blaðið - 29.12.2006, Side 23
blaðið
FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2006 31
„Þetta voru náttúrlega mjög oft
erfiðar aðstæður. Við lentum í af-
takaveðrum og gátum ekki tekið og
þá sátu menn kannski í fjallakofa og
spiluðu á spil meðan þeir biðu af sér
veðrið.
Það eru nú samt víða erfiðar að-
stæður við vinnu þannig að okkur
var það svo sem ekkert meiri vor-
kunn en öðrum. Við tókum þvi sem
að höndum bar í því eins og aðrir
en það var enginn pikknikk að taka
upp þessa mynd, langt frá því,“ segir
Björn en bætir við að þrátt fyrir erf-
iðar aðstæður hafi engir teljandi
erfiðleikar komið upp við tökur. Þá
spillti ekki fyrir að góður andi var
í hópi tökuliðs og leikara og mikill
áhugi á verkefninu.
Köld slóð er sem fyrr segir fyrsta
kvikmyndin í fullri lengd sem Björn
leikstýrir og því margt sem hann
hafði ekki reynt áður.
„Þetta var svolítið nýtt fyrir mér.
Þessi mikla vinna með leikurunum
sem fylgir gerð bíómyndar er
kannski það sem er nýjast í öllu þessu
ferli fyrir mig. Mér fannst alveg ein-
staklega gaman að því að vinna með
þessu fólki enda eru þetta alveg garg-
andi talentar," segir Björn. Þrátt fyrir
að Björn hafi ekki gert kvikmynd í
fullri lengd áður hefur hann mikla
reynslu á sviði kvikmyndagerðar.
Hann hefur meðal annars leikstýrt
sjónvarpsauglýsingum og gert
heimildarmyndir.
„Þetta er náttúrlega mjög ólíkt því
sem ég hef verið að gera þar sem
þetta er verkefni sem tekur langan
tíma. 1 auglýsingagerðinni tekur allt
svo stuttan tíma og þegar verkefni er
búið byrjar maður á einhverju nýju.
Það var samt margt við þetta sem
mér fannst gaman að fást við þannig
að ég held að ég ætli að reyna að gera
eitthvað meira á þessu sviði. Ég hef
alla vega áhuga á því,“ segir Björn
sem ætlar þó fyrst að sjá hvernig til
tekst með fyrstu myndina áður en
hann snýr sér að þeirri næstu. Hann
telur þó ólíklegt að hann muni gera
framhald af Kaldri slóð.
„Þessi saga býður í sjálfu sér ekki
upp á eitthvert framhald. Hins vegar
er ekki útilokað að maður eigi eftir
að gera fleiri myndir af þessari gerð
efþað er áhugi á því, sem ég vona að
sé,“ segir Björn.
Söluréttur til útlanda
Þrátt fyrir að Köld slóð verði frum-
sýnd í dag hefur sölurétturinn á
henni erlendis þegar verið seldur til
sænska fyrirtækisins Nonstop Sales.
Það er í sjálfu sér ekki óalgengt að ís-
lenskir kvikmyndagerðarmenn geri
samninga um sölu og dreifingu á
myndum sínum við erlend fyrirtæki
en þeir hafa yfirleitt verið gerðir eftir
að þær hafa verið frumsýndar.
„Þetta er svolítið skemmtilegt
því að það er ekki einu sinni búið
að frumsýna myndina og þeir eru
ekki búnir að sjá hana í endanlegri
gerð heldur bara á grófklipptu stigi.
Það er auðvitað gaman að því ef ein-
hverjir eru ánægðir með það sem
maður hefur gert og telja að það eigi
erindi víðar,“ segir Björn.
Nonstop mun sjá um kynningu og
dreifingu á myndinni erlendis meðal
annars á kvikmyndahátíðum.
„Þeir eru sérfræðingar í því og það
er náttúrlega miklu betra að láta
fagmenn um hlutina fremur en að
menn séu alltaf að reyna að finna
upp hjólið eða gera allt sjálfir í fyrsta
sinn. Ég held að það sé alltaf affara-
sælla,“ segir Björn sem þorir ekki að
spá fyrir um hvernig erlendir kvik-
_
SMÁAUGLÝ SINGAR
blaöiðn
SMAAUGl-VSINGAR@BLADiD.NET
myndahúsagestir muni taka spennu-
mynd frá Islandi.
Rennt blint í sjóinn
„Ég veit ekki einu sinni hvernig
henni verður tekið hér þannig að ég
á erfitt með að tjá mig um það. Það
er nú einu sinni svo með bíómyndir
að þó að það sé varið miklum pen-
ingum í að búa þær til, sérstaklega
í Hollywood, renna menn alltaf
svolítið blint í sjóinn. Það er aldrei
hægt að segja fyrir um hvernig mark-
aðurinn bregst við þeim. Það virð-
ist engin formúla vera til fyrir því,“
segir Björn.
Það sætir einnig tíðindum við
gerð Kaldrar slóðar að Sena sem er
stærsta dreifingarfyrirtæki kvik-
mynda hér á landi kemur að gerð
hennar. „Sena hefur aldrei áður lagt
peninga eða komið með beinum
hætti að framleiðslu íslenskrar kvik-
myndar. Við vorum mjög ánægð
með að þeir skyldu vilja taka þátt í
þessu verkefni. Það er ýmislegt sem
sýnir að menn hafa einhverja tiltrú
og áhuga á þessu verki sem er mjög
uppörvandi.
Eg vona að þetta lukkist vel og það
verður náttúrlega mjög gott fyrir kvik-
myndagerðina hér ef dreifendurnir
eru til í að koma meira að gerð mynd-
anna, hjálpa til við að fjármagna þær
og svo framvegis. Ég held að það
muni ekki gera annað en að skjóta
fleiri stoðum undir kvikmyndagerð-
ina og gefa okkur fleiri tækifæri til
að gera myndir,“ segir Björn Brynj-
úlfur Björnsson að lokum.