blaðið - 30.12.2006, Blaðsíða 4
4
LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2006
blaftið
Hreindýrakvóti aukinn
Umhverfisráðuneytiö hefur ákveðiö að auka
veiðikvóta hreindýra úr 909 upp í 1137 dýr árið
2007. Kvótinn skiptist þannig að það má veiða
577 kýr og 560 tarfa. Verð veiðileyfa verður
auglýst frekar í þyrjun næsta árs.
Beðið eftir rannsókn
„Niðurstöður rannsóknarinnar skýrast í janúar en
þá ættu málin að skýrast," segir Kristján Loftsson,
útgerðarmaður og eigandi Hvals hf. Sýni voru tekin úr
þeim níu langreyðum sem veiddust í haust til að mæla
magn kvikasilfurs, PCB og annarra efna í kjötinu.
FRJÁLSVERSLUN
Róbert Wessman maður ársins
Róbert Wessman, 36 ára forstjóri Actavis Group, er maður
ársins í íslensku atvinnulífi að mati dómnefndar Frjálsrar
verslunar. Viðurkenningin var afhent í veislu sem tímaritið
hélt á Hótel Sögu Róberti til heiðurs í gær og afhenti forsæt-
isráðherra, Geir Haarde, honum viðurkenninguna.
Skaðabótamál:
Olíufélög
íhuga áfrýjun
„Við munum hittast eftir ára-
mót og ræða framhald málsins,"
segir Gísli Baldur Garðarsson,
lögmaður
Olís. Hér-
aðsdómur
Reykjavíkur
dæmdi um
miðjan
desember
olíufélögin
þrjú, Essó, Skeljung og Olís, til
að greiða Reykjavíkurborg tæpar
8o milljónir króna í skaðabætur
vegna verðsamráðs.
Gísli segir ekki liggja fyrir
hvort málinu verður áfrýjað
til Hæstaréttar en frestur til
að áfrýja rennur út um miðjan
janúarmánuð.
ísraelsher:
Drepur þrefalt
fleiri en í fyrra
ísraelsher hefur drepið 66o
Palestínumenn það sem af er
ári 2006
samkvæmt
ísraelsku
mannréttinda-
samtökunum
BTselem.
Fjöldi fórnar-
lamba reikn-
ast þrisvar
sinnum meiri en árið 2005.141
palestínsku fórnarlambanna
voru börn.
Samtímis hafa 23 ísraelar látið
lífið í árásum Palestínumanna
á árinu. f nóvember sátu 9.075
Palestínumenn í ísraelskum fang-
elsum og af þeim sátu 738 inni
án þess að hafa verið ákærðir.
:rv
Fögurdyr ehf. og Birtingur sameinuð undir eignarhaldi Hjálms:
Birtíngur í fjölmiðla-
kapli Baugs
■Reykjavík Mag selt Grapevine ■ Hjálmur meö 60 prósenta eignarhald
Eftir Val Grettisson
valur@bladid.net
Fyrirtækið Birtíngur sameinaðist
Fögrudyrum ehf. sem eru í eigu
Hjálms í gær. Birtingur hefur
haldið úti útgáfum á allnokkrum
tímaritum en Fögurdyr hafa hingað
til eingöngu gefið út ísafold. Dag-
inn þar áður keyptu Fögrudyr öll
tímarit 365 miðla. Samkvæmt frétta-
tilkynningu sem var gefin út segir
að tímaritin Mannlíf, Hér og Nú og
Veggfóður verði lögð niður.
Eignarhlutur Hjálms verður 60
prósent en félagið er alfarið í eigu
Baugs. Hjálmur á einnig hið nýja
dagblað sem gengur undir nafninu
Dagblaðið-Vísir útgáfufélagið ehf.
Feðgarnir Janus Sigurjónsson og Sig-
urjón M. Egilsson eiga ellefu prósent
í því blaði. Þá á Baugur rétt rúm 25
prósent í 365 miðlum og því nokkuð
ríkjandi á fjölmiðlamarkaði.
Feðgarnir Jón Trausti Reynisson
og Reynir Traustason deila 10 pró-
senta hlut í hinum nýja Birtíngi
ásamt Elínu Ragnarsdóttur sem
gegnir framkvæmdastjórastöðu
og Mikael Torfasyni, yfirritstjóra
á Birtíngi. Einnig mun Reynir
Traustason, ritstjóri Isafoldar, verða
yfirritstjóri en í tilkynningu segir
að það verði á öðru sviði en því sem
Mikael gegnir.
V: %!
‘(1111‘llil lli
ál _ •;
t I AJ
rr
f ■U' v
l j*. -■» Clí*-**
sh£ sm? St-c f^jk«r5Hi
x I JPMQH
l A A
> ... 'iíwö
ÍÉiÉL%^JÍt
’
4-e
—- ,r ■
íáfeásr Vi*>£
Z E D R U S
persneskar mottur húsgögn gjafavörur
www.zedrus.is
i ilíóarsmárti 11 S. 334 22SS
Baugur
Sigurjón Már Egilsson
Janus Sigurjónsson
100%
Reynir Traustason
Jón Trausti Reynisson
Mikael Torfason
Elín G.
Ragnarsdóttir
11% 40%
49%
60%
LL eignir*
28%
10%
2%
Dagblaðið-Vísir útgáfufélagið
Hreinn Loftsson
stjórnarformaöur
Birtíngur
‘Sigurður G. Guöjónsson
stjórnarformaður
Flókinn kapall Gríðarlegar sviptingar hafa verið innan fjölmiðlaheimsins en svo virðist sem eignarhald hafi þó lítið
breyst.
Stjórnarformaður Birtíngs er
Sigurður G. Guðjónsson en það
er óvíst hvort hann gegnir þeirri
stöðu áfram. Hann er einnig stjórn-
arformaður Blaðsins en Arvakur
á helming í því. Stjórnarformaður
hins nýja dagblaðs verður Hre-
inn Loftsson. Framkvæmdastjóri
Hjálms er Hjálmar Blöndal sem
gegndi stöðu aðstoðarmanns Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar, eiganda
Baugs.
Samkvæmt heimildum mun
ákvörðun um sameiningu hafa
gengið hratt fyrir sig og aðdrag-
andinn verið stuttur. Á undan-
förnum dögum hefur verið lagður
allnokkur fjölmiðlakapall þar
sem 365 miðlar hreinsuðu í burtu
nær alla miðla sem þeir höfðu
fyrir utan Fréttablaðið og Stöð
tvö. Einnig hafa verið hreyfingar
innan Stöðvar tvö en Heimir Jónas-
son, yfirmaður dagskrárgerðar hjá
Stöð tvö, lét af störfum í vikunni.
Þá mun Pálmi Guðmundsson taka
við hans störfum en hann hefur
hingað til unnið á auglýsingadeild
stöðvarinnar.
Svo mun Fröken ehf. hafa fengið
útgáfuréttinn á tímaritinu Reykja
vík Mag sem er skemmtirit á ensku.
Frökenin gefur einnig út Grapevine
sem var helsti samkeppnisaðili
tímaritsins. Samkvæmtheimildum
mun framtíð blaðsins vera óráðin.
Utanríkisráðuneytið:
Rannsakar gögn
sem bárust Blaðinu
Rannsókn er hafin á því hvernig
Blaðinu bárust afrit af tveimur
bréfum sem Jóhann R.
Benediktsson sýslumaður
sendi til norsku leyniþjón-
ustunnar (NoDISS) og
varnarmálaráðuneytisins
í Noregi. Hann undir-
ritaði bréfið sem fram- ssgg
kvæmdastjóri Icelandic ____
Intelligence Service, eða iSgg |g|É
í nafni Islenskrar leyni-
þjónustu og merkti með iSHIg
skjaldarmerkinu og gfg|f§ %- *
merki NATO.
Morgunblaðið greindi ríi
frá rannsókninni í ar^
gær.
Sýslumaðurinn
sagði í viðtali við
Blaðið fyrir jól að
Blaðið 21. des
Afrit af bréfi Jóhanns Ut-
anríkisráðuneytið rannsakar
hvernig bréfin bárust B/aðinu.
Icelandic Intelligence Service stæði
fyrir greiningardeild á vegum sýslu-
mannsembættisins á
Keflavíkurflugvelli. Tit-
illinn væri vinnuheiti
til að auðvelda samstarf
embættisins við her-
veldið NATO.
I bréfunum þakkaði
Jóhann norskum yfir-
manni í varnarmála-
ráðuneytinu og hjá NoD-
ISS fyrir námskeið sem
haldið var hér á landi í
október. Hann tilkynnti
utanríkisráðuneytinu um
að hann myndi ekki
senda fleiri bréf sem
framkvæmdastjóri
IIS eftir umfjöllun
Blaðsins.
Ár og dagur:
Lögbann og
skaðabótamál
Stjórn
Árs og dags,
útgáfufélags
Blaðsins,
íhugar að
leggja fram
lögbanns-
kröfu á störf
Sigurjóns
M. Egilssonar, fyrrverandi
ritstjóra Blaðsins, fyrir Dag-
blaðið - Vísi útgáfufélag ehf. Þá
íhugar stjórnin ennfremur að
höfða skaðabótamál á hendur
Sigurjóni fyrir samningsbrot.
„Þetta verður tekið fyrir á stjórn-
arfundi sem væntanlega verður
haldinn í næstu viku,“ segir
Karl Garðarsson, framkvæmda-
stjóri Árs og dags. 365 miðlar
hafa selt útgáfuréttinn á DV og
mun Sigurjón ritstýra nýju blaði.