blaðið - 30.12.2006, Blaðsíða 30

blaðið - 30.12.2006, Blaðsíða 30
blaðið 30 hhvw^*' ™ 30. DESEMBER 2006 f Tónleikar í Stúdentakjallaranum Blásið verður til göróttra tónleika í Stúdentakjallaranum í kvöld klukkan 22. Þar koma fram Gavin Portland, Retron, Johnny Sexual og Donna Mess. Einnig verða Snatan Ultra og Stuð- munds með skemmtiatriði. Aðgangseyrir er 500 kr. Tangóball í Iðnó Fyrsta tangóball ársins verður haldið þriðjudaginn 2. janúar í Iðnó. Boðið verður upp á byrjendakennslu í argentínskum tangó klukkan 20-21 og síðan dansað við ekta argentínskan tangó fram eftir kvöldi. Aðgangseyrir er 500 krónur og er kennsla innifalin. helgin@bladid.net Nýju ári fagnaö Nýju ári verður fagnað með ýmsum hætti á gamlárskvöld og nýársdag og víða efnt til dansleikja og nýársfagnaða. Þó að flestir kjósi að verja þessum tímamótum í faðmi fjölskyldu og ástvina eru einnig margir sem fagna á skemmtistöðum og veitingastöðum. Á skemmtistaðnum Broadway sér Sálin hans Jóns míns um að halda uppi stuðinu á gaml- árskvöld og hefst gleðin á mið- nætti. DJ Víkingur hitar upp fyrir Sálverja og í Norðursal verða Addi Exos og Grétar G og í Hip Hop herberginu DJ Björn Þór. Á skemmtistaðnum NASA við Austurvöll halda DJ Curver og DJ Kiki-Ow svokallað 90’s-partí á gamlárskvöld þar sem tónlist og tíska tíunda áratugarins verður í fyrirrúmi. Á Café Oliver verður einnig efnt til mikillar veislu á gamlárskvöld og verður húsið opnað klukkan 00:45 og á Pravda munu DJ Áki Pain og DJ Maggi Paranoya halda uppi stuði frá miðnætti og fram undir morgun. Á Hótel Borg verður nýársfagn- aðurinn með nokkuð lág- stemmdari hætti en undanfarin ár, enda hafa talsverðar breyt- ingar átt sér stað á hótelinu. Efnt verður til nýárskvöldverðar á veitingastaðnum Silfri sem hefst upp úr 18:30 og stendur fram eftir nóttu. Djasshljóm- sveit leikur létta tónlist yfir borðum, völva lætur sjá sig og leynigestur. í Perlunni hefur einn glæsi- legasti nýársfagnaður ársins farið fram undanfarin ár og verður engin breyting þar á að þessu sinni. Boðið verður upp á sjöréttaða máltíð og óvænta skemmtidagskrá og dans fram eftir nóttu. MMMM...GLÓDAÐUR Möst á djamminu : Opið til kl. 05:00 á laugardags og ! til kl. 07:00 á sunnudagsmorgnum Lækjargata 8 Pops rís úr dvala Hljóm- sveitin Pops með Eirík Hauksson og Óttar Feiix Hauksson fremsta meðal jafningja leikur að venju fyrir dansi á nýársfagnaði 68-kynslóðarinnar. Fáum ekki að hætta Hin fornfræga hljómsveit Pops vaknar af værum blundi einu sinni á ári, nánar tiltekið á nýársdag, og leikur fyrir dansi í Súlnasal á Hótel Sögu á nýársfagnaði 68-kyn- slóðarinnar svokölluðu. Að auki heldur hljómsveitin yfirleitt tvenna tónleika á Kringlukránni fyrstu helgina í janúar áður en hún leggst í dvala á ný. Óttar Felix Hauksson, gít- arleikari Pops, segir að hljómsveitin hefji yfirleitt vikulegar órafmagnað- ar æfingar fyrir nýársfagnaðinn í október. Á þriðja i jólum er stungið í samband og æft upp á hvern dag þannig að hljómsveitin verði í fínu formi þegar á hólminn er komið. Aldrei mætt sterkari til leiks Óttar segir jafnframt að nýárs- fagnaðurinn leggist vel í sig að þessu sinni og Pops hafi aldrei mætt sterk- ari til leiks á Sögu en núna. „Eiríkur Hauksson og Sigurgeir Sigmundsson komu inn í þetta í fyrra og slógu eftirminnilega í gegn þannig að menn eru fullir tilhlökk- unar að takast á við verkefnið," segir Óttar Felix. Á efnisskránni verða gömul og góð lög frá þeim tíma þegar hljóm- sveitir á borð við Bítlana og Rolling Stones trylltu ungmenni með lög- um sínum og ljóðum. Á milli 60 og 70 lög eru á efnisskránni, enda af nógu að taka. „Við förum alltaf yfir efnisvalið og skiptum lögum út og setjum „nýtt“ gamalt efni inn i staðinn. Þetta er allt frá árunum 1963-1972. Það er Litríkir hlauparar Gamlárshlaup ÍR verður þreytt í 31. skipti á gamlársdag og hefst það klukkan 13 við Alþingishúsið. Hefð er fyrir þvi að margir hlauparar taki þátt í hlaupinu í alls kyns furðuföt- um og er ekki óalgengt að þar bregði fyrir trúðum, brúðhjónum og jafn- vel jólasveinum í fullum skrúða. Er hlaupið þvi mikið sjónarspil og Ijóst að hlauparar taka sig ekki alltof há- tíðlega á síðasta degi ársins. Hlaupin verður tíu kílómetra leið sem liggur vestur í bæ, út á Sel- tjarnarnes, til baka um Ægisiðu og Suðurgötu að endamarki við Ráð- húsið i Tjarnargötu. Alls er keppt í 14 flokkum í hlaup- inu, sjö flokkum karla og kvenna. Flokkarnir eru: 18 ára og yngri, 19- 39 ára, 40-44 ára, 45-49 ára, 50-54 ára, 55-59 ára og 60 ára og eldri. Allir þátttakendur fá verð- launapening en að auki fá fyrstu þrír sem koma í mark í karla- og kvennaflokki sérstök verðlaun. Boðið er upp á drykki og léttar veitingar að hlaupi loknu. Þátttakendur geta skráð sig til leiks á vefsíðunni hlaup.is til miðnættis í kvöld og á hlaupadegi verður hægt að skrá sig á staðnum í Oddfellow-húsinu, Vonarstræti 10 frá klukkan 11. Þátttakendur eru beðnir um að sýna varúð, enda er um götuhlaup að ræða. Ökumenn og aðrir vegfarendur eru einnig hvattir til að sýna hlaupurum tillits- semi og skilning. Nánari upplýsingar má nálgast á vefsvæðinu hlaup.is. Gamlárshlaup ÍR Hlaupiö sem þykir eitt hið skrautlegasta á árinu veröur þreytt í 31. skipti á morgun. hið raunverulega sixties-tímabil að mínu mati og þá miða ég við Please, please me með Bítlunum sem kom út í febrúarbyrjun 1963 og ætli mað- ur myndi ekki enda með plötunni sem Led Zeppelin gaf út árið 1972,“ segir Óttar Felix. Ungtfólkinnan um Pops hefur leikið fyrir dansi á ný- ársfagnaði 68-kynslóðarinnar frá ár- inu 1993 og segir Óttar Felix að það sé alltaf jafngaman. „Þetta er frábær hópur og mikið fjör. Þó að það sé auglýst að ballið standi til klukkan fjögur þá fáum við ekki að hætta fyrr en í fyrsta lagi klukkan hálf fimm. Við fáum tvær stuttar pásur en annars er þetta al- veg hörkudjobb,” segir Óttar Felix. Óttar segir að sami kjarninn hafi sótt nýársfagnaðinn í öll þessi ár og er það einkum fólk sem var ungt á þeim tíma sem tónlistin varð til. „Það er samt alltaf eitthvað af ungu fólki innan um og það hefur aukist í seinni tíð. Það er að fíla þessa mús- ík enda höfðar hún til allra. Það er málið. Það er lykillinn að því hvað þetta er að verða fjölbreyttur hópur sem sækir þetta,“ segir Óttar Felix sem spáir hörkufjöri og hlakkar til að sjá hópinn. Auk Pops og Eiríks Haukssonar koma Bítl og Operudívurnar fram á nýársfagnaðinum. Húsið er opnað fyrir matargesti kl. 19 en þeir sem vilja aðeins fá sér snúning mæta á miðnætti. Æj ' æ Í916^| má ioop; m mvm

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.