blaðið - 30.12.2006, Blaðsíða 26

blaðið - 30.12.2006, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2006 blaöið Ekkert rosalega fyndinn gaur Aramótaskaupið á órjúfan- legan sess í hjörtum lands- manna og það sést vart maður á ferli þegar það er sýnt á gamlárskvöld. I skaupinu er dregin upp mynd af því sem gerst hefur í þjóðfélaginu á árinu en allir hafa mjög ákveðnar skoðanir á því ár hvert. I ár leikstýrir Reynir Lyng- dal áramótaskaupinu en hann segist vera spenntur yfir viðbrögðunum. „Þetta er svolítið ógnvekjandi en samt skemmtilegt. Ég er mjög spenntur að sjá hvað fólki finnst en sjálfur er ég mjög öruggur með þetta, allavega núna,“ segir Reynir og hlær. „Ég veit ekkert hvernig ég verð á gamlárs- kvöld. Það hafa allir skoðun á ára- mótaskaupinu en ég get ekki horft í það. Efnið er náttúrlega tekið út frá sjálfum mér og þeim sem skrifuðu skaupið og maður verður að fylgja því og treysta að það sé fyndið.“ Miklir snillingar skrifa skaupið Handritshöfundaráramótaskaups- ins eru Þorsteinn Guðmundsson, Margrét Örnólfsdóttir, Ari Eldjárn, Úlfur Eldjárn og Hugleikur Dagsson en Reynir segist ekki hafa verið í vafa hverja hann vildi með sér. „Ég valdi þau því þetta er allt klárt fólk og allir með tölu miklir snillingar. Ég hef annað hvort unnið með þeim áður eða dáðst að þeim úr fjarska. Samt sem áður þurfti ég aðeins að hugsa málið þegar mér var boðið verkefnið því mér fannst tíminn dá- lítið knappur. Ég tók mér tvo daga til að hugsa málið og í millitíðinni und- irstakk ég það fólk sem ég vildi skrifa með því það var forsendan fyrir því að vinna skaupið. Ég er mjög þakk- látur því þetta frábæra fólk sagði já við mig samstundis og það er mikill heiður fyrir mig að þau treysti mér fyrir þessu. Það skiptir svo miklu máli að vera með rétta fólkinu því það auðvddar vinnuna. Nú er ég ekkert rosalega fyndinn gaur, ég er í mesta lagi sniðugur en hins vegar er þetta fólk fyndið.“ „Ég tók mér tvo daga til að hugsa málið og í millitíðinni undir- stakk ég þaðfólk sem ég vildi skrifa með þvt það var forsendan fyrir því að vinna skaupið. Ég er mjög þakklátur því þetta frábæra fólk sagði já við mig sam- stundis og það er mikill heiður fyrir mig að þau treysti mérfyrir þessu." Fólkið í landinu Reynir og ritnefndin höfðu mánuð til að skrifa skaupið og svo var það myndað í nóvember. „Síðan höfum við verið að klippa og hljóðsetja og við fullkláruðum skaupið á fimmtu- daginn. Ég er búinn að horfa á end- anlegu útgáfuna og mér líst mjög vel á þetta. Við tókum þá ákvörðun að gera áramótaskaup með þema og ég lagði línuna sem var fólkið i landinu. Það vill náttúrlega til að frægt fólk og stjórnmálamenn eru líka fólkið í landinu og það má alveg gera grín að þeim. Við reyndum að ná stemn- ingunni í þjóðfélaginu frekar en að fylgja atburðum líðandi árs en að sjálfsögðu er fullt af atburðum í ska- upinu. Þetta var rosalega skemmti- leg vinna, mjögkrefjandi og ákveðin áskorun en fyrst og fremst skemmti- legt. Ég var með gott fólk að vinna þetta með mér og valinn maður í hverju rúmi,“ segir Reynir og bætir við að hann ætli að horfa á skaupið á gamlárskvöld og vona það besta. „Ég verð með góðum vinum í matar- boði og horfi á áramótaskaupið með þeim. Ég er spenntur fyrir þessu, enda er þetta náttúrlega frumsýn- ing. Hluti af fólkinu sem ég borða með leikur í skaupinu þannig að þau eru meðvirk og þeim verður að finn- ast það skemmtilegt.“ Stuttmyndagerð heldur mér ferskum Reynir hefur leikstýrt fjöldanum öllum af stuttmyndum, mynd- böndum og auglýsingum og það má segja að hann hafi byrjað í brans- anum þegar hann var 14 ára gamall. „Ég og Arnar Jónasson unnum Stutt- myndahátíðina í Reykjavík þegar ég var 14 ára og eftir það varð ekki aftur snúið. Ég hef gert þó nokkuð af stuttmyndum í gegnum tíðina en síðasta mynd mín heitir Töframað- urinn og er á alvarlegri nótunum. Töframaðurinn er byggð á smásögu eftir Jón Atla Jónasson rithöfund og hefur verið sýnd úti um allan heim. Þar á undan vann ég dansmynd með Katrínu Hall sem vann til fjölda verðlauna um allan heim. En fyrst og fremst hef ég ofan í mig og á með því að gera auglýsingar. Stutt- myndagerðin er meira til að halda mér ferskum og fóðra sjálfan mig. Ég hef verið að vinna mikið að aug- lýsingum á þessu og síðasta ári, þar á meðal KB banka auglýsingarnar með Þorsteini Guðmundssyni og Landsbankaauglýsingarnar.“ k m að Mkstýra Reynir er mjög sáttur í starfi sínu, enda segir hann að starfið sé sitt heista áhugamál. „Ég var svo ungur þegar ég byrjafti á þessu aft ég náði ekki að finna mér annað áhugamál. Reyndar ætlaði ég að verða lcikari eða forseti þegar ég var barn. Ég er feginn að ég fór þessa leið því ég hef ekki talandann í leikarastarfið, starf mitt er svipaft en það sést ekkert í mig. Það er algjörlega stórkostlegt að geta sameinað vinnu og áhugamál og ég kann ekkert annað en að leik- stýra. Sem betur fer ferst mér þetta ágætlega úr hendi, þótt ég segi sjálfur frá. Ég ætla að halda þessu áfram svo lengi sem ég hef gaman af að mæta í vinnuna. Vonandi verður það sem lengst því mér finnst þetta það skemmtilegt og mér finnst ég verða betri með tímanum. Það koma tíma- bil þar sem mér finnst ég staðna en svo lengi sem maður nær að þroska sig þá held ég þessu áfram,“ segir Reynir sem segist stundum ekki vera dómbær á verk annarra kvikmynda- gerðarmanna. „Ég held að stundum sé maður dómbær á verk annarra en stundum alls ekki því ég horfi á hlut- ina frá allt öðru sjónarhorni en hinn almenni áhorfandi. Ég reyni að gera hlutina eftir bestu getu og ég held að flestir geri það í þessum bransa. Upp til hópa finnst mér meirihlutinn af ís- lenskum kvikmyndagerðamönnum fagmannlegir, hugmyndaríkir og sterkir í sínu starfi.“ Meiri fagmennska í kvikmyndagerð Reynir er menntaður í kvikmy nda- gerð og segist telja að fagmennskan sé orðin meiri í íslenskri kvik- myndagerð. „íslensk kvikmynda- gerð er frekar ung en eftir því sem fleiri mennta sig í henni, leikstjórn og fleiru, þá verður fagmennskan meiri. Mér finnst fagmennskan líka vera meiri í öllu þjóðfélaginu. Við áttum okkur á því að við verðum að standast samanburð við önnur Iönd. Það er mikill ágangur erlendra kvik- mynda- og auglýsingagerðarmanna sem vilja gera verk sín hér og þannig hefur skapast sterk fagmennska innan geirans sem er algjörlega ómetanleg. Við finnum mikið fyrir því að útlendingar eru hrifnir af ís- lensku starfsfólki í þessum geira, hér er hægt að gera allt og hver maður gengur mjög fagmannlega í sitt starf.“ Reynir lærði kvikmyndagerð í Barcelona og segir að það hafi verið gott að fá fræðilega nálgun á starfið. „Það er nauðsynlegt að vinna og læra af mistökunum en samt sem áður er gott að fá smá pásu og geta bara lesið sér til, sérstaklega i mínu tilviki því ég var búinn að vinna í nokkur ár áður en ég fór í skóla. Ég vona og held að ég hafi orðið betri kvik- myndagerðarmaður eftir námið.“ Kvikmynd í fullri lengd Aðspurður af hvaða verkefni sínu Reynir sé stohastur segist hann alltaf vera spenntastur og stoltastur af því sem hann geri næst. „Nú er ég voða stoltur af áramótaskaupinu sem mér finnst voðalega flott og skemmtilegt höfundarverk. Ef ég lít einungis á þetta ár þá er ég stoltastur af tónlistar- myndbandi sem ég gerði fyrir Trabant við lagið The one sem er tilnefnt til íslensku tónlistarverðlaunanna. Það var svo skemmtilegt að gera mynd- bandið og gott fólk sem vann með mér. Skemmtunin stendur yfirleitt frekar upp úr heldur en endanlega útkoman," segir Reynir sem stefnir á að gera kvikmynd í fullri lengd bráð- lega. „Ég og Jón Atli Jónasson höfum verið með handrit í maganum sem er komið á blað og hefur verið í þró- unarvinnslu í dágóðan tíma. Vinnu- titillinn að myndinni er Horfinn og þetta er eins konar sálfræðilegur tryllir með dramatísku ívafi. Þetta er mjög spennandi og skemmtilegt verk- efni enda er stutt á milli hláturs og hræðslu. Vonandi kemst það verkefni í gang á næsta ári og svo er ég með nokkur önnur verkefni í deiglunni, nokkrar bækur sem ég er að skoða.“ Stórkostlegt að vera pabbi Reynir er giftur Elmu Lísu Gunn- arsdóttur leikkonu og segist vera afskaplega vel giftur. „Ég er mjög ástfanginn af konu minni og það er óskaplega gaman á okkar heimili sér- staklega af þvi að við deilum áhuga- máli okkar, leiklist. Auk þess á ég yndislega dóttur sem er að verða fimm ára gömul. Hún var einmitt að koma frá Afríku í gær en hún eyddi jólunum þar ásamt móður sinni og fósturpabba. Henni fannst skrýtið að eyða ekki jólunum á Islandi en hún lofaði að koma heim með mynd af sér á úlfalda. Það er stórkostlegt að vera pabbi. Þegar maður eignast börn setur maður lífið í annað sam- hengi. Eigingirnin minnkar og það er einhvern veginn þannig að sama hversu sterkt maður metur sjálfan sig þá myndi maður gefa útlimi svo það væri í lagi með barnið,“ segir Reynir og bætir við að lífið sé oftast gott. „Við hjónin vinnum mikið og þessi vinna okkar er svolitið tarna- kennd þannig að við reynum að njóta samverustunda þess á milli. Við reynum að taka stór og mikil frí en í tilfelli okkar beggja þá er vinnan áhugamál og við lifum og hrærumst í henni. Það er mjög gott því þar höfum við stuðning hvort af öðru. Að öðru leyti er þetta frábært, ég hef að minnsta kosti heilsuna, enda er ég ekki nema þrítugur." svanhvit@bladid.net

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.