blaðið - 29.12.2006, Síða 14
blaðiö
blaði
Útgáfufélag:
Stjórnarformaður:
Ritstjóri:
Fréttastjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Ár og dagurehf.
SigurðurG.Guðjónsson
Trausti Hafliðason
Brynjólfur Þór Guðmundsson og
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Elín Albertsdóttir
Vertu ekki að
plata mig
Nú styttist í að íbúar Hafnarfjarðar kjósi um stækkun álversins
í Straumsvík og eru forsvarsmenn álversins komnir í bullandi
kosningabaráttu eins og fréttir vikunnar hafa borið með sér. f fyrradag
fengu átta þúsund íbúar Hafnarfjarðar geisladisk að gjöf frá Alcan á
íslandi. Með fylgdi kort frá Rannveigu Rist, forstjóra fyrirtækisins, þar
sem hún færir samstarfsfólki sínu bestu þakkir fyrir ánægjulega sambúð
í fjörutíu ár.
Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi álversins, sagði í Blaðinu í
gær að forsvarsmenn Alcan á fslandi hygðust kappkosta við að upplýsa
fólk hvernig þeir sæju stækkun álversins fyrir sér. “Við munum ganga
grímulausir inn í þessa umræðu,” sagði Hrannar. Það er gott að upplýsa
fólk og enn betra ef það er gert grímulaust en þó ég sé viss um að margir
hafi kunnað að meta gjöfina þá var hún samt ósmekkleg. Ef forsvarsmenn
Alcan hafa góðan málstað þá eiga þeir ekki að þurfa að kaupa sér velvild.
Diskurinn sem Hafnfirðingar fengu að gjöf er með Björgvini Halldórssyni
og Sinfóníuhljómsveit íslands. Það er kannski svolítið kaldhæðnislegt að
á disknum er meðal annars að finna lagið “Vertu ekki að plata mig.”
Það er engin spurning að stækkun álversins í Straumsvik er góð fyrir
íslenska áliðnaðinn en eflaust létu fáir sér detta í hug að stækkunin yrði
líka vatn á myllu íslenska tónlistariðnaðarins.
Það er lofsvert að bæjarstjórn Hafnarfjarðar ætli að boða til kosninga
um stækkun álversins úr 180 þúsund tonnum í 460 þúsund tonn. Auðvitað
eiga íbúar að kjósa um jafn mikilvæg mál og þetta en ættu ekki fleiri en
íbúar Hafnarfjarðar að fá að gera það?
Þann 15. desember undirrituðu Rannveig Rist og Friðrik Sophusson
samkomulag sem framlengir fram á mitt næsta ár viljayfirlýsingu um
gerð raforkusamnings til stækkunar álversins í Straumsvík. Það er sem
sagt svo gott sem búið að ganga frá samkomulagi um orkuverð. Sama
dag og Rannveig og Friðrik undirrituðu samkomulagið samþykkti stjórn
Landsvirkjunar að heimila forstjóranum að ráðast í útboð á hönnun
þriggja virkjana í Neðri-Þjórsá; Hvammsvirkjunar, Holtavirkjunar og
Urriðafossvirkjunar. Útboðið var síðan auglýst 18. desember. Kannski er
)etta eðlilegt vinnulag en þetta vekur samt sem áður upp spurningar um
>að hvort væntanleg kosning íbúa Hafnarfjarðar um stækkun álversins
sé bara sýndarleikur?
Það er ekkert leyndarmál að bygging virkjananna er meðal annars
háð stækkun álversins í Straumsvík. Þetta kemur skýrt fram í fréttabréfi
sem Landsvirkjun sendi inn á öll heimili í Skeiða- og Gnúpverjahreppi,
Rangárþingi Ytra, Ásahreppi og Flóahreppi.
Ef við gefum okkur það að mark verði tekið á kosningunum í Hafnarfirði
þá eru Hafnfirðingar ekki bara að kjósa um það hvort þeir vilji stækkun
álversins heldur eru þeir líka að samþykkja byggingu þriggja virkjana sem
munu mynda þrjú uppistöðulón sem verða samanlagt 24 ferkílómetrar að
flatarmáli. Er það rétt?
Trausti Hafliðason
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins
KANNTU AÐ TELJA?
HRINGDU Á BÍL í SÍMA
ALLAR GERÐIR BILA
WWW.5678910.IS
RÚTULEIGA BÍLALbiGA SEND'BÍLALEiGA
SKUTLUTAXI EÐALVAGN
PARTÝBUS LEIGUBÍLL
14
FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 2006
§UlPpf-l>iAE VA-díR.'E
Af> ÓTTflST. —SmÁ
ÁRaMáTASPRrLL í GJMGf.
TiL fí> TKGWa
Að leggja sitt
af mörkum
Sjálfboðastarf hvers konar verður
gjarnan meira áberandi á þessum
árstíma en öðrum. Jólin og hátíð-
arundirbúningurinn vekja marga,
vonandi sem flesta, til umhugs-
unar um hag þeirra sem eiga við
einhvers konar erfiðleika að etja.
Þeir sem eru veikir, fátækir, ein-
mana eða fá af einhverjum sökum
ekki notið þess sem jólahátíðin
hefur upp á að bjóða, eiga samúð
okkar sem erum betur á okkur
komin. Þessari samúð er gjarnan
komið á framfæri með milligöngu
fólks sem gefur tíma sinn og vinnu
í þágu bágstaddra.
Sjálfboðastarf fárra?
Skipulögð sjálfboðavinna hefur
verið viðtekin hér á landi lengi.
Rauði krossinn, Thorvaldsensfé-
lagið, sem fagnaði 130 ára afmæli
á síðasta ári, og Hringskonur eru
félög sem allir þekkja en trúlega
flestir þó aðeins af afspurn. Jafnvel
er ekki víst að allir utanaðkomandi
átti sig á því í fljótu bragði á hvaða
vettvangi þessi líknar- og mannúð-
arfélög starfa. Það efast hins vegar
enginn um að sjálfboðastarf félags-
manna þeirra séu unnin af góðum
hug og hafi skilað mörgum miklu.
Þrátt fyrir langa tilvist góð-
gerðafélaga og nokkuð áberandi af-
rakstur starfa þeirra má fara nærri
því að fullyrða að sjálfboðavinna sé
ekki samofin menningu Islendinga
almennt. Án þess að hafa tölfræði
yfir ársverk unnin í sjálfboðavinnu,
sem líklega er ekki til, er hæpið
að fullyrða nokkuð. Mér segir þó
svo hugur að þátttaka í sjálfboða-
starfi sé ekki almenn á Islandi. Að
minnsta kosti ekki eins almenn og
maður hefur á tilfinningunni að sé,
til dæmis, í Bandaríkjunum.
Viðhorf
Sigríöur Á. Andersen
(þágu barna
I fréttum fyrir nokkru var sagt
frá ungum, nýgiftum hjónum sem
létu Barnaspítala Hringsins njóta
brúðkaupsgjafanna. Þau fjárfestu
í hönnun og gerð búnings fyrir
nokkurs konar lukkutröll spítal-
ans sem fer um gangana og gleður
börnin sem þar dvelja. Fígúran var
ísbjörn, Hringur að nafni. Sannar-
lega er þetta framtak sem mætti
verða okkur hinum til eftirbreytni.
I fréttum kom svo fram að enn væri
nokkurt fé eftir í sjóðnum sem þau
stofnuðu í þessum tilgangi og yrði
því varið til þess að fjármagna
rekstur fígúrunnar. Til dæmis
þyrfti að borga leikurum sem
myndu klæðast búningnum.
Barnaspítalar eru gjarnan áber-
andi vettvangur sjálfboðastarfs.
Okkar íslenski barnaspítali var
jú reistur að tilstuðlan áratuga
sjálfboðavinnu. Á erlendum
barnaspítölum eru sjálfboðaliðar
hins vegar oft ómissandi þáttur i
daglegum rekstri. Alþekkt er að
sjálfboðaliðar starfi sem trúðar
og aðstoði foreldra við umönnun
barnanna. Hér á landi er þetta lítið
þekkt. Samt er trúlega ekki erfitt
að manna gott. og umfangsmikið
sjálfboðastarf í þágu veikra barna.
Eða hvað? Þarf virkilega að borga
mönnum fyrir ,að taka að sér að
leika ísbjöminn Hring og skemmta
veikum börnum?
Ríkisfaðmurinn
Getur verið að hinn alltumlykj-
andi faðmur ríkisins hafi svipt
Islendinga allri trú á að einstak-
lingurinn geti skipt sköpum í vel-
ferðar- og mannúðarmálum? Að
minnsta kosti virðist það vera að
í þeim ríkjum þar sem menn hafa
ekki alltaf getað gert ráð fyrir
aðkomu ríkisvaldsins að öllum
málum hefur skapast meiri hefð
fyrir almennu, reglubundnu sjálf-
boðastarfi borgaranna. Við getum
lært mikið af þessum þjóðum i
þeim efnum.
Höfundur er lögfræðingur.
Klippt & skorið
Blöð, tímarit og út-
varpsstöðvar kepp-
ast nú við að velja
mann ársins 2006. Rás 2
hefur um árabil kosið mann
ársins með hjálp hlustenda
sinna og svo verður einnig
nú. Þegar hafa nokkrir fengið titillnn eins og
Dorrit Moussaieff sem kosin var kona árs-
ins af Nýju Lífi, Róbert Wessman var kosinn
maður ársins hjá Frjálsri verslun og Hannes
Smárason hjá Fréttablaðinu. Ásta Vilhjálms-
dóttir varð (slendingur ársins hjá tímaritinu
(safold og knattspyrnumenn ársins hafa þegar
verið valdir og í gærkvöldi var kosinn íþrótta-
maður ársins svo fátt eitt sé upptalið. Er ekki
kominn tími á að kjósa aðalmann ársins?
Skrifarivareinnþeirra
sem fengu senda
jólagjöf í álpappír,
sjálfan Björgvin Halldórs-
son. Þar sem pakkinn var
ómerktur og kom inn um
póstlúguna varskrifari lengi
að velta því fyrir sér hver á heimilinu ætti að fá
þennan ómerkta pakka, hvort merkispjaldið
hefði glatast eða hvort pakkinn hefði lent í vit-
lausu húsi. Eftir dágóða stund var þó ákveðið
að rífa álið utan af pakkanum og kom þá f Ijós
geisladiskur og kort þar sem stóð að þetta væri
gjöf til Hafnfirðinga frá Álverinu í Straumsvík.
Álverið hefði nú alveg getað haft kortið utan
á pakkanum svo kurteisir viðtakendur þyrftu
ekki að velta siíkum hlutum fyrir sér...
Hagstofan hefur gefið út nýjustu tölur
um fjölda (slendinga og voru þeir
307.261 talsins þann 1. desember sl.
Þetta er óvenju mikil fjölgun og annað árið
í röð sem íbúum fjölgar um meira en 2% á
einu ári. Við eigum Evrópumet í þessu sem
svo mörgu öðru. Margir myndu eflaust vilja
meina að (slendingar séu þar með manna fjör-
ugastir í rúminu en svo er sennilega ekki þvl
fólksfjölgunina má rekja til aðstreymls fólks
frá útlöndum. Erlendum rfkisborgurum hefur
fjölgað mikið og er hlutfall þeirra nú um 6%
af heildarfjölda. Á súluriti Hagstofunnar sést
að langflestir eru þeir á Austurlandi eða ríf-
lega 25%.
elin@bladid.net