blaðið - 30.12.2006, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2006
blaðið
UTAN ÚR HEIMI
ÍRAN
Dómsmálaráðherra lést í bílslysi
Jamal Karimirad, dómsmálaráðherra írans, lést í
bílslysi nálægt Salafjegan suður af höfuðborginni Te-
heran á fimmtudaginn. Sonur Karimirads ók bílnum
þegar hann rakst á vörubíl, en tveir aðrir í fjölskyldu
ráðherrans slösuðust einnig í árekstrinum.
Deilt um nafn á flugvelli
Grísk stjórnvöld hafa lýst yfir mikilli óánægju með
þá ákvörðun Makedóníustjórnar að endurskíra
alþjóðaflugvöllinn í höfuðborginni Skopje í höfuðið á
Alexander mikla. Grikkirnir segja herforingjann sigur-
sæla vera órjúfanlegan hluta grískrar arfleifðar.
Wallin nýr umhverfisráðherra
Tarja Halonen, forseti Finnlands, útnefndi Stefan
Wallin, formann Sænska þjóðarflokksins, í embætti
umhverfisráðherra í gær. Wallin tekur við embættinu
um áramótin af Jan-Erik Enestam sem lét af embætti
formanns Sænska þjóðarflokksins í júní síðastliðnum.
Sómalía:
Óvissa í
höfuðborginni
Bráðabirgðastjórn Sómalíu
reynir nú að tryggja öryggi í höf-
uðborginni Mogadishu eftir að
hafa hrakið íslamista á brott með
fúlltingi Eþíópíuhers. Ali Moham-
ad Ghedi, forsætisráðherra Sóm-
alíu, segir að til greina komi að
setja herlög í landinu í dag. Talið
er að hin veikburða bráðabirgða-
stjórn landsins myndi eiga í mikl-
um vandræðum og að stríðsherr-
arnir sem réðu yfir borginni fyrir
komu íslamistanna muni reyna
að ná völdum á nýjan leik, ákveði
Eþíópíuher að fara úr landinu.
Finnland:
Kona stal
leigubíl
Kona var handtekin skömmu
eftir að hún stal leigubíl. Hún
missti af lestartengingu sinni
til Helsinki í finnska bænum
Varkaus á miðvikudaginn.
Konan segist hafa vonast til að
ná lestinni á næstu stoppistöð.
Hún mun verða ákærð fyrir
bílstuld, ölvunarakstur, hraðakst-
ur og akstur án ökuréttinda.
Laun þingmanna og dómara hækka:
Græða á kjarabótum
■ Óeölilegar forsendur ■ Eilíft vandamál
Æðstu embættismenn á
vegum ríkisins græddu á
kjarabótum láglaunafólks
Laun þingmanna hækkuöu
um 9,4 prósent á árinu
Eftir Höskuld Kára Schram
hoskuldur@bladid.net
Hátt launaðir starfsmenn hjá hinu
opinbera eiga ekki að njóta góðs af
sértækum aðgerðum sem hugsaðar
voru fyrir hina lægst launuðu að
mati Ögmundar Jónassonar alþingis-
manns. Hann tekur undir gagnrýni
Alþýðusambands íslands um að það
hafi verið óeðlilegt af kjararáði að
miða launahækkanir við eingreiðslur
sem ætlaðar voru til kjarabóta fyrir
láglaunafólk. Ákvarðanir um laun
þingmanna eru eilíft vandamál að
sögn Péturs Blöndals þingmanns.
Hann segir þó einkennilegt að starfs-
menn Alþýðusambandsins telji sig
þess umkomna að ákveða laun
þingmanna.
„Markmiðið á að vera
að draga úr kjaramis-
rétti í samfélaginu
en ekki auka það,“
segir Ögmundur
Jónasson, þing-
maðurVinstri
g r æ n n a .
„Hátt laun-
aðir opin-
berir starfs-
menn eiga
ekki að
mínu mati
aðnjótagóðs
af sértækum
aðgerðum
sem hugsaðar
voru fyrir hina
lægst launuðu."
Kjararáð sam-
þykkti í síðustu viku
að hækka laun þing-
manna, dómara og æðstu
embætismanna um 3,6 prósent
frá 1. október. Áður hafði kjararáð
samþykkt tvær hækkanir á þessu
ári. Þá fyrri í janúar upp á 2,5
prósent og þá seinni í júlimán-
uði upp á 3 prósent. Alls hafa
laun þessara starfsmanna
því hækkað um 9,4 pró-
sent á árinu.
Byggðist ákvörðun
kjararáðs meðal ann-
ars á hækkun launa-
visitölu sem og þeim
eingreiðslum fyrir lág-
launafólk sem samið
var um síðasta sumar.
Alþýðusamband ís-
lands hefur gagnrýnt
þessar forsendur og
telur það áhyggjuefni
að kjararáð taki tillit til
slíkra sértækra aðgerða.
Ögmundur segir lítið verða
úr launahækkunum láglauna-
fólks ef þær færast yfir á alla aðra
launaflokka. „Við megum aldrei
missa sjónar á því að stór hluti íslend-
inga er á alltof lágum launakjörum.
Markmið okkar og viðfangsefni er að
bæta þau. Á meðan slíkar lagfæringar
fara fram þá verða aðrir einfaldlega
að bíða.“
Pétur Blöndal.þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins, tekur undir gagnrýni Al-
þýðusambandsins og segir slæmt að
miðað sé við hækkun lægstu launa.
Það er mjög slæmt að vísa til þeirra
hækkana sem urðu í sumar út af
lægstulaununum. Égtaldiþáhækkun
vera mjög jákvæða enda launaskriðið
í þjóðfélaginu einna minnst í lægsta
launaflokknum.“
Pétur segir þó ákvarðanir um laun
þingmanna vera eilíft vandamál og
að eðlilegast sé að Alþingi ákveði laun
sjálft. „Ég hef alltaf talið það skynsam-
legast að fráfarandi þing ákveði laun
næsta þings með góðum fyrirvara.
Hins vegar finnst mér mjög ankanna-
legt að starfsmenn Alþýðusambands-
ins, sem hugsanlega eru á töluvert
hærri launum en þingmenn, telji sig
þess umkomna að ákveða þau laun.“
INDUSTRIAL EQUIPMENT
Höfum opnað nýjan og
glæsilegan sýningarsal
Bestu óskir um gleðilega hátíð
Y kraftvéiar
Dalvegi 6-8 • 200 Kópavogur • Sími 535 3500 • www.kraftvelar.is
Varnarviðræður við Norðmenn:
Skaða ekki
Valgerður Sverrisdóttir
utanríkisráðherra Segir
ekki inni í myndinni að
norskir hermenn komi sér
fyrir á Islandi
„Við erum ekki að fórna meiri
hagsmunum fyrir minni í við-
ræðum okkar við Norðmenn,“
segir Valgerður Sverrisdóttir
utanríkisráðherra.
Viðræðum Islendinga og Norð-
manna um mögulegt samstarf í
varnarmálum lauk skömmu fyrir
jól en ráðgert er að þeim verði fram
haldiðíjanúar.
Á opinberum vettvangi hafa fleiri
varað við mögulegu samstarfi við
Noreg en mært það og meðal annars
bent á hagsmunaárekstra er varða
hafsvæðið í kringum Island.
Valgerður segir það ekki vera inni
í myndinni að Norðmenn komi hér
upp vopnuðu herliði en bendir á
að þjóðirnar hafi nú þegar með sér
margvíslegt samstarf meðal annars
í gegnum Nato.
„Við erum að tala um að byggja á
þessu samstarfi. Við erum ekki að
tala um að þeir komi hingað með
varnarlið eða einhvern útbúnað
til að vera staðsettir hér á landi til
framtíðar. Við erum að reyna að
átta okkur á þvi hvort ekki sé hægt
að raða hlutunum upp með skyn-
samlegri hætti en gert hefur verið
þannig að það sé öllum í hag. Út-
gangspunkturinn er að þarna eru
grannþjóðir að skoða sameiginlega
hagsmuni."
Innflutningur:
Mikill vöru-
skiptahalli
Vöruskiptahalli á fyrstu ellefu
mánuðum þessa árs nam rúm-
um 122 milljörðum króna sem
er um 30 milljörðum meira en á
sama tíma í fyrra. Þetta kemur
fram í samantekt Hagstofunnar
á vöruskiptajöfnuði við útlönd.
Alls voru fluttar út vörur
fyrir 213 milljarða frá byrjun
janúar til loka nóvember en
á sama tíma nam innflutning-
ur rúmum 335 milljörðum. í
verðmætum talið var mest flutt
út af sjávarafurðum fyrir um
115 milljarða og iðnaðarvör-
um fyrir tæpa 83 milljarða.
Innflutningur á hrávörum og
rekstrarvörum nam tæpum 89
milljörðum og þá voru fluttar
inn fjárfestingarvörur fyrir um
88 milljarða. Heildarinnflutnings-
verðmæti á mat- og drykkjarvör-
um nam tæpum 21 milljarði.