blaðið - 29.09.2006, Síða 28
3 6 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2006
blaðið
I hnotskurn er ég mjög ástrík
stelpa sem elskar aö rokka.
Ég sáekist eftir ævintýrum og elska
aö gera brjálaða hluti. Ég elska fólk
og elska aö vera hamingjusöm."
Þjóðin er ennþá að jafna
sig eftir Rock Star:
Supernova-æðið. Samt
sem áður virðast lands-
menn ekki hafa fengið
nóg af Magna Ásgeirs-
syni og Dilönu Robicha-
ux því það seldist upp á fyrirhugaða
tónleika þeirra á tuttugu mínútum.
Ekki nóg með að aukatónleikar væru
skipulagðir heldur þurfti að bæta
enn öðrum tónleikum við þegar seld-
ist upp á seinni tónleikana.
Dilana var í óðaönn að pakka nið-
ur fyrir fslandsferð sína þegar Blaðið
náði sambandi við hana. „Eg hlakka
mikið til að koma til íslands og það
er frábært að miðarnir hafi selst upp
svona fljótt. Ég ætla líka að reyna að
skoða landið í heimsókn minni og
við ætlum meðal annars upp í fjöll
á snjósleða og í Bláa lónið,“ segir Dil-
ana sem lærði mikið um sjálfa sig í
þáttunum.
„Ég lærði að ég er brjáluð tík. Ég
vissi að ég væri hvöss og ég þagna
ekki en ég áttaði mig ekki á að ég
væri svona brjáluð. Daginn sem ég
tók kast og braut glasið þá sýndu þeir
ekki þegar ég braut 140 þúsund króna
míkrafónkerfi með því að henda því
út um svefnherbergisgluggann. Það
vakti ekki mikla kátínu. Ég vildi
bara að myndavélarnar hefðu látið
mig í friði svo ég hefði getað grátið
í ró og næði. Ef ekki hefði verið fyr-
ir Magna hefði ég sennilega brotið
myndavélina líka því Magni hélt mér
svo fast að ég komst ekki í burtu. Svo
fór hann að kvikmyndatökumönnun-
um og henti þeim út úr herberginu
mínu. Ég held að þeir hafi séð í aug-
um Magna að honum var dauðans
alvara því þeir létu okkur í friði eftir
það.“
Smáskífa innan mánaðar
Dilana segist þrá að komast í frí.
,Ég hef verið í íbúðinni minni í tíu
daga og hef ekki ennþá tekið upp
úr töskunum. Ég hef ekki haft tíma
til þess. Núna er ég að henda öllu úr
einni ferðatösku í aðra svo ég geti
pakkað niður fyrir íslandsferðina.
Þetta er brjálæði en ég hef verið mjög
upptekin, bæði hef ég verið að taka
upp lög, semja lög og svo hef ég verið
að leita mér að umboðsmanni, lög-
fræðingi, viðskiptaráðgjafa og upp-
lýsingafulltrúa. Ég ætla mér samt
ekki að gefa út plötu á næstunni en
ég mun pottþétt gefa út mína fyrstu
smáskífu innan mánaðar. Markmið-
ið er að fara í tónleikaferðir, spila fyr-
ir aðdáendur og gefa út eina smáskífu
á mánuði þar til ég hef gefið út allar
smáskífurnar. Að því loknu mun ég
gefa út plötu. Ég gef út smáskífuna
á Netinu og þannig sker ég milli-
Myiid KimberleeMilIer
muni ég átta mig á þessu. Þá mun
ég sennilega annað hvort hlaupa um
hlíðina eins og brjálaður api eða sitja
þar grátandi og leyfa öllu stressinu
að flæða burt. Það er nánast eins og
þetta hafi verið stór, falleg og vond
martröð.“
gönguaðilann út úr ferlinu, blessuð
plötufyrirtækin sem reyna alltaf að
stela peningunum okkar,“ segir Dil-
ana en tilboðunum rignir yfir hana.
„Magni kemur með mér til Los Ange-
les þegar ég fer af landinu en hann
bauðst til að taka upp lag með mér,
spila á gítar og vera bakrödd. Síðan
munum við Magni fara til Ottowa
í Kanada að spila á tónleikum og á
miðvikudaginn fékk ég tölvupóst
um tónleikaferð til Indlands og Dub-
ai. Við Magni verðum því kannski
þar í desember og apríl þvi ég bauð
honum með.“
Falleg martröð
Lukas Rossi var valinn söngvari
Supernova og Dilana segir Tommy
Lee og félaga hafa valið þann rétta.
„Ég er alls ekki vonsvikin og er svo
ánægð með að vera í þeirri stöðu
sem ég er í núna því ég er minn yf-
irmaður. Ég get sungið það sem ég
vil syngja og spilað þar sem ég vil
spila. Þetta er mitt verkefni en ekki
verkefni Tommy Lee. Ég er því mjög
ánægð. En vitanlega komu stundir
þar sem ég hélt að ég myndi vinna
þetta og svo voru stundir sem ég hélt
að ég yrði rekin út í þriðju vikunni.
Almennt bjóst ég við að ég kæmist
frekar langt,“ segir Dilana og bætir
við að þegar hún lítur til baka á þessu
reynslu sé hún mjög fjarstæðukennd.
„Ég held ég sé ekki ennþá búin að
átta mig á þessu. Enda hef ég verið
á hlaupum síðan þættinum lauk. Ég
held að þegar ég komi til íslands, sitji
á fjallstindi og horfi yfir dalinn þá
Viltu læra allt um iSflur? * ,
Hjá Naglafegurð eru námskeið áð)hefjast í alþjóö-
lega naglaskólanum “lcélandic éeaut/',
Kennt er á Ez-flow akrýl jogjBflMfyrsta og
háþróaðasta ameríska naglagfejlð/3®**1®*
Námmtrryigirgóður vörupakkrsem iqfiirffeldur allt
sem til þarf i
Alþjóðlegt diplómá^S^^loknu sem er tekii
í 65 löndum. **l^HP*i
Naglaskoli
Stórholti 1 • Sími 561-9810
www.naglafegurd.is
Vill búa á islandi
í síðasta þætti Rock Star: Superno-
va lofaði Gilby Clarke að hann myndi
hjálpa Dilönu að útsetja plötu. Dil-
ana segist samt sem áður ekki vilja
að Gilby Clarke útsetji öll hennar lög.
„Ég tók upp Ring of Fire með honum
því aðdáendur mínir höfðu grátbeð-
ið mig að taka lagið upp. En ég vil
ekki að hann geri öll lögin mín því
ég vil vinna með alls kyns fólki. Ég
hitti nýlega framleiðanda hljómsveit-
arinnar Three Days Grace og við ætl-
um að vinna eitthvað saman. Auk
þess er ég að vinna með þremur ólík-
um mönnum frá Seattle og svo ætlar
trommuleikarinn í No Doubt að vera
á plötunni minni. Ég vil ekki verpa
öllum mínum eggjum í eina körfu.
Boð Gilby Clarke var mjög vinsam-
legt og mér fannst gaman að vinna
með honum að þessu eina lagi en ég
vil reyna annað fólk líka.“
Spenningur Dilönu fyrir ferðalag-
inu til íslands er augljós og hún seg-
ir að hún geti jafnvel hugsað sér að
búa hérlendis í nokkra mánuði. „Ég
bjó í Hollandi í fimm ár og ég held
að þankagangur íslendinga og Hol-
lendinga sé svipaður. Ég elska það og
ég veit að ég á eftir að verða ástfang-
in af Islandi og sérstaklega fólkinu.
Hver veit nema ég flytji til íslands á
næsta ári. Ég á fullt af bókum um ís-
land sem Magni gaf mér. Mér finnst
landið mjög fallegt og ég finn á mér
að fólkið er frábært. Það getur því vel
verið að ég flytji einhvern tímann til
Islands í nokkra mánuði.“
Ástríkur rokkari
Aðdáendur Rock Star: Supernova
sáu glögglega að Dilana átti erfitt
með sig í nokkrum þáttum og Dilana
viðurkennir hiklaust að það hefi ver-
ið erfitt tímabil. „Það var erfiðast og
þættirnir voru klipptir þannig til að
ég virtist vera mjög vond manneskja.
Um 90 prósent af raunveruleikanum
voru klippt og hvað mig varðaði var
mikið klippt til. Það þarf að skapa
drama og eitthvað áhugavert í hverj-
um þætti, eitthvað sem áhorfendur
geta horft á í hverri viku. Allt fór svo
vel fram og þátturinn gekk vel svo
þeir urðu að gera eitthvað til að gera
þættina meira spennandi. Þeir völdu
mig því ég var besta fórnarlambið
og það tókst. I mér búa mismunandi
hliðar og það hefur heimurinn séð.
En hann hefur ekki séð allar mínar
hliðar ennþá. I hnotskurn er ég mjög
ástrík stelpa sem elskar að rokka.
Auðvitað fer það eftir dögum, hvern-
ig ég vaknaði og hvernig skapi ég er í.
Stundum er ég full orku og er eins og
brjáluð orkukanína. Næsta dag er ég
mjög mild, andleg og vil vera í min-
um eigin heimi. Almennt séð sækist
ég eftir ævintýrum og elska að gera
brjálaða hluti. Ég elska fólk og elska
að vera hamingjusöm.“
„Að passa mig á myndavélum,"
svarar Dilana hlæjandi þegar hún er
spurð hvað hún lærði af veru sinni
í þáttunum. „Ég ber nýja og meiri
virðingu fyrir Björk því mig hefur
langað til að brjóta myndavél í sund-
ur. Ég held að það sem ég græddi á
þáttunum sé fyrst og fremst vinátta
mín við Magna. Hún er ómetanleg
og eilíf. Ég myndi gera allt fyrir
þann mann því hann kom mér bók-
staflega í gegnum þessa reynslu. Ef
ekki hefði verið fyrir hann hefði ég
verið send heim vegna þess að ég
hefði ekki þolað álagið. Annað sem
ég lærði af þessari reynslu var að
hugsa aðeins áður en ég svara spurn-
ingum og áður en ég tala. Það var
mjög dýrmæt lexía. En það er ein-
ungis vegna þess að þetta bévítans
fólk í þessu landi er svo íhaldssamt.
Ef þetta væri annars staðar í heim-
inum og ég segði það sem ég sagði
þá hefði fólk fattað það og hlegið.
En hér er fólk svo íhaldssamt og
fullt af þvælu; það tekur öllu svo
persónulega. Guð minn góður, hve-
nær varð rokk svona fullt af rugli
og viðkvæmt málefni?" segir Dilana
að lokum og kveður með uppáhalds
íslensku orðunum sinum: „Farðu í
rassgat.“
svanhvit@bladid.net