blaðið - 29.12.2006, Síða 1
ORÐLAUS
» síöa 34
IÞROTTIR
Búast má við miklu kapphlaupi
um góða leikmenn þegar leik-
mannamarkaðurinn í Evrópu
opnast á nýársdag |síða32
261. tölublað 2. árgangur
föstudagur
29. desember 2006
FRJÁLST, ÓHÁÐ & f
■ FOLK
Ellý Ármannsdóttir þula stendur
vaktina í Sjónvarpinu á gamlárs-
kvöld og segir ekki fjarri lagi að
hún finni fyrir fiðringi | síða ie
Tólf dómar fallið á árinu vegna árása á lögreglu við skyldustörf:
Oftar ráðist á löggur
■ Hörð átök eftir ólöglega flugeldasýningu ■ Virðingarleysi er vandamál
Eftir Val Grettisson valur@bladid.net
Frá apríl hafa alls tólf dómar fallið í héraðsdómi á
íslandi vegna árása eða hótana í garð lögreglu. Yf-
irlögregluþjónninn Hörður Jóhannesson segir al-
mennt virðingarleysi gagnvart lögreglumönnum
í samfélaginu vera vandamál. Hann vill þó ítreka
að misjafn sauður sé í mörgu fé.
„Mér finnst ofbeldi gegn lögreglunni fara vax-
andi frekar en hitt,“ segir Hörður Jóhannesson,
yfirlögregluþjónn í Reykjavík, en vissulega sé
það starf lögreglumanna að takast á við svona að-
stæður. Því komi ýmislegt upp á.
Ráðist var á tvo lögregluþjóna um klukkan
fjögur aðfaranótt fimmtudags þegar lögreglan var
kölluð vestur í bæ í Reykjavík. Slegið var í háls ann-
ars lögreglumannsins. Árásin er flokkuð sem alvar-
leg líkamsárás samkvæmt réttarkerfinu. Höggið
hefði getað verið lífshættulegt. Átökin voru hörð.
Mennirnir voru yfirbugaðir að lokum.
Drukknir piltar höfðu haldið vöku fyrir íbúum
nálægra húsa með ólöglegri flugeldasýningu.
Óheimilt er að skjóta upp flugeldum nema á gaml-
árskvöldi og þrettándanum án tilskilinna leyfa.
■ Piltarnir höfðu það ekki.
Sjá einnig síðu 6
Álpökkuðum geisladiskum skilað Félagsmenn samtakanna Sól í Straumi skiluöu gjöf fyrirtækisins til þeirra til baka klukkan þrjú í gærdag. Þeir hittu Rannveigu Rist, forstjóra Alcan
á (slandi, í kaffistofu álversins og afhenti Valgerður Halldórsdóttir Rannveigu diskana. Álverið sendi átta þúsund geisladiska á hafnfirsk heimili og þykir samtökunum gjöfin ekki öyggð á
málefnalegum forsendum. Kosið verður um stækkun álversins í Hafnarfirði.
VIÐTB‘ »síður 30-31
Ekki bara hasar
er ekki eins og margar
spennumyndir sem eru bara
keyrðar áfram á innantómum
hásar,“ segir Björn Brynjúlfur
Björnsson um mynd sína
sem heitir Köld slóö.
VEÐUR
Austanátt
Austanátt, 8 til 15 metrar
á sekúndu. Hiti yfirleitt á
bilinu 5 til 10 stig.
» siða 2
ARAMOT
» síður 17-24
sérblað um
áramótin
fylgir Blaðinu
ídag
Góðmeti án
fyrirhafnar
Jóhann Alfreð Kristinsson eyðir ekki
dýrmætum tíma í matarstúss. Besta
uppskriftin sem hann býöur upp á í
einhleypa eldhúsinu er sú að stinga
Unglingi seldar skotkökur
Fjórtán ára stúlku voru seldar skotkökur
hjá Flugbjörgunarsveit Reykjavíkur og
flugeldasölu Gullborgar, sem er í einka-
eigu. Stúlkan var hvorki spurð um aldur
né skilríki.
Blaðið gerði úttekt og fór blaðamaður
með stúlkunni í þrjár flugeldaversl-
anir. Einungis Björgunarsveitin Ársæll
stöðvaði stúlkuna við kaupin. „Það er
bagalegt að heyra þetta,“ segir Jón
Gunnarsson hjá Landsbjörg.
íslamistar flýja Mogadishu
Sómalíski stjórnarherinn og Eþíópíuher
náöu höfuðborginni Mogadishu á sitt
vald úr höndum íslamista í gær. Þó aö
margir hafi fagnað komu stjórnarhersins
ríkir upplausnarástand í borginni þar
sem víða er skotið úr byssum og mikið
er um gripdeildir og innbrot.
Skömmu eftir að hersveitirnar höfðu
náð úthverfum borgarinnar hörfuðu
íslamistar frá borginni, að þeirra sögn til
að koma í veg fyrir blóðbað.
Stór Pizza m/ 2
áleggjum og
brauðstangir
1590 kr Sótt
700% íslenskur ostur
Mjódd • Dalbraut 1 • Hjarðarhaga 45
5 68 68 68
apwi
Smiðjuuegur 4 - Græn gafa
Smidjuuegur 6 - flauð gata A Niðhraun 14 - Garðabæ