blaðið - 29.09.2006, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2006
blaðið
kolbrun@bladid.net
Lífið er of stutt
til að vera lítilfjör-
legt.
Benjamin Disraeli
íitP
tm
Afmælisborn dagsms
HORATIO NELSON SJÓLIÐSFORINGI, 1758
MIGUEL DE CERVANTES RITHÖFUNDUR, 1547
MICHELANGELO ANTONIONI LEIKSTJÓRI, 1912
I átt að fallegu mannlífi
Guðrún Helgadóttir „Ég erupptekin afþvíað styrkja sjálfsvitund barnanna
og beina þeim í áttina að því að verða herraryfir eigin lífi.“
g hef ekki komið nálægt
þessari leikgerð þannig
að Illugi Jökulsson á all-
an heiðurinn af henni
og verkið er líka í góð-
um höndum leikstjórans, Sigurðar
Sigurjónssonar. Ég held að það sé
ekki sniðugt að höfundur geri sjálf-
ur leikgerð eftir verkum sínum.
Það yrði mjög erfitt fyrir mig að
velja hvað ég vildi hafa og hverju ég
vildi sleppa og sennilega yrði þetta
þá sýning upp á fimm tíma,“ segir
Guðrún Helgadóttir rithöfundur en
í kvöld verður frumsýnt í Þjóðleik-
húsinu Sitji guðs englar. Leikgerðin
er byggð á þremur bókum Guðrún-
ar, Sitji guðs englar, Saman í hring
og Sænginni yfir minni.
Frumsýning í herlausu landi
Guðrún er spurð hvort hún hafi
sótt í eigin uppvöxt þegar hún skrif-
aði bækurnar. „Að því leyti til að
þær gerast á þeim tíma þegar ég var
krakki,“ svarar hún. „Upphafið var
það að mér fannst furðulegt hversu
lítið var til af barnabókum þar
sem sjómannafjölskyldur komu
við sögu. Mér fannst að það stæði
mér nær, sjómannsbarninu sjálfu,
að bæta úr þessu. Ég ákvað að slá
tvær flugur í einu höggi og fara
aftur í uppvaxtarár mín og sækja
í andrúmsloftið og umhverfið sem
ég ólst upp í, sem kemur heim og
saman við heimsstyrjöldina. Ég var
fjögurra ára gömul þegar stríðið
skall á og þá breyttist ísland og hef-
ur aldrei orðið eins. Það er dásam-
legt að leikritið skuli vera frumsýnt
um leið og bandaríski herinn fer
af landi brott. Ég fæddist inn í her-
laust land og leikritið verður frum-
sýnt í herlausu landi. Ég hlakka til
þessarar frumsýningar."
Ertu mikil leikhúsmanneskja?
„Ég lék svolítið þegar ég var stelpa
í Flensborg og tók þátt í tveimur
menntaskólaleikritum og lék í þög-
ulli mynd hjá Ásgeiri Long þegar
ég var átján ára. Ég ætlaði mér jafn-
vel að verða leikkona en ég var svo
skrambi lítil að ég missti kjarkinn.
Ég sá fram á að ég yrði aldrei ann-
að en skrípaleikkona. Ég reyni að
fara í leikhús en þegar maður er að
bjástra í ritstörfum hefur maður lít-
inn tíma og gerir alltof lítið af öllu.“
Enginn predikari
Finnst þér að barnabcekur eigi að
hafa boðskap?
„Ég er enginn predikari en mér
finnst sjálfsagt að opna gáttir fyrir
börnin. Ég hef þá kenningu, og er
sannfærð um, að tvær manneskj-
ur, hvað þá ein, eigi ekki að ala upp
börn. Fleiri þurfa að koma að. Ég er
mikil stórfjölskyldukona. Ömmur
og afar, frænkur og frændur eiga að
koma að uppeldinu og dreifa sjónar-
horni barnanna fremur en „alvitrir"
foreldrar sem oftast hafa rangt fyr-
ir sér. Ég skrifa bækur sem meðal
annars eru ætlaðar börnum og vil
að foreldrar leggi á sig að lesa bæk-
urnar með börnunum. Börnin vita
ekkert betra en að njóta einhvers
með hinum fullorðnu því þá vita
þau að maður hefur vandað sig og
er ekki að plata. Auðvitað vill mað-
ur ekki gera börnin að verri mann-
eskjum með því að skrifa fyrir þau
bækur, maður vill heldur ýta þeim
í áttina að fallegu mannlífi. Það
kemur enginn riddari á hvítum
hesti og færir öðrum hamingju.
Maður verður sjálfur að vinna að
hamingjunni. Ég er upptekin af því
að styrkja sjálfsvitund barnanna og
beina þeim í áttina að því að verða
herrar yfir eigin lífi. Ég vona að ég
sé að gera eitthvað í þessa áttina, ef
ég er þá að gera eitthvað af viti.“
Myron Zabol, Cody Moore 2000
-úr sýningunni: "Þjóð hins Dansandi Himins"
Carl Beam, Nýr heimur 1990 -úr sýningunni: "Enn á Flugi''
Joseph Shuqslak, Andlit 1999
-úr sýningunni: "Inúítar"
Þrjár sýníngar á myndlist frumbyggja nútímans í Kanada
Inúítar - Úrval verka frá Þjóðlistasafninu í Québec
Þjóð hins Dansandi Himins - Ijósmyndir eftir Myron Zabol
Enn á Flugi - Verk eftir Carl Beam
LISTASAFN KÓPAVOGS
GERÐARSAFN
BMMMMBMBMMMMBBMBKMBMWMMMMWWMMMWaWWMMMWWMWWMTff’irrri'l'iljnHiHI'nilMllll—aimaæawmiwi