blaðið - 29.12.2006, Síða 20
28
FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 2006
blaðið
Karlus og Baktus
Leikfélag Akureyrar frumsýndi í haust barnaleikritiö
góökunna Karíus og Baktus eftir Thorbjörn Egner.
Laugardaginn 30. desember klukkan 14 veröur auka
sýning á þessu víðfræga verki.
■iYW’iliU'il
Gospel
með Sálinni
Þann 15. september síðastlið-
inn hélt Sálin hans Jóns míns
tónleika í Laugardalshöll með full-
tingi Gospelkórs Reykjavíkur og
aðstoðarhljóðfæraleikara. Góður
rómur var gerður að tónleikunum
og því hefur verið ákveðið að
blása til annarra tónleika laugar-
dagskvöldið 30. desember. Það
verður í síðasta skipti sem Sál-
verjar koma fram undir þessum
formerkjum. Áhugasamir geta
nálgast miða á www.midi.is.
Vínartónleikar í
janúar
Sinfóníuhljómsveit Islands
heldur sína árlegu Vínartónleika
í Háskólabíói, 3.-6. janúar næst-
komandi. Hljómsveitin hélt sína
fyrstu Vínartónleika 1972 en frá
1981 hafa þeir verið fastur liður
á efnisskrá hljómsveitarinnar. Á
þessum tíma hafa tugþúsundir
íslendinga flykkst á Vínartónleika
en tónleikarnir njóta mikilla vin-
sælda ár hvert. Tónleikarnir 3., 4.
og 5. janúar hefjast klukkan 19:30
en tónleikarnir laugardaginn 6.
klukkan 17. Nokkur sæti eru laus
á tónleikana 5. og 6. en eitthvað
fleiri sæti eru enn á boðstólum
3. og 4.
ld fnimsýxid x Borgarleikhúsinu
Ferðalag um skrítna heima
„Leikverkið fjallar um hana Lísu
sem týnir klukkustund úr lífi sínu.
Hún leggur upp í ferð til Sundra-
lands til að finna þessa klukku-
stund og koma lífi sínu í jafnvægi
á ný. Þetta er ferðalag Lísu og
ferðalag áhorfenda um hugarheim
hennar," útskýrir Ilmur Kristjáns-
dóttir sem leikur aðalhlutverkið
í verkinu Ófögru veröld eftir Ant-
hony Neilson sem frumsýnt verð-
ur á Stóra sviði Borgarleikhússins
í kvöld. Skotinn Anthony Neilson
hefur getið sér gott orð á Bretlandi
fyrir óvægin og nýstárleg verk. Hér
á landi hafa verið sett upp tvö verka
hans, Ritskoðarinn og Penetreit-
or og vöktu þau töluverða athygli.
„Þetta er ákaflega margslungið verk,“
segir Ilmur. „Undirtónninn er alvar-
legur og við fáum að skyggnast inn
í mörg skúmaskot mannshugans.
Verkið er þó ótrúlega fyndið þó al-
varan sé skammt undan og húmor-
inn er kolsvartur."
Geðveikin undirliggjandi
Verkið hefur sterka skirskotun
í ævintýri Lewis Carolls, Lísu í
Undralandi. Þetta er þroskasaga
Lísu en um leið spegill samfélagsins
sem varpar áhugaverðu ljósi á þver-
sagnirnar, gildin og áskoranir í líf-
inu sjálfu. „Lisa er bara eins og við
hin. Líkt og flestir geta á einhvern
hátt samsamað sig Lísu í Undra-
landi eigum við flest eitthvað sam-
eiginlegt með Lísu í Sundralandi.
Hún er stelpa um þrítugt sem á í
ýmsum erfiðleikum og áhorfendur
fá að kynnast því hvernig hún tekst
áviðþá."
í verkinu eru áhorfendur leiddir
inn í heim geðveikinnar og kynnast
á nýstárlegan hátt hvernig sjúkdóm-
urinn hefur áhrif á einstaklinginn
nú finnst mér það mikill kostur
því þannig er það einmitt i lífinu
sjálfu." Að verkinu stendur öflugur
hópur leikara en Benedikt Erlings-
son heldur um stjórnartaumana
og segir Ilmur að samstarfið hafi
gengið ákaflega vel. Aðspurð um
hvaða erindi verkið eigi við íslenskt
samfélag samtímans segir Ilmur að
hver og einn verði að lesa í það sína
merkingu. „Þetta á alveg jafn mik-
ið erindi og hver önnur skemmtun.
Þetta er fyrst og fremst sagan af
henni Lísu og dæmi svo hver sem
vill.“
hilma@bladid.net
Sagan af Lísu
Ilmur segir að sér hafi fljótlega
samið vel við stúlkuna sem virðist
oft á tíðum ekki ganga heil til skóg-
ar. „Fyrst þegar ég las handritið þá
hugsaði ég að hlutverk Lísu væri
kannski það leiðinlegasta í öllu verk-
inu því öll hin hlutverkin eru svo ro-
salega fyndin. Ég sá það fyrir mér
að ég þyrfti alltaf að vera að halda
niðri í mér hlátrinum yfir mótleik-
urum mínum því þeirra rullur eru
svo óborganlega fyndnar," útskýrir
Ilmur. „En á daginn kom að samver-
an með Lísu varð miklu meira ferða-
lag fyrir mig en ég hafði búist við í
upphafi og eiginlega mun erfiðara
en ég hafði gert ráð fyrir,“ segir hún
og bætir við að ímyndunaraflið sé
það sem verkið hvíli á. „Imyndun-
araflið getur farið með okkur öll á
hina undarlegustu staði og það er
það sem á sér stað í verkinu. Fyrst
fannst mér galli á verkinu hvað
tengingarnar eru oft óskýrar en
og samfélagið sem hann er hluti af.
„Geðveikin er undirliggjandi allan
tímann og það er ákveðin snilld
hvernig hún fléttast inn í verkið
og kemur áhorfendum á óvart þeg-
ar síst skyldi. Við erum á stöðugu
ferðalagi um skritna heima,“ segir
Ilmur leyndardómsfull.
Lísa í Sundralandi llmur
Kristjánsdóttir túlkar Lísu í
Ófagurri veröld.
Svona eru menn
Það verður kátt í höllinni í Land-
námssetri íslands í Borgarnesi í
kvöld en þá verður verkið Svona eru
menn eftir þá félaga Einar Kárason
og KK frumsýnt. Árið 2002 kom út
bókin KK -þangað sem vindurinn
blæs en þar skráði Einar Kárason
sögu KK á eftirminnilegan hátt.
KK er fæddur í Bandaríkjunum
og fjölskylda hans á sér merkilega
sögu sem er talsvert frábrugðin sög-
um flestra annarra íslenskra fjöl-
skyldna. í sýningunni Svona eru
menn fá áhorfendur að skyggnast
inn i líf KK, fylgjast með uppvaxtar-
árunum í Bandaríkjunum og Þing-
holtunum, flökkulifi um Evrópu
og lífinu á íslandi á sjöunda ára-
tugnum. Gestir fá einnig að heyra
brot af þeirri tónlist sem KK hefur
samið i gegnum árin auk nokkurra
nýrra laga sem kappinn samdi sér-
staklega af þessu tilefni. Þar ber
hæst titillag sýningarinnar, Svona
eru menn.
Verkið er flutt á Sögulofti Land-
námsseturs, sama stað og einleikur
Benedikts Erlingssonar, Mr. Skalla-
grímsson, sem góður rómur var
gerður að síðasta sumar. Búast má
við heilmikilli skemmtun í Borg-
arnesi enda eru KK og Einar báðir
góðir sögumenn, hvor á sinn hátt.
Nánari upplýsingar má finna á
www.landnam.is