blaðið - 30.12.2006, Blaðsíða 8

blaðið - 30.12.2006, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2006 blaftið Stríðslánin ioks greidd Bretar greiddu síðustu afborganirnar af lánum vegna stríðsreksturs og uppbyggingar í kjölfar síðari heimsstyrjaldarinnar í gær. Greiðslurnar voru annars vegar 83 milljónir dala til Bandaríkj- anna og hins vegar 23 milljónir dala til Kanada. l!ll.lWvji p Hernaðarútgjöld aukin Kinversk stjórnvöld hafa lýst því yfir að þau muni auka útgjöld til hernaðar. Ákvörðunin er rökstudd með því að deila Kínverja við Ta- ívana sé ein af mörgum sem ógni öryggi ríkisins í heimshlutanum. í skýrslu kemur fram að sérstök áhersla verði lögð á að bæta búnað flug- og sjóhersins. Klónuð dýr örugg til manneldis Kjöt og og mjólkurafurðir klónaðra dýra eru jafn öruggartil manneldis og afurðir nauta, svína og geita ræktaðra með hefðbundnum hætti samkvæmt Mat- væla- og lyfjaeftirliti Bandaríkjanna. Fimm ártók að vinna rannsóknina. Wlmskqii SQ"/o-f/ iRÍanókennslnlfyrirfalla aldurshópa. iSkolinnltékurttiraarfá 4.'ian. 2007. iRíahókennslaifyrir: 5 - 7 ára ■■P’ '~m*tí-17ára 18 ára og eldri 67 ára og eldri Upplýsingar og innritun heimasíðu skólans. www.tonskoiisolati.net eia í sima: 557 7955 I eldri u SMÁAUGLÝSINGAR GEFA/MGGIA blaðið SMAAUGLYSJNGAR@SBLA0I0.WE1 Minningarkort Minningar- og styrktarsjóðs hjartaskjúklinga ^a' HjartaHeill sími 552 5744 Gíró- og kreditkortþjónusta Aldrei of seint að ganga menntaveginn Skoðið www.namsflokkar.is Eftir Atla isleifsson atlii@bladid.net Lögmenn Saddams Husseins, fyrrum Iraksforseta, hafa staðfest að þeir hafi verið beðnir um að nálgast persónulegar eigur Husseins í fang- elsinu þar sem honum hefur verið haldið. Fréttir bárust af því í gær að Bandaríkjamenn hefðu framselt Hussein til íraskra yfirvalda sem myndu framfylgja dauðadómnum, hugsanlega í dag. Talsmaður íraska varnarmálaráðuneytisins, þar sem ákvörðun er formlega tekin um tíma- setningar aftakna, lýsti því þó síðar yfir að forsetinn fyrrverandi væri enn í haldi Bandaríkjahers og yrði ekki Hflátinn fyrr en eftir 26. janúar. Hussein var leyft að hitta tvo hálf- bræður sína sem einnig eru í haldi lögreglu á fimmtudaginn. Badie Aref, lögmaður Husseins, sagði að hann hefði afhent bræðrunum bréf til fjölskyldunnar. „Hann er tiltölu- lega ómeðvitaður um hvað er að gerast í kringum sig en hann er til- búinn að deyja sem píslarvottur.“ Hussein var dæmdur til dauða í nóvember fyrir morð á 148 sjíta- múslímum í Dujail árið 1982. Áfrýj- unardómstóll staðfesti dóminn á annan dag jóla og ákvað að Hussein yrði tekinn af lífi innan þrjátíu daga. Réttarhöld vegna ákæru á hendur honum vegna þjóðarmorðs á Kúrdum standa þó enn. Nouri Maliki, forsætisráðherra Iraks, sagði í gær að ekkert gæti hindrað af- tökuna á glæpamanninum Hussein. ,Allir þeir sem vilja hindra aftökuna á Hussein eru að grafa undan heiðri íraskra píslarvotta.“ íraskir öryggisráðgjafar segja að ekki verði gefið upp hvar og hvenær Hussein verður hengdur og má telja líklegt að tilkynning muni fyrst berast eftir að hann er látinn til að draga úr líkum á óeirðum og hryðju- verkum. Aftakan verður fest á filmu en ólíklegt er að myndirnar verði gerðar opinberar. Fjölmiðlamenn munu ekki fá að vera viðstaddir aftökuna. Hussein hefur verið í haldi Banda- ríkjahers í Camp Cropper í Bagdad. Hefð er fyrir því að dauðadæmdir fái eina síðustu máltíð að eigin vali. Fanginn fær hana tólf tímum fyrir aftöku. Samkvæmt heimildum The Mirror mun sú máltíð að öllum lík- indum samanstanda af Burger King hamborgara og frönskum kartöflum. ,Hann borðar talsvert af skyndi- bitamat í klefanum sínum. Honum finnst hamborgarar og pitsur góðar,“ segir saksóknarinn Jaafar Musawi í samtali við Gulf News. Opnunartimi: Virka daga 16 - 22 Um helgar 12-22 Hækkaðu þig upp um einn PRPINOS Núpalind 1 Kópavogi Hverafold 1-5 Grafarvogi Reykjavíkurvegi 62 Hafnarfirði Línur að skýrast á strandstað: Tryggt upp í topp Eftir Trausta Salvar Kristjánsson traustis@bladid.net Ljóst er að kostnaður við björgunar- störf og dælingu á olíu við björgun Wilson Muuga hleypur á tugum ef ekki hundruðum milljóna. Guð- mundur Ásgeirsson, stjórnarfor- maður Nesskipa, sem er móðurfé- lag Unistar fyrirtækisins sem er skráður eigandi skipsins, segist ekki vita heildartölu alls kostnaðar, það sé tryggingamál, en skipið er tryggt hjá norska skipatryggingafé- laginu Gard. Christen Guddal, varaforseti hjá Gard-tryggingafélaginu, segir engar tölur um kostnað hafa borist fyr- irtækinu, en að Wilson Muuga sé tryggt að fullu á grundvelli þeirra for- sendna sem þegar hafa komið fram. Aðspurður gat hann ekki tjáð sig um orsakir slyssins né um hversu háa tryggingarfjárhæð er að ræða. Því er enn óljóst hvort tryggingarfé nær að dekka kostnaðinn við björgun skips- ins. Sigurður Örn Guðleifsson, lög- maður hjá Umhverfisstofnun, segir engar kostnaðartölur liggja fyrir að sinni en væntanlega muni það skýr- ast skömmu eftir áramót. Hefðbundinni olíudælingu úr skipinu er að mestu lokið að sögn Hávars Sigurjónssonar hjá Umhverf- isstofnun. Þó er eftir að fleyta olíu af sjó sem er 1 lest skipsins með sér- stökum skiljum sem síðan er dælt í tanka sem íoks verða hífðir í land. Þá tekur við ferli sem snýr að niður- rifi skipsins. Það verk verður að öllum Hk- indum boðið út.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.