blaðið - 29.12.2006, Síða 10
10 FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 2006
blaöiö
UTAN ÚR HEIMI
SADI-ARABIA
Milljónir í Mekku
Reiknað er með að um þrjár milljónir múslíma hvaðanæva úr
heiminum hafi lagt leið sína til Sádi-Arabíu til að taka þátt í
hajj-hátíðinni sem hófst í hinni heilögu borg Mekku í gær. Ör-
yggismál hafa verið tekin til gagngerrar endurskoðunar eftir
að hundruð hafa troðist undir á hátíðinni síðustu ár.
Létust í árásum
Að minnsta kosti sautján létust í nokkrum
sprengingum í Bagdad í gær. (þeirri mann-
skæðustu létust tíu þegar bílsprengja sprakk
í grennd við al-Shaab leikvanginn, þar sem
fólk stóð í röðum til að kauþa steinolíu.
Forstjóri sakaður um morð
Saksóknari í Rússlandi hefur sakað Leonid
Nevzlin, fyrrum forstjóra olíurisans Yukos, um að
hafa fyrirskipað morðið á Alexander Litvinenko,
fyrrum KGB-njósnara, sem lést í Lundúnum úr
póloneitrun í nóvembermánuði.
Bandaríkin:
Rennslisvirkjanir í Þjórsá:
John Edwards
í framboð
John Edwards, öldungadeild-
arþingmaður
Norður-Kar-
ólínu, hefur
ákveðið að
gefa kost á sér
í bandarísku
forsetakosn-
ingunum sem
ff am fara árið
2008. Þegar
hafa Tom Vilsack, ríkisstjóri
í Iowa, og Dennis Kucinich,
fullrúadeildarþingmaður frá
Ohio, tilkynnt um framboð.
Enn er beðið eftir yfirlýs-
ingu frá Hillary Clinton og
Barack Obama, sem margir
demókratar binda vonir við.
Samið um orkusölu við Alcan
Landsvirkjun hefur skrifað undir
samning við Alcan um sölu á orku
sem fæst við virkjun neðri hluta
Þjórsár þótt Hafnfirðingar hafi enn
ekki greitt atkvæði um stækkun ál-
versins í Straumsvík.
„Við lítum alls ekki svo á að þessi
orka ein og sér sem þarna verður til
fari endilega til stækkunar álvers-
ins f Straumsvík. Það eru fleiri sem
vilja kaupa,“ segir Helgi Bjarnason,
verkfræðingur hjá Landsvirkjun og
verkefnisstjóri á svæðinu. Hönnun
þriggja rennslisvirkjana í neðri
hluta Þjórsár hefur þegar verið
boðin út.
Margir bændur sem eiga jarðir
við neðri hluta Þjórsár eru and-
vígir framkvæmdunum sem leiða
til þess að hluti af ræktuðu landi
Fleiri seem vilja
kaupa
Helgi Bjarnason,
verkfræðingur
þeirra fer undir vatn. „Ríkið á að
mestu leyti vatnsréttindin í ánni,
eða 97 prósent, og líka réttinn til
að nýta landið sem þarf til að reisa
þessar virkjanir. En ríkið þarf nátt-
úrlega að greiða bætur fyrir það
land sem fer undir lónin og tilheyr-
andi mannvirki. Strax og hönnun
er lokið verður hægt að semja um
bætur vegna þeirrar röskunar sem
verður á viðkomandi jörðum," tekur
Helgi fram. Hann segir málið hafa
verið kynnt fyrir öllum viðkomandi
landeigendum.
„Við munum hefja viðræður núna
fljótlega eftir áramót um þær jarðir
sem verða fyrir mestri röskun. Sums
staðar getum við gert svokallaðar
mótvægisaðgerðir, til dæmis með því
að hækka landið til að þ'að fari ekki
undir vatn. Einnig er verið að leggja
til að stíflugarður verði gerður á einni
jörðinni til að viðkomandi bóndi
missi ekki 70 til 80 hektara og jörð
hans klofni í tvennt,“ greinir Helgi
frá.
Sætti bændur sig ekki við þær bætur
sem boðnar verða mun gerðardómur
úrskurða um þær samkvæmt ákvæði
í vatnalögum, að sögn Helga. „{ versta
falli getur þurft að skoða hvort Lands-
virkjun þurfi að kaupa jörðina.“
Rætt um stíflugerð
Herríðarhóll í
Asahreppi í Rangár-
vallasýslu.
www.nowfoods.com
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
Stjórnarher Sómalíu og Eþíópíuher komnir til höfuóborgarinnar:
Upplausnarástand
í Mogadishu
íslamistar flýja höfuöborgina Múslímar hvattir til aö styöja íslamistana
Eftir Atla fsleifsson
atlii@bladid.net
Sómalíski stjórnarherinn og Eþíópíu-
her náðu höfuðborginni Mogadishu
á sitt vald úr höndum íslamista í gær.
Þó að margir hafi fagnað komu stjórn-
arhersins ríkir upplausnarástand
í borginni þar sem víða er
skotið úr byssum og mikið
er um gripdeildir og inn
brot. Skömmu eftir að
hersveitirnar höfðu náð
úthverfum borgarinnar
hörfuðu íslamistar frá
borginni, að þeirra sögn til
að koma í veg fyrir blóðbað.
Islamistar hafa haldið höfuðborg-
inni síðan um mitt síðasta sumar þar
sem þeir komu á ástandi sem minnti
á stöðugleika með íslömskum
sjaría-lögum eftir margra ára stjórn-
leysi. Islamistarnir flúðu flestir til
hafnarborgarinnar Kismayo, fimm
hundruð kilómetrum suður af höfuð-
borginni og fréttir herma að margir
þeirra hafi lagt niður vopn.
Síðustu daga hafa eþíópískar her-
sveitir aðstoðað veikan her bráða-
birgðastjórnar Sómalíu í baráttunni
við uppreisnarmenn islamista. Me-
les Zenawi, forsætisráðherra Eþi-
ópíu, segir að verið sé að ræða við
sómalíska embættismenn og
háttsetta menn í höfuðborg-
inni um hvað eigi að gera
til að koma í veg fyrir
glundroða í Mogadishu á
nýjan leik. Zenawi sagði
að milli tvö og þrjú þús-
und íslamistar hefðu látið
líflð í átökunum sem hófust í
síðustu viku. Bráðabirgðastjórnin
hefur lýst yfir neyðarástandi í Mog-
adishu og heitir áfram sakaruppgjöf
fyrir þá íslamista sem leggja niður
vopn.
Að sögn BBC óttast margir íbúar
Mogadishu að stjórnleysi taki við á
nýjan leik eftir brotthvarf íslamist-
anna. Talið er að sómaliskir stríðs-
herrar sem réðu yfir borginni fyrir
komu íslamistanna reyni nú að ná
yfirráðum á nýjan leik. Talsmaður
íslamista sagði að brotthvarf þeirra
þýddi ekki að baráttunni væri lokið,
en íslamistar hafa ráðið yfir mestum
hluta Sómaliu siðustu mánuði.
Hundruð manna hafa látið lifið
í átökum siðustu mánuði og hafa
talsmenn Rauða krossins lýst yfir
miklum áhyggjum af ástandinu.
Samband Afríkuríkja hefur beint
þeim orðum til Eþiópíuhers að hann
yfirgefi Sómalíu sem allra fyrst. Þá
fundaði öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna annan daginn í röð um
ástandið í landinu en gat ekki komið
sér saman um ályktun þar sem
mörg ríki voru andsnúin tillögu Kat-
ars um að allt erlent herlið yfirgæfi
Sómalíu.
Bandaríkjamenn hafa sakað íslam-
ista i Sómalíu um að tengjast hryðju-
verkasamtökunum A1 Qaeda.