blaðið - 22.12.2006, Síða 40
FÖSTUDAGUl
Sveitt á gamlárs!
Góö úr fyrir
sjóndapra
Glæsilegt úrval , aV
úra og skartgripa
ÚRSMÍÐAMEISTARI
LAUGAVEGI 15 • Sími 511 1900
DJ Curver og DJ Kiki-Ow halda 90’s-
partí á gamlárskvöld en NO LIMITS-
kvöldin þeirra hafa verið að gera allt
vitlaust í ár. Stemningin á kvöldunum
fyrr í vetur var hreint brjálæðisleg og
svitablautir gestir þeirra fóru heim und-
ir morgun eftir stanslaust stuð í orgi og
hoppi. Þegar kvöldin voru haldin á Bar
11 voru biðraðir langt upp á Laugaveg.
DJ Curver segir að það sé gaman
hvað fólk tekur vel í þetta og greinilegt
að tíundi áratugurinn sé genginn í end-
urnýjun lífdaga. Gamlárskvöld verður
því sveitt fyrir þá sem vilja og forsala
aðgöngumiða er hafin á nasa.is. Allt
áhugafólk um tíunda áratuginn ætti
því að tryggja sér miða sem fyrst þar
sem aðeins er um takmarkaðan miða-
fjölda að ræða.
blaðið
ER 2006
CH.t'
» 40
»42
Fikniefni undir frægöarsólinni
»44
1
Kiki
en s
emmuieg
Snyst um brjostin Kiki tekur ,
sig ekki alvarlega
Kiki-Ow a Bar 11 No Limit
kvöldin hafa slegið í gegn
Kiki-Ow á Bar 11 Kiki hefur gaman
af því að klæða sig upp
Dívan frá Devon, Kiki-Ow (Kitty Von So-
metime) eða bara Kitty, flutti til Reykjavíkur
frá London á árinu og hefur aldeilis sett svip
sinn á tónlistarlíf borgarinnar á skömmum
tíma. Áður en hún flutti hingað í aprílmánuði
síðastliðnum hafði hún eytt næstum heilu ári
í flugvél yfir Atlantshafinu milli London og
Reykjavikur. „Ég kom hingað í heimsókn oft-
ar en tíu sinnum á einu ári,“ segir Kitty hlæj-
andi og segist auðvitað hafa þurft að flytja
hingað.
Brjóstgæðin skipta máli
Alteregó Kittyar, Kiki-Ow, er tónlistarmað-
ur. „Ég er feimin við að kalla mig tónlistar-
mann,“ segir hún. En ég hafði aðeins unnið
að tónlist í þrjá mánuði í London áður en ég
hellti mér í hana á íslandi. Kitty segist bara
gera grín að reynsluleysinu og þaðan er kom-
ið slagorð Kiki-Ow: Talentless, but fun, eða
hæfileikalaus en skemmtileg. Annað slagorð
sem henni hefur verið eignað er: I’ts all about
tits, eða þetta snýst allt um brjóstin. Henni
hefur reyndar margoft verið bent á að annar
hver íslendingur kalli sig tónlistarmann eða
rithöfund. „Ég tek mig ekki alvarlega,” segir
hún og hlær.
Alteregóið hún Kiki Ow er hreint út sagt
brjáluð. Algerlega hömlulaus karakter sem
hoppar og öskrar. Það liggur við að það þurfi
að loka hana í búri. En hver myndi svo sem
vilja það hér á landi. Hin kolbrjálaða Kiki-Ow
smellpassar inn i reykvíska tónlistarsenu.
ítónlistarslag
Kiki-Ow hefur verið fastagestur á Airwa-
ves-hátíðinni síðustu ár og kom hingað fyrst
til að skrifa fyrir erlent nettímarit um tónlist
og næturlíf. Hún hefur unnið töluvert með
islenskum tónlistarmönnum, til að mynda
með Viðari Gíslasyni úr Trabant að endur-
gerð að lagi Right Said Fred, Tm too Sexy
sem sló í gegn á dansstöðum borgarinnar.
Og eftir það var ekki aftur snúið. Hún hitti
Bibba eða DJ Curver og saman byrjuðu þau
að melda með sér að spila 10. áratugartónlist
á skemmtistöðum borgarinnar.
„Hann bara fann mig,“ segir Kitty. „I byrj-
un slógumst við i einhvers konar tónlistars-
lag. Ég vildi trana fram níunda áratugar-
tónlist, Madonnu og Prince og svoleiðis, en
Bibbi tíunda áratugar og kynnti hann mig á
ný fyrir gömlum smellum eins og No Limit
og fleirum körftugum lögum. Það endaði
þannig að ég stóðst ekki stuðið í tíunda ára-
tugartónlistinni."
Sjóræningjastelpa frá Devon
„Ég er alin upp í bænum Devon í Bret-
landi, sem er ekki mikið stærri en Reykjavík.
Seinna flyst ég til London og þaðan kem ég
til Reykjavíkur.“ Aðspurð um muninn á að
búa á þessum stöðum segist Kitty hafa gert
sér grein fyrir því hve munurinn er mikill
við komu sína til London nýlega.
„Það er allt miklu afslappaðra í Reykjavík,
hreinna og hér býr maður við meira öryggi.
Veðrið er náttúrlega ömurlegt en ég kvarta
ekki því hér vill ég búa,“ segir hún. Hún seg-
ist vera komin af stað í íslenskunám enda
komin hingað til að vera. „Ég reyni að tala ís-
lensku við fólk en það svarar mér oft á ensku,
því finnst ég vera krúttileg þegar ég tala ís-
lenskuna,“ segir hún og hlær.
„Ég nýt einnig meira frelsis á lslandi,“ segir
Kitty. Hér klæða sig allir eins og þeir vilja,
sem mér finnst frábært. Mér finnst gaman
að klæða mig upp á og klæðast óvenjuleg-
um fötum. Ég gæti ekki gert það eins og ég
vildi í London þar sem menningin er stífari."
Aðspurð um svokallaðan sjóræningjastíl
sem einkennir margar af ljósmyndunum af
henni segist hún náttúrulega vera komin frá
aldagamalli sjóræningjahöfn. „Kannski er
það þess vegna sem ég sæki í tísku er tengist
sjóræningjum og þviumlíku.”
dista@bladid.net
■