blaðið - 29.12.2006, Side 22
30
FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 2006
blaðið
•4
„Þær bíómyndir sem mesta að-
sókn hafa fengið á íslandi eru flestar
gerðar eftir bókum sem hafa selst
vel ef ég man rétt. Það er kannski ör-
uggari leið að gera það og alveg jafn-
gott og gilt,“ segir Björn.
Verður að vera trúverðug
Þó að sagan sé að mestu leyti
sprottin úr höfði Björns segir hann
að eins og allar sögur megi finna í
henni tilvísanir og fyrirmyndir í
samtímaumhverfi okkar. Slíkar sam-
svaranir voru þó ekki alltaf með ráði
gerðar. „Baldur er blaðamaður á síð-
degisblaði sem er svolítið æsifrétta-
blað og það hafa náttúrlega nokkrir
atburðir gerst á þessum tíma sem við
vorum að skrifa söguna sem snerta
það svið,“ segir Björn og tekur sem
dæmi þegar ráðist var inn á ritstjórn-
arskrifstofur DV fyrir nokkrum
árum. „Við vorum í raun búnir að
skrifa það inn í myndina áður en at-
burðurinn átti sér stað,“ segir Björn
sem telur miklu máli skipta að sagan
sé trúverðug og sannfærandi.
„Það er kannski stór hluti af
þessum galdri að láta söguna vera
sannfærandi og ég held að það sé
sama gliman og spennusagnahöf-
undar hér á landi hafa átt í á und-
anförnum árum. Það hefur lukkast
mjög vel í bókmenntunum og nú
einnig í Mýrinni.
Við þurfum að gera þessar sögur
þannig úr garði að þær séu trúverð-
ugar um leið og við setjum þær í
okkar samhengi og umhverfi sem
er nauðsynlegt til að fólk kaupi það
sem í gangi er,“ segir Björn.
Afmarkaður heimur
Köld slóð gerist að mestu leyti í
afskekktri virkjun á hálendi Islands
þar sem örfáar manneskjur vinna.
„Þetta er bara lítill, einangraður og
lokaður heimur sem er svolítið öðru-
vísi og sérstakur. Þetta er sögusvið
sem gefur höfundum tækifæri til að
vinna með hluti sem er kannski erf-
iðara að eiga við eða virka öðruvísi ef
sagan gerðist til dæmis allan tímann
á götum Reykjavíkur," segir Björn og
bendir á að svona afmarkaður og ein-
angraður heimur eigi sér hliðstæðu í
mörgum spennumyndum.
Hann segir að virkjunin hafi verið
valin sem sögusvið þar sem hún
býður upp á þann aflokaða heim
sem sagan krefst. Þá skipti ekki
síður máli að virkjanir eru afar sjón-
ræn og tilkomumikil mannvirki.
„Þessar virkjanir eru náttúrlega
stærstu og flottustu leikmyndir sem
byggðar hafa verið á íslandi og eru
því mikilfenglegt og skemmtilegt
umhverfi fyrir kvikmynd,“ segir
Björn.
Upptökur við erfiðar aðstæður
Upptökur á Kaldri slóð fóru meðal
annars fram í virkjununum í Búr-
felli og á Sultartanga og stóðu frá
því í febrúar fram á vor þegar allra
veðra ervon.
,Það er nu einu sinni svo með bio-
myndir að þó að það sé varið miklunt
peitingum í að búa þær til, sérstaklega
í Hollywood, renna menn alltafsvo-
litið blint í sjóinn. Það er aldrei hægt
að segjafyrir unt hvernig markaðtirinu
bregst við þeim."
/
írmantomur
nasar
BlaöíO/tyþór
Kvikmyndin Köld
slóð í leikstjórn
Björns Brynjúlfs
Björnssonar verður
frumsýnd í dag
en hún er fyrsta
kvikmynd í fullri
lengd sem Björn gerir, en áður hefur
hann meðal annars fengist við gerð
sjónvarpsauglýsinga og heimildar-
mynda. Köld slóð er spennumynd
sem fjallar um blaðamanninn
Baldur sem Þröstur Leó Gunnarsson
**• leikur. Öryggisvörður í afskekktri
virkjun á hálendinu finnst látinn
og Baldur fær áhuga á að rannsaka
málið eftir að hann kemst að því að
hinn látni var faðir hans sem hann
hafði aldrei kynnst. Hann ræður sig
því í starf í virkjuninni og við tekur
spennandi atburðarás.
Björn Brynjúlfur segir að sagan
sem sögð er í myndinni sé öðrum
þræði byggð á persónu Baldurs,
þrám hans og löngunum.
„Hins vegar býr myndin yfir eig-
inleikum spennusögunnar og við
tvinnum þetta saman ef svo má
segja. Þetta er ekki eins og margar
spennumyndir sem eru bara
keyrðar áfram á innantómum hasar
og karakterarnir gætu allt eins
verið teiknimyndafígúrur. Okkur
finnst að hún verði líka að höfða til
fólks með áhugaverðum persónum
af holdi og blóði sem hafa sínar til-
finningar. Fólk á auðveldara með að
setja sig í spor þeirra og það gefur
myndunum meiri dýpt og þær verða
áhugaverðari fyrir vikið. Þetta er
mikið gert í spennusögum, sérstak-
lega norrænum sögum og nú einnig
í breskum, þar sem karakterarnir
eiga við sína persónulegu demóna
að stríða sem skipta jafnframt miklu
máli í sögunni," segir Björn.
50 útgáfur af handritinu
Björn skrifaði söguna sjálfur en
Kristinn Þórðarson, sem er fram-
~f leiðandi myndarinnar ásamt Magn-
úsi Viðari Sigurðssyni, skrifaði
handritið.
„Það eru um fimm ár frá því að
við byrjuðum á þessu og ég held
að Kristinn hafi skrifað yfir 50 út-
gáfur af handritinu. Við fengum
náttúrlega mikið af góðu fólki til
að lesa það yfir með okkur og krítís-
era í því ferli. Við ákváðum að taka
okkur langan og góðan tíma í þetta
og vinna vel því að það er náttúrlega
grunnurinn að því að það sé gaman
að horfa á bíómyndir að sagan sé
góð. Við ákváðum að skrifa sögu
sjálfir en ekki gera hana eftir bók
sem væri þegar til, sem er náttúrlega
góð og gild leið líka,“ segir Björn og
>. bætir við að mikið sé lagt upp úr
sjónrænum eiginleikum sögunnar
fyrir vikið.
Kvikmyndir sem gerðar eru eftir
þekktum skáldsögum hafa gjarnan
það forskot á aðrar kvikmyndir að
fólk þekkir sögurnar fyrir og gerir
sér því vissar væntingar um þær
fyrirfram. Björn tekur undir að það
geti vissulega verið gott út frá kynn-
ingar- og sölusjónarmiði.