blaðið - 22.12.2006, Qupperneq 14
14 FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2006
blaöið
UTAN ÚR HEIMI
EVRÓPUSAMBANDIÐ
Fiskveiðikvóti samþykktur
Sjávarútvegsráðherrar Evrópusambandsins
náðu samkomulagi á miðvikudagskvöldið um
fiskveiðiheimildir næsta árs. Markmiðið er að
hraða því að veikir fiskstofnar nái sér aftur á
strik. Þorskveiðar í Norðursjó dragast saman.
ÍRAK:
Nýliðar létust í árás
Að minnsta kosti tíu létust og tugir slösuðust þegar
sjálfsmorðssprengjumaður gekk að hópi lögregluný-
liða fyrir utan lögregluskóla í Bagdad. Lögregla greindi
einnig frá því að 76 lík hefðu fundist víðs vegar í
höfuðborginni í gær.
liTWTTiHW
Grunaðir um sextíu íkveikjur
Sextán og nítján ára strákar eru nú í haldi lögreglu í Árósum í
Danmörku grunaðir um yfir sextíu bruna í nágrenni borgarinnar
á síðustu tveimur mánuðum. l’flestum tilfellum var um að ræða
minniháttar bruna í stigagöngum fjölbýlishúsa og ruslagámum.
Að sögn danskra blaða er hugsanlegt að fleiri tengist málinu.
Dómsmál:
Dæmdur fyrir
manndráp
Tæplega tvítugur piltur var
dæmdur í mánaðar fangelsi
fyrir manndráp af gáleysi í
janúar á þessu ári. Pilturinn ók
á fimmtán ára stúlku í Garðabæ.
Samkvæmt dómsorði var sólin
lágt á lofti en sannað þótti að
pilturinn hefði ekið of hratt.
Stúlkan lét lífið við áreksturinn.
Atburðurinn hafði djúpstæð
áhrif á piltinn en hann flosn-
aði upp úr skóla og hefur átt
við svefnerfiðleika að stríða.
Héraðsdómur Reykjaness kvað
upp dóminn.
Láttu þér líða vel
ívinnunni
t
s
1
Slitsterkt Polyester og
Power Polyamide efnl
Tvelr stóflr
br|óstvasar með
rennilás, fyrir
planbókina og
GSM slmann.
Stórtr og sérstaklega
styrkör hliöarvasar
meö Blix rennllás.
Léttlr, plássmiklir
sterkir vasar.
Sérlega mjúkt efnl
sem gerlr allar
hreyflngar léttarl.
Cordura ® er nýjung
fráSnlckersefnl
sem er sérstaklega
slltsterkt
Tvöföld Velcro festlng
og auðveldara er að
verkfærabeltið.
Sérhannaður, styrktur
vasl, aðelns
fyrlrGSM.
Vasarnír eru með
mjúku efni að
Innanverðu sem ver
vlðkvæma hluti.
Twisted leg ® er ný
hönnun ávasafyrlr
hnéhllfsértllþess
að hún sltur alltaf
á réttum stað.
® Akumyrl • CgilutS&um • HofnarTiHM • Höln • Kafiouik • Kápovogi • Raykjovik • St.lfo.rl
Sérvitur einræðisherra deyr:
Faðir allra
Túrkmena allur
■ Óvíst hvernig mál þróast í landinu ■ Átti viö hjartasjúkdóm aö stríða
Eftir Atla fsleifsson
atlii@bladid.net
TÚRKMENISTAN
Saparmurat Niyazov, forseti Túrk-
menistans, lést úr hjartaáfalli seint
á miðvikudagskvöldið. Niyazov,
sem kallaður var Turkmenbashi,
eða faðir allra Túrkmena, var
66 ára þegar hann lést og hafði
stjórnað ríkinu frá árinu 1985.
Stjórnarhættir forsetans vöktu oft
og tíðum undrun en í landinu var
ýtt undir mikla persónudýrkun á
honum. Hann greindi þjóð sinni
frá því í síðasta mánuði að hann
ætti við hjartasjúkdóm að stríða.
Óljóst er hver mun taka við emb-
ætti forseta Túrkmenistans. Að-
stoðarforsætisráðherra landsins,
Kurbanguly Berdymukhamedov,
mun sinna embættisskyldum
forsetans þangað til að æðsta ráð
landsins mætir til fundar á annan
dag jóla og ræðir framtíðarskipan
mála. Berdymukhamedov hefur
verið falið að skipuleggja jarðarför-
ina, en forsetinn verður borinn til
grafar á aðfangadag í höfuðborg-
inni Asgabat.
Niyazov missti föður 1
sinnísíðariheimsstyrj- ^
öldinni og móður J
sína og fleiri fjöl-
skyldumeðlimi í
jarðskjálfta sem
skókAsgabatárið
1948. I upphafi
sjöunda áratug-
arins gekk hann
til liðs við Komm-
únistaflokkinn
og tók svo við
embætti formanns
árið 1985. Hann
varð síðan fyrsti lýð-
ræðislega kjörni for-
seti landsins árið 1991. ^
Átta árum síðar skipaði
þing landsins hann forseta
til lífstíðar. Útlægir andstæð- ^
ingar Niyazovs setja nú margir
hverjir stefnuna aftur til Túrkmen-
Höfuðborg:
Landsvæði:
fbúafjöjdi:
Sjálfstæði:
Auðlindir:
Trú:
Asgabat
488.100 ferkílómetrar
4,9 milljónir
1991 (frá Sovétríkjunum)
Jarðgas og bómull
Meirihluti landsmanna
eru múslímar.
nHBHMHBHi
-....
nrrr»
Turkmenbashi Hefurgegnt forseta-
embætti Túrkmenistans frá árinu 1985.
istans, en þróun mála í landinu er
í mikilli óvissu. Talið er að margir
Gullstytta af forseta Snýrávallt í
átt að sólu.
helstu samstarfsmanna
Niyazovs hafi litla
sem enga reynslu í
stjórnun þó að þeir
neiti slíku.
Talsmennstjórn-
arinnar lýstu því
yfir í gær að ste-
fna stjórnvalda
í innanríkis- og
utanríkismálum
yrði óbreytt þrátt
fyrir að nýr maður
talci við forsetaemb-
ættinu. Þrátt fyrir
að landið sé auðugt af
jarðgasi býr þorri Túrk-
mena við fátækt. Mann-
réttindi eru fótumtroðin
í landinu, enda var Niyazov
talinn einhver spilltasti og illræmd-
asti þjóðarleiðtogi heims.