuð um samkynhneigða í kjölfarið. Evrópska knattspyrnusambandið hefur ekki fengið leikskýrslu senda en ólíklegt þykir að sambandið grípi til aðgerða nema kvörtun berist. Vinnusemi, þrautseigja og agi næstu þrjú árin: Mynd/Kristinn Kóngurinn snýr aftur Pláss fyrir framfarir hjá ÍA Arnar og Bjarki fara Samuel Eto’o var bor- inn af leikvelli eftir 65 mínútur í leik Barcelona og Werder Bremen á miðviku- dagskvöld vegna meiðsla. Eto’o var að senda boltann og fékk vitlaust álag á hnéð með þeim afleiðingum að liðþófi rifnaði. Búast má við að Eto’o verði frá í tvo til þrjá mánuði. Harry Redknapp, stjóri Portsmouth, hefur komið til varnar fyrrver andi aðstoðarþjálfara Kevins Bond sem rekinn var frá Newcastle fyrr í vikunni. „Það er erfitt að finna eins ærlegan mann og Kevin Bond. Hann er Éfrábær þjálfari og honum myndi aldrei detta í hug að jgera nokkuð af sér. Það 1 |va eina sem hann er mögu- lega sekur um er að vera of vænn maður. Hópum áhangenda West Ham og Palermo lenti saman á Sikiley fyrir Evrópuleik liðanna í gærkvöld og voru tveir áhangendur West Ham handteknir. Flöskum, glösum og stólum var grýtt milli hópanna áður en lög- reglan náði að skerast í leikinn. Áhangendum West Ham var komið upp í rútu og þeir keyrðir úr miðbænum. 2.500 áhangendur West Ham voru á Sikiley í tilefni af leiknum í gærkvöld. Guðjón Þórðarson og Gísli Gísla- son, nýr formaður rekstrarfélags ÍA, skrifuðu undir samning í höf- uðstöðvum KB banka í hádeginu í gær um að Guðjón þjálfi Skaga- liðið næstu þrjú árin. Guðjón sagði eina meginástæðu þess að hann ákvað að snúa aftur til Akraness vera stórbætta aðstöðu til knatt- spyrnuiðkunar í bænum, en verið er að leggja lokahönd á byggingu fjölnota íþróttahúss á Akranesi sem tekið verður í notkun eftir þrjár vikur þegar fyrsta æfing Guð- jóns með ÍA-liðinu er á dagskrá í Akraneshöllinni. „Þetta litla orð, agi, er upphaf árang- urs,” sagði Guðjón Þórðarson, nýráð- inn þjálfari knattspyrnufélagsins í A. Guðjón hét því að koma Skagaliðinu aftur í röð þeirra fremstu á íslandi og ótækt væri að þetta veldi væri í hremmingum að reyna að bjarga lífi sínu í efstu deild í lok leiktíðar. Guð- jón kvaðst ætla að vinna með þann hóp sem nú væri til staðar hjá félag- inu og engar leikmannaráðningar væru fyrirséðar í nánustu framtíð. Hann sagði ÍA-liðið hafa á að skipa víðum hóp ungra og efnilegra leik- manna í bland við eldri og reyndari sem gott væri aðbyggja á. „Við erum með góðan hóp leik- manna til að ná arangri, en arang- urinn næst ekki nema með vinnu- semi, þrautseigju og aga. Verkefnið verður erfitt, en það er vel yfirstíganlegt ef menn eru tilbúnir að leggja á sig það sem þarf.” Þetta voru meðal gamalkunnra orða sem hljómuðu á fundinum. Aðspurður um álit sitt á því hvernig ÍA-liðið kæmi undan stjórn Ólafs Þórðarsonar, fyrrverandi læri- sveins síns hjá ÍA, sagði Guðjón var- færnislega að sér sýndist pláss vera fyrir framfarir hjá liðinu. Guðjón kvaðst koma vitrari og reyndari til leiks en þegar hann gerði ÍA að íslandsmeisturum fyrir sléttum tíu árum. „Ef ég var góður þjálfari fyrir tíu árum er ég miklu mun betri núna. Ég hef verið á vettvangi sem er miklu grimmari og harðari en hérna heima. Sú reynsla sem ég öðlaðist þar er ekki tínd upp I úr fjörugrjótinu,” sagði Guðjón. Með sambönd í Englandi Um leikmanna- mál sagðist Guðjón ekki mundu taka þátt í kapphlaupi við FH, Val og KR um leikmenn og útilokaði ekki að hann myndi nýta sér þau sambönd sem hann hefði komið sér upp í Englandi meðan hann dvaldi þar við knatt- spyrnustjórn. „Ég kynntist mörgum góðum og efnilegum leikmönnum í Bretlandi og að leikmaður þaðan verði með ÍA næsta sumar er eitt- hvað sem vel getur komið upp,” sagði Guðjón. „Það er hins vegar nægur tími til stefnu og ég ætla fyrst að reyna til þrautar hvað ég get gert með þann leikmannahóp sem nú er til staðar hjá félaginu.” Aðeins einn leikmaður er með lausan samning hjá ÍA, en það er miðjumaðurinn Igor Pesic sem far- inn er heim til Júgóslavíu. Gísli sagði að rætt yrði við hann um framhaldið. Annar óvissuþáttur sem nefndur var á fundinum var framtíð Arnars og Bjarka Gunnláugssona en samvinna tvíburanna og Guðjóns hefur ekki verið án vandræða í gegnum árin. í samtali við Blaðið fullyrti Arnar að þeir bræður yrðu ekki áfram hjá Skagaliðinu. „Ef við hefðum verið beðnir að þjálfa liðið hefðum við skoðað það, en Guðjón var ráðinn og við munum ekki spila með liðinu á næsta ári,” sagði Arnar. Hvort þeir hygðust leita sér að öðru liði fyrir næsta tímabil vildi Arnar engu um það svara, sagði tímabilið aðeins ný- afstaðið og nógan tíma vera til slíkra ákvarðana, en að hann eða þeir bræður myndu taka að sér þjálfun á næsta tímabili væri mjög ólíklegt. Talsmenn DC United í bandarísku knattspyrnu- deildinni gefa lítið fyrir þær sögusagnir að Freddy Adu sé á Ieið til Reading og full- yrða að hann sé ekki á förum. Adu er aðeins sautján ára gamall og þykir gríðarlegt efni. Reading eru sagðir spenntir fyrir því að fá Freddy Adu til liðs við sig og fyrrum liðs- félaga sína hjá DC United, vængmanninn Bonny Convey og markvörð- inn Marcus Hahne- Liverpool hlaut í gær styrl frá Evrópusambandinu upp á níu milljónir pund eða tæplega 1,2 milljarða íslenskra króna. Styrkurinn er eyrnamerktur byggingu nýs leikvangs Liverpool í Stanley Park en frestur félagsins til að sýna borgaryfirvöldum í Liverpool fram á að það eigi 23,5 millj- arða íslenskra krón til að geta hafið byggingu á nýjun Ieikvangi, rennui út á morgun, 30. september. Claudio Ranieri, fyrrverandi knattspyrnustjóri Chelsea, segist ekki mundu hika ef Ken Bates, stjórnarformaður félags- ins, hefði samband við hann og byði honum stjórastöðu Leeds sem hafa verið stjóralausir á aðra viku eftir brottrekstur Kevins Black- wells. „Ken þekkir mig vel. Ef Ken vill Claudio, þá á hann að hringja i Claudio. Ég myndi koma Leeds upp í efstu deild að nýju en mark- mið mitt væri að koma þeim aftur í Evrópu- keppnina,” sagði Ranieri í viðtali við bresku pressuna í gær og kvaðst að auki spenntastur fyrir að vinna í Englandi. Marcus Allback, framherji FC Köbenhavn, sagðist eftir leik Kaupmannahafn- arliðsins og Glasgow Celtic ekki hafa verið hrifinn af spilamennsku Thomasar Gravesens. „Ég lenti einu sinn gegn honum í leiknum og hann var svo hræddur við að tækla mig að hann skýldi sjálfum sér. Þegar ég spurði hann af hverju hann A væri svona hræddur við ***' 4 að fara á fullri ferð í migvarfátt um svör, en hann tók því ekki vel,” sagði Allback. % Celtic vann leik- 1 mn 1-0. "T A 7’ayneRooneyhefurtekið \l\l úttveggjaleikjalandsliðs- V V bannið sem hann hlaut eftir rauða spjaldið sem hann fékk eftir samskipti sín við liðsfélaga sinn Cristiano Ronaldo í undanúrslitaleik HM í sumar. Steve McClaren tilkynnir um helgina liðið sem mætir Make- dóníumönnum og Króötum í október og er ekki talið líklegt að Beckham verði kallaður til þótt skortur sé á miðjumönnum í liðinu, en Aaron Lennon og Owen Hargreaves eru báðir frá vegna meiðsla. Breskir sparksérfræðingar veðja á að Jermaine Pennant hjá Liverpool verði tekinn inn í hópinn fram yfir Beckham.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.