blaðið - 29.09.2006, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2006
blaðið
UTAN ÚR HEIMI
ÍSRABL fVj
Fundur yfirvofandi
Ehud Olmert, forsætisráðherra ísraels, hefur lýst
því yfir að hann muni funda meö fulltrúum palest-
ínsku heimastjórnarinnar á næstu dögum en varar
menn við því að búast við miklum árangri af þeim
fundarhöldum í fyrstu.
prar :
Fornir dýravinir
Indíánar sem bjuggu í Perú til forna virðast hafa
verið miklir dýravinir. Nýlega fundu fornleifafræð-
ingar fornan dýragrafreit og af honum má ráða af
indíánarnir hafi grafið hunda sína og látið þá fá hlý
teppi og mat til að gera hina hinstu för þægilegri.
Giuliani ver Clinton
Rudy Giuliani, fyrrverandi borgarstjóri New York, hefur komið Bill Clinton
til varnar. Giuliani segir að gagnrýni á Clinton fyrir að hafa gert of lítið til að
koma í veg fyrir hryðjuverkaárásirnar í forsetatíð sinni ömakiega og óréttláta.
Giuliani segir að Clinton, rétt eins og George Bush núverandi Bandaríkjafor-
seti, hafi gert það sem þeir gátu miðað við þær upplýsingar sem þeir höfðu.
Flug til Vestmannaeyja:
Von á samkomulagi
Vonir standa til þess að búið
verði að finna bráðabirgðaaðila til
að sjá um flugleiðina milli Reykja-
víkur og Vestmannaeyja á næstu
dögum. Vegagerðin vinnur að
samkomulagi við flugaðila fyrir
hönd samgönguráðuneytis og
samkvæmt upplýsingum þaðan
er unnið að málinu eins hratt og
kostur er.
Flugfélagið Landsflug hætti
reglulegu áætlunarflugi til Vest-
mannaeyja síðastliðinn sunnudag
þar sem flugleiðin bar sig ekki
lengur. 1 kjölfarið ákvað ríkis-
stjórnin að bjóða út flugleiðina
gegn ríkisstyrkjum og er reiknað
með að formlegt útboð fari fram í
byrjun næsta árs.
Mora Temp
Handlaugartæki með
lyftitappa, mjúkar línur
og þægindln í fyrirrúmi,
Ifð Kreta m/nuddi
Falleg hönnun sem
skapar vellíöan fyrir
alia fjölskylduna.
Mora Marena
Hitastillt sturtutæki með
ömmustöng, sturtuhaus
og tilheyrandi búnaði.
I tilefni af 25 ára afmæli Tengis bjóðum við afslátt af völdum vörum,
þar á meðal 25% afslátt af sturtuhurðum. Hjá okkur getur þú skapað
baðherbergi drauma þinna en við erum með fjölmörg frábær vörumerki
sem bjóða upp á glæsilega hönnun á baðkerum, hreinlætistækjum og
eldhúsvöskum. Verið velkomin í stórglæsilegan sýningarsal okkar að
Smiðjuvegi 76
HANNAÐU HEIMILIÐ MEÐ TENGI
Opið:
Virka daga
Laugardaga
aii Nú getur þú greitt með léttgreiðslum Euro og Visa - vaxtalaust í 3 mánuði.
................................................................ TCDGI
Smiðjuvegur 76 200 Kópavogur Sími 4141000 Fax4141001 tengi.is
kynningar-
afsláttur af
baðkerum frá
Balteco
20.-30. september
Byssumaður í grunnskóla:
Myrti stúlku
og tók eigið líf
■ Tok sex í gíslingu ■
Vopnaður maður réðst inn í
grunnskóla í bænum Bailey í Kó-
lóradó-ríki í Bandaríkjunum á mið-
vikudag. Maðurinn tók sex börn
í gíslingu og skaut eitt þeirra og
svipti sig lífi þegar sérsveitarmenn
lögreglu réðust inn í skólann til að
yfirbuga manninn. Stúlkan lést
eftir að lögreglumennirnir höfðu
komið henni undir læknishendur.
Nemendur segja að maðurinn
hafi eingöngu sóst eftir að halda
stúlkum í gíslingu og talið er að
hann hafi beitt nokkrar þeirra
kynferðislegu ofbeldi.
Um 460 nemendur sækja grunn-
skólann. f fyrstu tók maðurinn sex
nemendur í gíslingu eftir að hann
réðst inn í skólann stuttu fyrir há-
degi og hóf að skjóta úr byssu sinni
en lét nokkra þeirra úr haldi eftir
að lögregla kom á vettvang og hóf
samningaviðræður við hann. Mað-
urinn, sem hafði sagst vera með
sprengiefni, krafðist þess að lög-
reglan myndi yfirgefa staðinn fyrir
fjögur. Maðurinn hætti öllum sam-
skiptum við lögreglu þegar klukkan
sló fjögur og í kjölfarið var ákveðið
að sérvsveitarmenn myndu ráðast
til atlögu. Um leið og sérsveitar-
i fórnarlömbin
Nöturleg skilaboð Nemendurnir
notuðu farsíma til þess að koma
skilaboðum áleiðis til ættingja sinna
mennirnir réðust inn skaut maður-
inn stúlkuna og sjálfan sig. Lögreglu-
mennirnir fundu skammbyssu og
tóman bakpoka sem maðurinn bar
í skólastofunni þar sem hann hélt
börnunum í gíslingu. Engin sprengi-
efni fundust.
Ekki er vitað hvort maðurinn
hafði einhver tengsl við skólann.
Bærinn Bailey er í um klukkustund-
arfjarlægð frá Columbine en fyrir
sjö árum myrtu tveir nemendur
skólans þrettán manns og særðu 21
í nöturlegri atburðarás áður en þeir
sviptu sig lífi.
/
Tessa eikarhúsgögn á betra verði
Skenkur
48x154x90 Kr. 79.000,-
48x200x90 Kr. 130.000,-
Leðurstóll bicast
Eikarfætur Kr. 15.900,-
Borðstofuborð
210x100x75 Kr. 99.000,-
200x90x75 Kr. 69.000,-
160x90x75 Kr. 59.000,-
Tessa vörurnar eru dönsk hönnun
úr gegnheilli olíuborinni eik og
afhendast samsettar.
Sófaborð Lampaborð
140x70x45 Kr. 39.000,- 70x70x45 Kr. 29.000,-
110x65x43 Kr. 35.000,- 55x55x43 Kr. 23.000,-
100x100x52 Kr. 39.000,-
Sjónvarpsskápur
48x158x58 Kr. 59.000,-
Glerskápur
48x108x150 Kr. 79.000,-
48x108x200 Kr. 99.000,-
Jiuiíflcnfl Jitimiiií
Fossaleynir 6 - 112 Reykjavík - Sími: 586 1000 - Fax: 586 1034 - www.husgogn.is