blaðið - 30.12.2006, Blaðsíða 20
20
LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2006
blaöiö
Valgerður Sverrisdóttir,
ntanríkisráðherra
Gert er ráð fyrir að íslendingar skjóti upp
um eitt þúsund tonnum af flugeldum um
áramótin. Islendingar standa nú í viðræð-
um við nágrannaþjóðir um loftvarnir.
folk@bladid.net
HVAÐ FINNST ÞER?
Er ekki best að nota
þetta púður í loftvarnir?
Eg held að islenska þjóðin myndi nú ekki samþykkja það.
Er ekki best að njóta bara flugeldanna?"
HEYRST HEFUR...
Breiðst hefur út sá orðrómur
að yfirmenn á RÚV leggist
gegn því að starfsfólk þess eyði
kröftum sínum á bloggsíðum
og úthelli frekar hugsun sinni
og hugmyndum í þágu stofn-
unarinnar.
Sigmar Guð-
mundsson
lætur þetta
augsýnilega
sem vind um
eyru þjóta,
enda óstöðv-
andi sjarmatröll, en síða hans á
Moggablogginu er ein sú vinsæl-
asta. I síðustu viku heimsóttu
rúmlega 20.000 manns síðuna
og spurning hvort Páll Magnús-
son geti nokkuð annað en litið á
síðu hans sem ágætis auglýs-
ingu fyrir Kastljósþættina.
Hinir árlegu styrktartón-
leikar á vegum Einars
Bárðarsonar voru haldnir í
Háskólabíói á miðvikudag. Allir
helstu popparar landsins voru
mættir og kóngurinn sjálfur,
Bubbi Morthens, að sjálfsögðu
þar á meðal. Bubbi hefur aldrei
farið leynt með að heyrn hans
hafi skemmst
í gegnum árin.
í auglýsingum
frá ónefndu
bílaumboði
talaði hann
meira að segja
um að fjöl-
skylda sín væri við það að ærast
þegar hann horfir á sjónvarpið.
Þetta sannaðist baksviðs á
tónleikunum þegar ungstirnið
Ingó Idol mætti og heilsaði
kónginum. Lítið var um svör.
Bubbi heyrði ekki í Ingó. Ingó
gafst ekki upp og spurði hann
hvort gítarinn hans væri að nýr,
og enn svarar Bubbi ekki. Þá
hækkaði Ingó róminn verulega
og spurði aftur hvort gítarinn
væri nýr. Ekkert svar kom frá
Bubba, sem pakkaði saman
föggum sínum og arkaði út án
þess að heyra múkk.
dista@bladid.net
Fiskur og franskar,
soðið brauð og sushi
Aníta Briem er stödd á Islandi í
faðmi fjölskyldunnar og ætlar að
dvelja á landinu fram yfir áramót.
„Fyrir mér eru jólin tími sem ég
á með fjölskyldunni þar sem ég
get komið til hennar í ró og frið.
A enskri tungu er stundum tekið
svona til orða: „A dog is not just
for Christmas”. Þannig líður mér
um jólin. Ást, þakklæti og friður
eiga ekki bara við um jólin heldur
alla aðra daga. Svo finnst mér
myrkrið dásamlegt og mér líður vel
í myrkrinu.”
Flutt til Los Angeles
Aníta hefur flutt búferlum til
Los Angeles til að sinna leiklistar-
ferlinum frekar og þar hafa margir
aðrir Islendingar í svipuðum hug-
leiðingum sest að. „Ég er í góðu
sambandi við Gisla Rúnar Jónsson,
Steinunni Ólínu og fleira fólk. Það
er gott að eiga þau að og stundum er
bara voða gott að hitta fólk úr sama
heimi. Þá er til dæmis hægt að vitna
í gömul, islensk popplög án þess að
það þurfi nánari útskýringa við.”
Dæmigerður dagur í lífi hennar
i Los Angeles fer mestmegnis í að
lesa handrit, læra texta utan að, fara
i prufur, á fundi og tala við umboðs-
fólk. Aðspurð um hver munurinn
sé á lífinu í London, Islandi og Los
Angeles segir hún hann vera fremur
einfaldan: „Fiskur og franskar,
soðið brauð og sushi!“ Aníta segist
glamra aðeins á gítarinn þegar hún
komi heim eftir langan dag. „Þá fer
égyfir dagskrá morgundagsins áður
en ég sofna yfir kvikmynd sem ekki
er ráðlegt að sofna yfir, Blue Velvet
skapar undarleg draumamunstur,"
bætir hún við.
Hefur á tilfinningunni að ást-
armálin fari vel á nýju ári
Aníta hefur lagt góðan grunn að
leiklistarferli eftir strangt nám í
Royal Academy of Dramatic Art og
nú ætlar hún að sækja fram í Los
Angeles. Hún segir um mörg og ólík
svið að velja, leikhús, sjónvarp og
kvikmyndir en hvað sem verði sé
það vist að hún fáist við leiklistina
um ókomin ár. „Engin önnur starfs-
grein kemur til greina en leiklistin,
enda held ég að þú þurfir að vera
skrýtin í hausnum til að velja svona
starfsgrein ef þú ert ekki alveg viss,
hins vegar þykir mér gaman að
bæta við mig i tónlist.”
Aðspurð um hvernig líf það sé eig-
inlega að vera leikkona ein síns liðs í
harki í mannmargri borg, segir hún
að lífi sínu fylgi óvissa á ýmsum
sviðum og að starf hennar og líf sé
samtvinnað. „Líf þitt getur umturn-
ast á nokkrum vikum og felur í sér
fjarvistir frá fólkinu sem þér þykir
vænt um og allskonar vafasama pól-
itík. En ég er að læra á hverjum degi
hvernig það hentar mér best að taka
á svoleiðis málum. Ég hef mikið
lært og það hefur gert mig að sterk-
ari og betri manneskju.” Aðspurð
um hvort einhver hlýi henni um
hjartarætur eða hlusti á gítarspilið
hennar á kvöldin, svarar hún því
neitandi. „Standardinn er settur
svo hátt. En ég hef á tilfinningunni
að það mál fari mjög vel,” bætir hún
við í lokin.
dista@bladid.net
SU DOKU talnaþraut
Lausn síðustu gátu:
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum
frá 1-9 lárétt og lóðrétt (reitina, þannig
að hvertala komi ekki nema einu sinni
fyrir (hverri línu, hvort sem er lárétt eða
lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan hvers níu
reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út
frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins:
8 5 3 4
9 7 8
4 1 9 2
4
7 6 8 9 2 4
7
1 3
4
3 8 9 5
2 6 3 8 9 1 7 4 5
4 7 i 5 2 3 8 9 6
5 8 9 4 6 7 1 2 3
i 3 7 6 5 9 2 8 4
8 9 2 3 7 4 5 6 1
6 4 5 1 8 2 9 3 7
3 2 6 7 1 8 4 5 9
9 1 4 2 3 5 6 7 8
7 5 8 9 4 6 3 1 2
eftir Jim Unger
© LaughingStock Intemational Ino./dist. by United Media. 2004
Æi, geturðu ekki hjálpað
mér að ná páfagauknum?
Hvað bar hæst
í vikunni?
Gunnar Sigurjónsson, sóknarprestur
Þar sem ég er nýkominn til
landsins þá hef ég ekki náð
að fylgjast vel með fréttum. Mér
finnst það merkilegt að það eigi
að hengja Saddam Hussein og að
páfinn mótmælti því, þar sem
þeir eru alfarið á móti dauðarefs-
ingum. Að vísu hæfir refsingin
glæpnum en ég er ekki hlynntur
dauðarefsingum. Þar sem ára-
mót eru að koma og flugeldasala
hafin, þá hef ég hugsað mér að
halda áfram að styðja við bakið
á Hjálparsveit skáta, mér finnst
ekki annað koma til greina.
Þeir þurfa að vera með allan
búnað og tól og tæki til að geta
náð í mig næst þegar ég kemst
á veiðar. Ég týnist alltaf, fastir
liðir eins og venjulega, Gunnar
er týndur.“
Þórey Edda Elfsdóttir, (þróttakona
Það er margt búið að fjalla
um í vikunni. Það sem
mér fannst merkilegast var
meðal annars það hversu vel
hefur gengið að dæla olíunni
úr Wilson Muuga. Svo finnst
mér það líka merkileg ákvörðun
hjá forsvarsmönnum Alcan að
dreifa disknum hans Björgvins
Halldórssonar á öll heimili í
Hafnarfirði. Að lokum var verið
að velja íþróttamann ársins og
mér finnst Guðjón Valur vera vel
að titlinum kominn."
Davlð Smári Harðarson, söngvari
Mér fannst það ansi magnað
að fólk skyldi taka upp
á þvi að skila disknum hans
Björgvins Halldórssonar til
Rannveigar Rist eftir að Alcan
hafði gefið íbúum Hafnarfjarðar
diskinn. Ég hef hlustað á þennan
disk og mér finnst hann mjög
góður. Björgvin er alveg geðveikt
góður. Ég veit að ef ég hefði
fengið þennan disk að gjöf hefði
mér ekki dottið I hug að skila
honum."