blaðið - 29.12.2006, Side 6
6 FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 2006
bla6ið
INNLENT
KVENFÉLAGSKONUR
Gáfu fæðingardeildinni rúm
Kvenfélagskonur frá Kvenfélögum Álftaness,
Kjósar, Grindavíkur og Vestur-Skaftfellinga gáfu
fæðingardeild Landspítala - háskólasjúkrahúss
tvö rafdrifin rúm með aukahlutum. Auðvelt
er að stjórna nýju rúmunum og eru þau mjög
GÓÐGERÐARSTARFSEMI
21,5 milljónir til geðheilbrigðismála
Tæplega 21,5 milljónir króna söfnuðust í styrktarátaki
Sparisjóðsins fyrir ný verkefni á geðheilbrigðissviði.
Styrktarátakinu lauk á aðfangadag og voru styrkirnir
afhentir forsvarsmönnum átta félaga í gær, og hlutu
þau að meðaltali rúmlega 2,5 milljónir króna hvert.
MÝVATNSSVEIT
Eldsvoði í Mývatnssveit
Maðurinn sem slasaðist í bruna í Malarvinnslunni
í Mývatnssveit á jóladag var fluttur af Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri yfir á Landspítala - háskóla-
sjúkrahús. Ekki hafa fengist frekari upplýsingar um
líðan mannsins að svo stöddu.
DV selt og tímaritið Birta lagt niður:
missa vinnu
„Þessar breytingar hafa óveruleg
áhrif á starfsfólk ritstjórna blað-
anna,“ segir Ari Edwald, forstjóri
365. „Við erum í raun að færa
okkur frá allri annarri prentút-
gáfu heldur en útgáfu Fréttablaðs-
ins og fylgiblaða þess.“
Stjórn 365 miðla kynnti í gær að
búið væri að selja útgáfurétt á DV
til Dagblaðsins-Vísis útgáfufélags
ehf. Kaupendur eru útgáfufyrir-
tækið Hjálmur ehf., sem er í eigu
Baugs, og feðgarnir Janus Sigur-
jónsson og Sigurjón M. Egilsson,
fyrrverandi ritstjóri Blaðsins. 365
mun þó áfram eiga 40 pró-
sent í útgáfu DV.
Þá hafa tímaritin
Hér & Nú og Veggfóður
verið seld til Otgáfufé-
lagsins Fögrudyra ehf.,
sem gefur út tímaritið
ísafold.
Samhliða þessum
viðskiptum tilkynnti
stjórn 365 að ákveðið
hefði verið að leggja
tímaritið Birtu niður
og fella það inn í Frétta-
blaðið á næsta ári.
Að sögn Ara munu
breytingarnar ekki
kalía á miklar upp-
Hefur óveruleg
áhrífá
starfsfólk
rítstjorna
Arl Edwald,
forstjóri 365
sagnir og segir hann öllum starfs-
mönnum DV hafa verið boðin
vinna hjá hinu nýja útgáfufélagi.
„Við munum segja upp sjö starfs-
mönnum í stoðdeildum, aðallega
sölumönnum. Að öðru leyti hafa
þessar breytingar ekki áhrif á
starfsmenn 365“
ÞÚ GETUR ÞAÐ LfKAi
Valgeir SkagfjörÖ leikari, fyrru m
stórreykingarrraður, sagir hérfrá
reynslu sinni af reykingum.
Hann dra p i fyri r f ullt og allt og held ur
nú námskeið fyrir þá sem vilja
taka þá ákvörðun. Eftir að hafa les^
þessa bck getur þú hætt líka
.betta er störfróðleg cg skemmtileg
bók. Hún logará milli fingranna
og ég er viss um að hun oetur slökkt
1' stærri stubbum en mér*
Bnar MlrGufiinundsion, ifcheíurfdur
Lögreglan í átökum Lögreglan
þarf oft aö takast á við menn í,
miðborginni um helgar. Hér er
hún í eldri átökum.
Mynd/Eggert
Tólf dómar fallið á árinu vegna árása á lögreglu við skyldustörf:
Lögreglumaður
sleginn í hálsinn
■ Virðingarleysi er vandamál ■ Sjúkraflutningamenn þurfi á vernd
Eftir Val Grettisson
valur@bladid.net
Ráðist var á tvo lögregluþjóna aðfara-
nótt fimmtudags þegar þeir sinntu
útkalli. Slegið var í háls annars lög-
reglumannsins. Árásin er flokkuð
sem alvarleg líkamsárás samkvæmt
réttarkerfinu. Höggið hefði getað
verið lífshættulegt.
Frá apríl hafa alls tólf dómar fallið
í héraðsdómi á íslandi vegna árása
eða hótana í garð lögreglu. Yfirlög-
regluþjónninn Hörður Jóhannesson
segir almennt virðingarleysi í samfé-
laginu vera vandamál. Hann vill þó ít-
reka að misjafn sauður sé í mörgu fé.
Það var um fjögur aðfaranótt
fimmtudags sem lögreglan var kölluð
vestur í bæ í Reykjavík. Ástæðan var
sú að drukknir menn höfðu haldið
vöku fyrir íbúum nálægra húsa með
ólöglegri flugeldasýningu. Óheimilt
er að skjóta upp flugeldum nema á
gamlárskvöldi og þrettándanum án
tilskilinna leyfa. Piltarnir höfðu það
ekki.
Óljóst er hvernig átökin hófust en
mennirnir réðust á lögregluþjónana.
Átökin munu hafa verið hörð. Annar
maðurinn slær lögreglumanninn
í hálsinn og getur slíkt högg verið
stórhættulegt. Mennirnir voru yfir-
bugaðir að lokum. Þeir gistu fanga-
geymslur lögreglunnar og fóru í
skýrslutöku í gær.
„Mér finnst ofbeldi gegn lögregl-
unni fara vaxandi frekar en hitt,“
segir Hörður Jóhannesson, yfirlög-
regluþjónn í Reykjavík. Á einu ári
hafa tólf mál komið til kasta héraðs-
dóms á íslandi þar sem menn hafa
verið ákærðir fyrir að ráðast á eða
hóta lögreglumönnum. Þá sagði
Blaðið frá því í júní síðastliðnum
að dæmi væru um að sjúkraflutn-
ingamenn þyrftu á lögregluvernd að
halda um helgar.
Varaformaður Landssambands
slökkviliðs- og sjúkraflutninga-
manna bað þá fólk um að sýna meiri
tillitssemi hvert gagnvart öðru.
„Við erum ekki eina stéttin sem
verður vör við þetta breytta and-
rúmsloft," segir Hörður en bendir
einnig á að vissulega sé það starf
lögreglumanna að takast á við svona
aðstæður. Því komi sitt af hverju upp
á. Hann bendir einnig á að flestir
borgarar séu til fyrirmyndar. Alltaf
séu þó einhverjir sem sé sama um
umhverfi sitt og skapi óskunda að
sögn Harðar.
!
Gerald Ford, fyrrum Bandaríkjaforseti:
Gagnrýnir Bush að handan
Gerald Ford, fyrrverandi Banda-
ríkjaforseti, sagði í viðtali við Wash-
ington Post í júlímánuði 2004 að
innrás Bandaríkjamanna í írak
hafi ekki verið réttlætanleg. Þetta
kom fram í Washington Post í gær,
en viðtalið mátti ekki birtast fyrr
en eftir dauða forsetans.
í viðtalinu gagnrýnir Ford
núverandi forseta, Dick Cheney
varaforseta og Donald Rumsfeld,
fyrrverandi varnarmálaráðherra,
harðlega. I forsetatíð Fords gegndi
Cheney starfi starfsmannastjóra
Hvíta hússins og Rumsfeld starfi
varnarmálaráðherra. „Rumsfeld,
Cheney og forsetinn gerðu mikil
mistök þegar þeir voru að réttlæta
innrásina í Irak. Þeir lögðu alltof
mikla áherslu á tilvist kjarnorku-
vopna í írak. Ég hef aldrei sagt op-
inberlega að þeir hafi gert mistök,
en það var eindregin skoðun mín
að það hafi verið mikil vitleysa
hvernig þeir réttlættu það sem þeir
höfðu í hyggju."
Ford segir að hefði hann gegnt
embætti forseta á þessum tíma
hefði hann ekki farið í stríð. „Sjálfur
hefði ég lagt mun meiri áherslu á að
ná okkar fram með refsiaðgerðum
og viðskiptaþvingunum