blaðið - 22.12.2006, Síða 31

blaðið - 22.12.2006, Síða 31
I blaðið heima," segir Kristín og hlær. „Þegar við vorum að byrja 1978 var Borgin aðalstaðurinn og þar var maður fram eftir kvöldi, fór svo i partí og síðan að- eins heim að sofa áður en maður fór aftur niður í miðbæ en í allt öðrum erindagjörðum klukkan 11 á sunnu- dagsmorgni,“ segir Kristín og bætir við að nú hafi þetta breyst. íslensk jólastemning á Kanarí Jól og aðventa er mikill annatími hjá kórum landsins enda fjöldinn allur af tónleikum í boði fyrir utan hefðbundnar messur. Kristín segir að þessum tíma fylgi oft mikið álag en það sé einnig hluti af þeirri dásam- legu stemningu sem fylgir jólunum. „Það kemur alltaf þögn í útvarpinu í nokkrar mínútur áður en klukkurnar í Dómkirkjunni hringja klukkan sex á aðfangadag. Síðan óskar þulurinn landsmönnum gleðilegra jóla og jólamessan hefst. Fyrir fólk sem er á mínum aldri og eldra eru þetta jólin. Ég get ekki án þessarar messu verið,“ segir Kristín. „Þegar við vorum á Kan- aríeyjum um jólin í fyrra tókst okkur að útvega geisladisk með messunni frá árinu áður niðri í Dómkirkju. Þar sem það var ekkert netsamband á hótelinu þurftum við að gera þetta svona. Við vorum með geislaspil- ara og klukkan þrjár mínútur í sex settum við jólin á og hlustuðum á jólamessuna frá árinu áður sem ég hafði reyndar sjálf sungið í þannig að jólastemningin skilaði sér alla leið til Kanaríeyja,“ segir Kristín. Kristín segir að yfirleitt séu sömu sálmarnir sungnir í jólamessunni í Dómkirkjunni og svo hafi verið lengi. Árið 1995 bættist sálmurinn Kirkjan ómar öll á efnisskrána. „Það kom þannig til að þessi sálmur hafði alltaf verið sungin í kirkjum á Vestfjörðum. Mamma min sem er fædd og uppalin á Hnífsdal sagði mér að presturinn á ísafirði kom alltaf og messaði í barna- skólanum á Hnífsdal á aðfangadag klukkan sex og það þótti voðalega há- tíðlegt. Þá var þessi sálmur alltaf sung- inn. Eftir snjóflóðin fyrir vestan árið 1995 byrjuðum við að syngja þennan sálm í Dómkirkjunni til heiðurs og huggunar fólkinu fyrir vestan. Síðan hefur þessi sálmur verið sunginn við trompettleik og það er afskaplega há- tíðlegt," segir Kristin. Hátíðarsvör Bjarna Þorsteinssonar Hátíðarsvör séra Bjarna Þorsteins- sonar, tónskálds og þjóðlagasafnara frá Siglufirði, eru einnig ómissandi þáttur í jólamessunni 1 Dómkirkj- unni. „Pabbi minn, Þorsteinn Hann- esson söngvari, var frá Siglufirði en hann sagði alltaf mjög spekings- lega við okkur á jólunum: „Vitið þið hvað, krakkar? Ég heyrði séra Bjarna sjálfan tóna þetta í kirkjunni á Siglufirði.“ Við svöruðum alltaf að við hefðum nú heyrt þetta áður. Svo þegar pabba var aðeins farið að förl- ast þurftum við að minna hann á að segja þetta og þá gerði hann það,“ segir Kristín og bætir við að hún hafi fyrst sungið hátíðarsvörin þegar hún var i Kór Menntaskólans við Hamra- hlíð undir stjórn Þorgerðar Ingólfs- dóttur. „Þá sungum við messu í sjón- varpssal og Sigurbjörn Einarsson biskup predikaði. Þá söng ég í raun í fyrsta skipti þessi margfrægu svör séra Bjarna. Við lærðum þau öll utan að og þetta var mikil helgistund. Eftir það sungum við í nokkrum messum hjá séra Sigurbirni í sjónvarpssal en síðan hefur jólamessa sjónvarps- ins verið tekin upp i hinum ýmsu kirkjum,“ segir Kristín. Ekki mikið sungið á heimilinu Þrátt fyrir að faðir Kristínar hafi verið mikill tónlistarfrömuður, lands- kunnur söngvari og siðar tónlistar- stjóri Rikisútvarpsins, segir hún að það hafi ekki verið mikið sungið á sínu heimili. „Það var alls ekki þannig að við værum að syngja við öll tækifæri. Við krakkarnir lærðum að visu á hljóðfæri og sungum í kórum en það var ekki sungið á heimilinu. Ég held að við höfum aldrei sungið jólasálma FÓSTUDAGUR 22. DESEMBER 2006 fyrr en foreldrar mínir eignuðust barnabörn og fóru að ganga með elsta barnabarninu í kringum jólatréð og fannst það afskaplega gaman,“ segir Kristín. Þau systkinin fengu engu að síður öll tónlistarbakteríuna í arf. „Páll bróðir minn er lærður tón- menntakennari þó að hann starfi ekki sem slíkur núna. Hann byrjaði líka i Dómkórnum 1978 og Hannes yngri bróðir minn syngur einnig með kórnum en er reyndar í smáfríi eins og ég. Við höfum því öll fengið þessa tónlistarbakteríu og sem betur fer var ekki hægt að komast undan henni. Ég veit ekki hvernig maður væri ef maður hefði ekki komist í kynni við tónlistina," segir Kristín. Ekki dæmigerð útvarpsbörn Kristín og Páll bróðir hennar fengu ekki aðeins tónlistaráhugann í arf frá föður sínum heldur hefur útvarps- áhuginn einnig skilað sér til þeirra. Kristín segir að þau séu þó ekki þessi dæmigerðu útvarpsbörn. „Við vorum að vinna þar á sumrin með skóla og fórum síðar bæði tvö út i þetta. Bróðir minn var mjög lengi í útvarpinu og ég líka, síðan fór ég í sjónvarpið og svo í þetta míníútvarp sem ég er i núna,“ segir Kristin og vísar þar til Umferðarútvarpsins. Hún segir að andinn í Ríkisútvarp- inu á þeim tíma sem hún starfaði þar hafi verið dásamlegur. „Ég byrjaði að vinna niðri á Skúla- götu 1980. Þar voru mikil þrengsli og fólk sat þar við skrifborð úti á göngum. Þarna var ofboðslega mikið af skemmtilegu og glaðlegu fólki og mikill samhugur hjá þeim sem þarna störfuðu og mikill ævin- týraheimur að fá að taka þátt i þessu,“ segir Kristín og bætir við að hún hafi verið alin upp við útvarpið. „Það var alltaf mikið hlustað á út- varpið á mínu heimili og rætt um það. Útvarpið þótti miklu merkilegra þá en nú enda var bara ein útvarps- stöð. Fólk hlustaði mikið á útvarp og það hlustuðu allir á það sama. Ef þú misstir af einhverju í útvarpinu þá var það bara verr og miður. Þú gast ekk- ert farið á Netið og hlustað á það þar. Maður var að hlusta á leikrit og sögur. Ég var orðin átta ára þegar ég sá sjónvarp í fyrsta skipti ef frá er talið Kanasjónvarpið. Svo var náttúrlega ekkert sjónvarp á fimmtu- dögum. Ég tala sennilega eins og ég sé ævaforn en mér finnst ég samt ekkert vera svo gömul. Þetta er lík- lega frekar til marks um hvað þessir hlutir hafa breyst hratt á skömmum tíma,“ segir Kristin Björg Þorsteins- dóttir að lokum. Einar.jonsson@bladid.net Glæsilegt úrval v ú úra og skartgripa ÚRSMÍÐAMEISTARI LAUGAVEGI 15 • Sími 511 1900 URVALSDEILD KJÖTMEISTARA Villibráð eða veislusteikur, vel hangin hreindýrslund eða gðmsætt paté, grafin gæs eða flauelsmjúk bringa, kryddlegið lamb eða kðtelettur, hangikjöt eða himneskar nautasteikur: 20 ára reynsla, þekking á hráefnum og ást á matargerð færa þðr aðeins það besta. Opið alla virka daga til áramúta Opið laugardag 23. des. Opið laugardag 30. des. 10.00-19.00 10.00-18.00 10.00 -18.00 Grensásvegi 48 • sími 553 1 600

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.