blaðið - 29.12.2006, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 2006
blaðiö
Varað við hundaæði
Heilbrigðisyfirvöld hafa varað íbúa New York-borgar við að koma
nálægt dýrum sem ganga laus í borginni í kjölfar fjölgunar hunda-
æðistilfella. Flest tilfellin hafa komið upp í Staten Island-hverfinu
þar sem þvottabirnir þrífast, en þeir eru sérstaklega viðkvæmir
fyrir hundaæði.
Sjö létust í þyriuslysi
Sjö týndu lífi þegar þyrla hrapaði í sjó-
inn í Morecambe-flóa á vesturströnd
Bretlands á miðvikudagskvöldið. í
þyrlunni voru fimm starfsmenn olíubor-
palls auk tveggja manna áhafnar.
Mikill hagnaður IKEA
Ingvar Kamprad, stofnandi IKEA, talaði af sér í jólaboði og sagði
að IKEA borgaði sex milljarða sænskra króna í skatta af hagnaði
rekstrarársins samkvæmt sænskum fjölmiðlum. Þetta þýðir að
hagnaður fyrirtækisins hafi verið um 250 milljarðar íslenskra króna
á árinu. Talsmenn IKEA í Svíþjóð hafa ekki viljað tjá sig um málið.
Eldri borgarar:
Ætla að bjóða
fram í vor
„Eldri borgarar eru ákveðnir
í að bjóða fram til alþingiskosn-
inga í vor og undirbúningsvinna
er nú í full-
um gangi,“
segir Baldur
Ágústsson,
fyrrverandi
forstjóri, en
hann flutti
tillögu að
því að eldri
borgarar
stofnuðu til sérframboðs í vor
á fundi eldri borgara fyrr í
mánuðinum. Baldur segir að
búast megi við að undirbúnings-
vinnu ljúki í janúar og að þá
verði tilkynnt um hverjir verði
í lykilstöðum í framboðinu.
Liechtenstein:
Landið stækkar
Smáríkið Liechtenstein hefur
stækkað um hálfan ferkílómetra
eftir nákvæmari mælingar stjórn-
valda á landamærum ríkisins.
Hluti landamæranna liggur
hátt og þau höfðu aldrei verið
almennilega mæld. Rikið mælist
nú 160,48 ferkílómetrar og mæl-
ast landamærin 77,9 kílómetrar.
ísraelar heimila vopnainnflutning:
Fatah fær vopn
ísraelska varnarmálaráðuneytið
hefur staðfest að það hafi veitt heim-
ild til vopnaflutnings frá Egyptalandi
til öryggissveita Mahmouds Abbas,
forseta Palestínu.
„Aðstoðin er veitt til að styrkja frið-
aröflin gegn þeim myrku öflum sem
ógna framtíð Mið-Austurlanda,“ segir
Amos Gilad, deildarstjóri í ráðuneyt-
inu. Talsmaður Abbas forseta neitaði
því að nokkur slíkur flutningur hafi
átt sér stað en að sögn Haaretz var um
að ræða innflutning á um tvö þúsund
rifflum, tuttugu þúsund skothylkjum
og tveimur milljónum skota.
Vopnin voru flutt í fjórum bílum
í fylgd hersins. Talið er að öryggis-
sveitir Fatah-hreyfingarinnar muni
nota vopnin til að reyna að stöðva
vopnainnflutning Hamas-liða. Átök
hafa geisað milli fylkinga Fatah-hreyf-
ingar Abbas forseta og Hamas-liða
á heimastjórnarsvæðum Palestínu-
manna síðasta mánuð og er talið að
ísraelar vilji að liðsmenn Fatah hafi
þar betur.
Skemmtun á Ingólfstorgi í dag
í jólamánuðinum hafa fjölmargir landsmenn tekið snúning á skautasvelli TM
á Ingólfstorgi, en í dag, 29. desember, er síðasti dagurinn sem opið er á svellið.
Af því tilefni bjóðum við hjá TM upp á veglega skemmtidagskrá á Ingólfstorgi
ídagfrákl. 17:00-20:00.
Fjölbreytt skemmtiatriði, m.a.:
Jazzhljómsveitin „Johnny and the rest", Baggalútur, Skoppa og Skrítla, ídýfurnar o.fl.
Heitt Svyiss Miss kakó og piparkökur í boði.
Góða skemmtun.
TM - sterkir á svellinu!
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN / Sfmi 515 2000 / tm@tryggingamidstodin.is / www.tryggingamidstodin.is
50
ARA
Landhelgisgæslan:
Fjórar þyrlur
í notkun
Leiguþyrlur frá Noregi ■ Leitað um allan heim
■ íslendingar þjálfaðir
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
Strax eftir áramót heldur Benóný
Ásgrímsson, yfirflugstjóri hjá Land-
helgisgæslunni, til Lundúna til að
sækja fjórðu björgunarþyrluna í
þyrludeild Gæslunnar. Þar með
hefur deildin tvöfaldast á nokkrum
mánuðum.
Þann 30. september tók gildi
samningur um leigu á þyrlu af
gerðinni Super Puma sem er í eigu
norska fyrirtækisins Air Lift. Vélin
sem sótt verður til Lundúna er af
gerðinni Dauphin og er hún í eigu
annars norsks fyrirtækis, Heli-
kopter Service. Leiguþyrlurnar eru
sömu gerðar og þær sem fyrir eru
hjá Landhelgisgæslunni.
„Það kom okkur verulega á óvart
hversu erfitt var að fá björgunar-
þyrlur á leigu. Tíminn sem var til
stefnu frá því að Bandaríkjamenn
tilkynntu um brottflutning á björg-
unarþyrlum sínum var heldur ekki
langur,“ tekur Benóný fram. „Leitað
var að björgunarþyrlum um allan
heim en reynt var að miða við teg-
undir sem við höfum reynslu af og
réttindi á. Þetta reyndist mjög erf-
itt,“ bætir hann við.
Það reyndist ekki heldur auðvelt
að manna leiguþyrlurnar í einni
svipan. „Sem betur fer eru talsvert
margir hér á landi komnir með
þyrluréttindi en þeir eru ekki með
mikla reynslu. Við höfum bara ekki
haft tök á því að þjálfa þá og þess
vegna höfum við fengið leigða Norð-
menn til að aðstoða okkur. Við
vonumst til að vera
búnir að
Leituðu um
allan heim
Benóný Ásgrímsson
yfirflugstjóri
þjálfa íslendinga um mitt næsta ár
en þjálfun hvers og eins tekur um
sex til átta mánuði,“ greinir Benóný
frá.
Áður voru áhafnirnar á björgun-
arþyrlunum þrjár en nú verða þær
sex. Fimm manns eru í hverri áhöfn,
tveir flugmenn, flugvirki sem stýrir
björgunarspilinu, sigmaður sem
jafnframt er stýrimaður og svo
er læknir fimmti maðurinn. Eftir
breytingarnar eru tvær áhafnir á
vakt, að sögn Benónýs.
Hann segir nauðsynlegt að fara
hægt og rólega af stað vegna breyt-
inganna, bæði vegna nýrra áhafna
og vegna þess að þyrlurnar fjórar
eru ekki allar eins útbúnar. „En
reynslan sem er að byggjast uþp
í þyrludeildinni mun nýtast til
framtíðar.“
Leiguþyrlurnar eiga að brúa bilið
þar til keyptar verða viðbótarbjörg-
unarþyrlur eða þyrlur leigðar til
framtíðar, að því er Benóný greinir
frá. Super Puma þyrlan er leigð til
eins árs með möguleika á fram-
lengingu. Samningurinn hljóðar
upp á 14 milljónir króna á mánuði
og 150 þúsund krónur fyrir hvern
floginn flugtíma. Áætlaður kostn-
aður við samninginn til eins árs
er um 210 milljónir króna, að því
er segir í fréttatilkynningu frá
dómsmálaráðuneytinu.
Mynd/Halléöi
I viðbragðsstöðu Þyrla
Landhelgisgæslunnar og
tvær varnarliðsþyrlur sem
nú hafa verið fluttar á brott.
Lóðaúthlutanir borgarinnar:
Dagur á að vita betur
„Ég undrast mjög ummæli Dags
B. Eggertssonar um lóðamál borgar-
innar því hann á að vita betur. Hann
situr í skipulagsráði og á að þekkja
vel til þeirrar miklu skipulagsvinnu
sem hefur farið fram undanfarið,”
segir Hanna Birna Kristjánsdóttir,
forseti borgarstjórnar Reykjavíkur
og formaður skipulagsráðs. Hún
bendir á að verulega hafi skort á
fjölda sérbýlishúsalóða í tíð fyrr-
verandi meirihluta og áætlanir nú
geri ráð fyrir mun fleiri lóðum til út-
hlutunar. Hanna Birna er því hissa
á gagnrýni oddvita Samfylkingar-
innar og segir nýjan meirihluta
DagurB. Eggerts-
son á að vita
betur
Hanna Birna
Kristjánsdóttir,
Forseti borgarstjórnar
standa við gefin loforð í lóðamálum
og gott betur. „Dagur á að vita að
áætlanir gera ráð fyrir úthlutun um
fimm hundruð sérbýlishúsalóða
á næsta ári. Það er álíka mikið og
þeim tókst að úthluta á öllu síðasta
kjörtímabili," segir Hanna Birna.