blaðið

Ulloq

blaðið - 22.12.2006, Qupperneq 4

blaðið - 22.12.2006, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2006 blaAið Rannsókn hætt Ekkert kom fram við rannsókn sem rennir stoðum undir að símar Jóns Baldvins Hannibalssonar og Árna Páls Árnasonar i utanríkisráðuneytinu hafi verið hleraðir. Þetta er niðurstaða ríkissaksóknara. MENNTAMALARAÐHERRA Vill sameina sjóði Menntamálaráðherra hefur lagt til sameiningu Bókmennta- og kynningarsjóðs, Menningarsjóðs og Þýðingarsjóös. „Markmiðið með frumvarpinu er að auka skilvirkni, einfalda styrkjakerfi ríkisins og efla bók- menntaarfinn," segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. HERAÐSDOMUR ngi i nívai Strokufanginn Ivar Smári Guðmundsson var dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir margvísleg brot. Meðal þeirra var rán í Bónusvideo síðastliðið sumar en þar réðst hann á tvær konur sem voru við störf. Hann þreif þeningakassa og stökk út um glugga af annarri hæð. Þá strauk hann einnig af Litla-Hrauni en náðist að lokum. Sjö morð í Bretlandi: Tengslin könnuð Breska lögreglan kannar nú hugsanleg tengsl tveggja óupp- lýstra morða og mannshvarfs í Norwich og morðanna á vændis- konunum fimm í Ipswich í upp- hafi mánaðarins. Lögregla safnar nú sönnunar- gögnum gegn þeim Tom Stephens og Steve Wright sem eru í haldi lögreglu grunaðir um að tengjast morðunum, en frestur lögreglu til að ákæra mennina rennur út í dag og á morgun. Verði ákærur ekki lagðar fram ber lögreglu að sleppa mönnunum lausum. Innflytjendur í Svíþjóð: Aldrei verið fleiri Breska lögreglan kannar nú hugsanleg tengsl tveggja óupp- lýstra morða og mannshvarfs i Norwich og morðanna á vændis- konunum fimm í Ipswich í upp- hafi mánaðarins. Lögregla safnar nú sönnunar- gögnum gegn þeim Tom Stephens og Steve Wright sem eru í haldi lögreglu grunaðir um að tengjast morðunum, en frestur lögreglu til að ákæra mennina rennur út í dag og á morgun. Verði ákærur ekki lagðar fram ber lögreglu að sleppa mönnunum lausum. imannsúr með Swarovski kristöllum og skifu úr ekta tmóðurskel. Einfalt að minnka eða stækka að vild. grænm Útsölustaöir: Jens Kringiunni • Giibert úrsmíður Laugaveg1J62 ■ Helgí Sigurðsson úrsmiður Skólavörðustíg 3 • Georg Hannah úrsmiöur KeflavWk' ■ Guðmundur B. Hannah úrsmióur Akranesi • Úra- og skartgripaverslun Karls R. Guðmundssonar Selfossi Leonard Kringlunni A t 0 Jf Óvæntur jólaglaðningur Ág- ústa Kristófersdóttir með litlu dótturina sem hún vissi ekki að von væri á Blaöiö/Eyþór 43 ára kona eignaðist barn á baðherberginu heima hjá sér: Stóð óvænt uppi með kríli í höndum ■ Tíðir hættu fyrir tveimur árum ■ Læknar uppgötvuðu ekkert Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net Það síðasta sem hvarflaði að Ágústu Kristófersdóttur þegar hún vaknaði á miðvikudaginn var að hún myndi skömmu síðar fæða stúlkubarn á baðherberginu heima hjá sér. Ágústa er 43 ára og hefur ekki haft tíðir i að minnsta kosti tvö ár. Hríðirnar taldi hún vera verki vegna hægðateppu og hreyfingarnar sem hún hafði fundið fyrir í kviðnum á meðgöngunni taldi hún vera eins konar loftbólur eftir magahjáveituaðgerð sem hún gekkst undir í júní síðastliðnum til að losna við aukakíló. Hélt spörkin væru loftbólur „Læknirinn sagði mér að ég gæti fundið fyrir loftbólum og einhverju slíku eftir aðgerðina. Þegar fram liðu stundir fannst mér þær orðnar ansi kröftugar en læknirinn sagði það bara eðlilegt,“ segir Ágústa sem telur að hún hafi verið komin 8 til ío vikur á leið, til eða frá, þegar aðgerðin var gerð. Ágústa fór í eftirlit mánuði eftir aðgerðina og svo aftur í október. „Þá sagði ég við lækninn að mér fyndist ég svolítið skrýtin í laginu en hann sagði að ég væri kannski bara svona í vextinum. Svo sagði hann mér að taka á og gera æfingar og þá myndi maginn hverfa." Að sögn Ágústu léttist hún um 12 kíló fyrir magahjáveituaðgerðina og hafði lést um 14 kíló eftir aðgerð þegar hún fór á Reykjalund í október. „Þá var hjúkrunarfræðingur þar eitt- hvað ósáttur við þróun mála. Henni fannst ég ekki léttast nóg og taldi að ég hefði ekki gætt að mataræðinu. Ég þóttist hins vegar vita að ég hefði engu breytt. En ég léttist síðan örlítið til viðbótar." Áfullu ívinnu 1 nóvember var Ágústa komin í fulla vinnu á ný í Bónus og þar vann hún á kassa þar til klukkan 19 kvöldið áður en sú stutta kom í heiminn öllum að óvörum. „Ég fann fyrir þreytu í vöðvunum (bakinu eftir vinnu þetta kvöld. Reyndar hafði ég verið svolítið þreytt um tíma.“ Rétt fyrir klukkan fimm á miðviku- dagsmorguninn vaknaði Ágústa við það að hún var að missa þvag, að því er hún taldi. Nú veit hún að það var leg- vatnið sem var að fara. „Ég fór fram á baðherbergi og þá fór ég að finna fyrir verkjum sem líktust túrverkjum. Ég hélt að þetta væru verkir vegna hægða- teppu sem ég hafði þjáðst af um skeið og tók lyf við því. Én þar sem verk- irnir ágerðust bað ég manninn minn um að fara ekki í vinnuna ef eitthvað meira væri í gangi og ég skyldi þurfa að fara upp á spítala.“ Ágústa tók eftir því að farið var að blæða og hún hélt beinlínis að inn- yflin ætluðu niður, eins og hún orðar það. „Ég stóð upp til að strjúka framan úr mér því að ég var orðin rennsveitt. Það næsta sem ég vissi var að ég stóð með krílið í höndunum. Hún spýttist út þar sem ég stóð við vaskinn." Naflastrengurinn slitnaði Ekki þurfti að klippa á naflastreng- inn, að sögn Ágústu. „Ég held að hann hafi slitnað þegar barnið kom.“ Litla stúlkan kom í heiminn tutt- ugu mínútum fyrir níu og kveðst Ág- ústa hafa staðið með hana í fanginu þær 5 til 10 mínútur sem hún beið eftir sjúkrabílnum. Fyrir á Ágústa tvær dætur, 18 og 11 ára. Þær voru að vonum undrandi á tíðindunum í fyrstu en eru nú alsælar yfir þessum óvænta jólaglaðningi. Eðlilega hafði ekkert verið undir- búið fyrir komu lítils barns á heimilið. „Það eru margir búnir að bjóðast til að gefa okkur fatnað og annað handa barninu. Og nú er maðurinn minn heima að þrifa til að undirbúa komu okkar. Ég er búin að vera að vinna svo mikið að ég hef ekki einu sinni haft tíma til að skúra." HEREFORD S T E I K H Ú S J-augavegur 5.Th • 101 Reykjavík 5 11 5^50 • www.licrcford.is ‘Eígencfur og starfsfóŒ EÍerejvref steíízf úss ósízar fancfsmönnum öffum gfeðífegm jófa og fríðar yfír jófafiátíðína Borðapantanir 'Herejord nautasieífiiirnar eru rómadar, pu vefur stœrð, sletkinpu og medCœti. Magnað! I>j<

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.