blaðið - 29.12.2006, Page 11
blaðið
FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 2006 11
SIMBAVE
Mörg þúsund gullgrafarar handteknir
Lögregla í Simbabve hefur handtekið rúmlega sextán þúsund
manns fyrir ólöglegan námugröft. Yfirvöld hófu herferð sína fyrir
þremur vikum og gerðu mikið magn gulls og demanta upptækt.
Eftir hrun landbúnaðargeirans í landinu hafa tugir þúsunda
snúið sér að námugreftri.
BRASILÍA
10
Atján látnir í ofbeldisöldu
Að minnsta kosti átján eru látnir eftir öldu ofbeldis
sem hefur gengið yfir Rio de Janeiro í Brasilíu
síðustu daga. Glæpagengi hafa ráðist á og kveikt í
strætisvögnum og lögreglustöðvum. Talið er að leið-
togar gengjanna í fangelsum hafi skipulagt árásirnar.
Verði fluttir nauðugir
Jan Björklund, skólamálaráðherra Svíþjóðar, vill
að sveitarfélög eigi að geta neytt þá sem leggja
samnemendur sína í einelti til að skipta um skóla
þrátt fyrir mótmæli þeirra og foreldranna. Eineltistil-
fellum hefur fjölgað í Svíþjóð á síðustu árum.
Útlendingar á íslandi:
Fjórðungur íbúa á Austurlandi
Landsmenn voru 307.261 hinn
1. desember síðastliðinn. Fólks-
fjölgun var óvenjumikil á árinu og
annað árið í röð fjölgar íbúum um
meira en 2 prósent á einu ári.
Mikil fólksfjölgun undanfarin ár
verður öðru fremur rakin til mikils
aðstreymis fólks frá útlöndum, að
því er kemur fram í frétt frá Hag-
stofu íslands.
Hlutfall erlendra ríkisborgara
af íbúum í heild er sex prósent.
Á Austurlandi er rúmlega fjórð-
ungur íbúa með erlent ríkisfang.
Mikil fólksfjölgun á Austurlandi
verður eingöngu rakin til mikils að-
streymis útlendinga.
Á Suðurnesjum eru útlendingar
7,3 prósent íbúa og 7 prósent á Vest-
fjörðum.Hlutfallslegafæstirútlend-
ingar búa á Norðurlandi og á höfuð-
borgarsvæðinu utan Reykjavíkur.
Landsmenn voru innan við þrjú
hundruð þúsund á síðasta ári og
hefur fjölgað um ríflega 24 þúsund
frá því árið 2000.
Hæglætisveður
um land allt
„Um áramótin er útlit fyrir hæg-
lætisveður um land allt. Það gætu
orðið él á Suður- og Vesturlandi,
en sem stendur er ómögulegt að
segja til um hvernig verður á mið-
nætti á gamlárskvöld,“ segir Har-
aldur Eiríksson, veðurfræðingur
á Veðurstofu lslands.„Á Norður-
og Austurlandi er allt útlit fyrir
að verði léttskýjað og vægt frost.
Á Suður- og Vesturlandi verður
hitinn um frostmark," segir hann.
Það liggur Ijóst fyrir að upplýsingar sem ekki kveikja áhuga
eru einskis nýtar. 30 ára reynsla Xerox kemur Ijóslifandi fram
í skínandi litum sem vekja 82% meiri athygli.
Af einbeitni hefur Xerox þróað nýjungar aðstoða þig við að fá sem mest út úr litunum
sem auka gæði, áreiðanleika og hag- og finna fullnægjandi lausnir á litakröfum
ræðingu í litaprentun. Sérfræðingar okkar þínum. Með Xerox blasir við þér björt framtíð.
Xerox litaprentarar,
fjölnota kerfi
og stafrænar prentvélar.
Grensásvegur 10, Reykjavík // 563 3000 // www.ejs.is
jixxmms; wm*
Komnir til Mogadishu
Stjórnarher Sómatíu náði til
höfuðborgarinnar í gær með
aöstoð Eþíópíuhers.
1 U'V
Ww| m -tl
■ 1 . ! a [ i ii
' v kT: HiTíyTTiSft
Syngja og gefa
fyrirmæli á ensku
Latabæjarleikföng í
Hagkaupum. Blatit/Eyþór
Latabæjarleikföng:
Kunna bara ensku
Latabæjarleikföngin sem börn
fengu í jólagjöf í ár og gefa frá sér
hljóð eru öll með ensku tali. „Hag-
kaup flytja þessi leikföng beint inn
frá framleiðendum í Bandaríkj-
unum og þeir treysta sér ekki til
að sérframleiða þau fyrir svona
lítil málsvæði eins og Island,“ segir
Kjartan Már Kjartansson, tals-
maður Latabæjar á íslandi.
„Eins og er eru leikföngin ein-
ungis til á ensku en hugsanlega
verða þau í framtíðinni framleidd
á fleiri útbreiddum tungumálum.
Kostnaðurinn við að þýða þau yfir
á mál eins og íslensku, sem mjög
fáir tala, væri þó sennilega of mik-
ill.“ Kjartan segir aðspurður að ef
íslenskir söluaðilar óskuðu sérstak-
lega eftir því að fá leikföngin á ís-
lensku væri það einungis mögulegt
ef Latibær á íslandi tæki þá fram-
leiðslu að sér sjálfur með ærnum
tilkostnaði. Flestar aðrar Latabæj-
arvörur sem fáist hér á landi séu
þó framleiddar hér á landi og eru
merktar á íslensku.
Að sögn Gunnars Inga Sigurðs-
sonar, framkvæmdastjóra Hag-
kaupa, hafa umrædd leikföng selst
vel og engar athugasemdir hafa bor-
ist frá foreldrum.