blaðið - 30.12.2006, Side 12
12
LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2006
blaðið
UTAN ÚR HEIMI
AUSTURRÍKI
Þrír létust í lestarslysi
Þrír létust þegar farþegalest ók á tvo lögreglu
menn og starfsmann útfararstofu við bæinn
Lochau í Austurríki í gær. Mennirnir voru að
fjarlægja lik manns af teinunum sem hafði
framið þar sjálfsvíg fyrr um daginn.
Hrynur úr Eyrarsundsbrúnni
Rekstrarfélag Eyrarsundsbrúarinnar hefur varað alla sjófar-
endur sem ferðast undir brúna við hruni steypubita úr brúnni
og hvetur þá til að halda sig fjarri skilgreindum hættusvæðum.
Unnið er að því að fara yfir og lagfæra fimm kílómetra kafla á
sextán kílómetra langri brúnni sem.tengir Svíþjóð og Danmörku.
Vinátta réð náðun
Gerald Ford Bandaríkjaforseti sagði í viðtali við blaðamann
Washington Post sumarið 2004 að náin vinátta sín og
Richards Nixons hafi ráðið miklu um að hann hafi ákveðið
að náða Nixon vegna Watergatehneykslisins árið 1974. Við-
talið við Ford mátti ekki birtast fyrr en að honum látnum.
SMÁAUGLÝSINCAR
5103733
Tollgæslan og lögreglan:
Klekktu á dópbarónum
■ Stórtækari í smygltilraunum ■ Fórna peöum ■ Neyslan sýnilegri
akureyri
www.nowfoods.com
{/fetfifeat ftt/fi tu<
<fiö/t/tiun
uúJrv/tty>ff// ú
tÚH/tll.
f/ótJ /tei/'itt —
’ú//i /efi't
■ ■
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
Grímur kokkur ehf | Eiöi 14 | 900 Vestmannaeyjum | sími 481 2665 | www.grimurkokkur.is
Nauðsynlegt að hækka lág-
marksaðflugshæð um 400 fet
Deilur flugumferdarstjóra við flug-
málayfirvöld trufla flug til Akureyrar.
Truflanir á flugi
til Akureyrar
„Þetta gæti valdið einhverjum
truflunum en við munum reyna að
koma þessu i fyrra horf eins fljótt
og kostur er,“ segir Þorgeir Pálsson,
flugmálastjóri og verðandi forstjóri
Flugstoða ohf.
Hækka þarf lágmarksaðflugshæð
að Akureyrarflugvelli tímabundið
um 400 fet um áramótin vegna
manneklu hjá Flugmálastjórn.
Breytingin getur valdið verulegum
truflunum á flugleiðinni þar sem
flugvélar fá ekki lengur lendingar-
leyfi nema þær séu komnar í sjón-
flug í t.200 fetum í stað 8oo feta.
Um 6o flugumferðarstjórar hafa
ekki viljað skrifa undir ráðningar-
samning hjá Flugstoðum ohf. og þvi
hafa flugmálayfirvöld neyðst til að
draga verulega úr þjónustu á öllum
flugleiðum.
f viðbragðsáætlun Flugmála-
stjórnar er einnig gert ráð fyrir trufl-
unum á millilandaflugi en haft var
eftir Lofti Jóhannssyni, formanni
r\
k i
Gæti valdið
elnhveijum
truflunum
Þorgeir Pálsson,
tlugmálastjóri
Félags íslenskra flugumferðarstjóra,
í Blaðinu á miðvikudaginn að áætl-
unin stefndi flugöryggi í voða.
Þorgeir vísar því á bug og segir áætl-
unina hafa fengið samþykki Aljóða-
flugmálastofnunarinnar. „Stofnunin
myndi aldrei samþykkja svona nema
flugöryggi væri að fullu tryggt."
Þá segist Þorgeir búast við því
að lækka megi aðflugshæð að
Akureyrarflugvelli að nýju eftir
nokkrar vikur. „Við erum að vinna
að miklum endurbótum á aðflugs-
málum á Akureyri sem skýrist eftir
nokkra mánuði. Þessi breyting nú
ætti hins vegar að ganga til baka
eftir nokkrar vikur."
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
Lögregla og tollgæsla hafa á þessu
ári lagt hald á 12,8 kíló af kókaíni og
46,4 kíló af amfetamíni, samkvæmt
bráðabirgðatölum frá ríkislögreglu-
stjóra. Er þetta jafnmikið magn og
náðist samanlagt á árunum 2000 til
2005.
Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkni-
efnadeildar lögreglunnar í Reykja-
vík, segir erfitt að draga miklar
ályktanir af þróuninni á fíkniefna-
markaðinum út frá ofangreindum
tölum. „Þetta er náttúrlega allt neð-
anjarðarstarfsemi og þess vegna
ekki hægt að segja til um þessa hluti
með nokkurri vissu. Við sjáum hins
vegar að menn eru að flytja inn
meira magn í einu en oft áður.“
Jóhann R. Benediktsson,
sýslumaður á Keflavíkurflug-.
velli, segir það áhyggjuefni
hversu stórtækari menn
séu orðnir í smygltil-
raunum. Aðspurður
hvers vegna fíkni-
efnasalar séu farnir
að flytja inn meira
magn í einu en
áður segir hann:
„Menn virðast vera með peð sem
þeir eru tilbúnir að fórna í þessari
baráttu. Þetta sýnir líka að harkan
er að aukast. Aukið magn sýnir að
hagsmunirnir eru meiri og fjárhæð-
irnar hærri.“
Smyglaðferðirnar breytast stöð-
ugt, að því er Jóhann greinir frá.
„Þetta er bara eins og leikkerfi í
kappleikjum. Það er stöðugt verið
að breyta um taktík til að koma
andstæðingnum á óvart. Við
höfum þurft að glíma við það á
hverju einasta ári. Á árunum 2001
til 2003 voru erlendu burðardýrin
vinsæl. Eftir það fóru
* 9
íM
. m
■
Eins og
ieikkerfi í
kappleikjum
Jóhann R. Benedikts-
son, sýslumaður á
Keflavíkurflugvelli
menn að smygla fíkniefnum inn-
vortis. Núna hafa menn reynt að
smygla fíkniefnum í vökvaformi
og nú allra síðast hafa menn falið
mikið magn fíkniefna í bifreiðum.
Hraðsendingar hafa einnig aukist.
Svona mun þetta halda
áfram,“ greinir Jóhann
frá. Hann leggur
áherslu á að menn
stöðugt að
vöku sinni
við eftirlit því um
leið og ein smygl-
tilraun hafi verið
stöðvuð verði ein-
hver önnur að-
ferð notuð næst.
Jóhann tekur
það fram að í
ljósiþess magns
sem hald hefur
verið lagt á á
þessu ári hafi náðst hátt
Neysla á skemmti-
" ■ v - ■yhén stöðum
HBL Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi
hlutfall af þvi sem smyglað var inn.
„I ljósi stærðar markaðarins hér
og magnsins sem við höfum tekið
hljótum við að hafa valdið miklum
usla í liði dópbaróna á þessu ári.“
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir
á Vogi, segir neyslu á kókaíni og
amfetamíni sífellt vera að aukast,
sérstaklega meðal fólks á aldrinum
20 til 35 ára. „Það er óskapleg eftir-
spurn eftir kókaíni og verðið á því
er hátt. Neyslan virðist einnig fara
í auknum mæli fram á skemmtistöð-
unum í Reykjavík."
Jóhann tekur undir það að menn
virðist leyna fíkniefnaneyslu sinni
minna en áður. „Neyslan virðist að
sumu leyti orðin sýnilegri og það út
af fyrir sig er orðið áhyggjuefni. En
okkar net er að þéttast hér innan-
lands og í sama mæli mun lögreglan
reyna að herða baráttuna gegn sýni-
legri neyslu á veitingastöðum og
annars staðar."
blaðiö
Mannekla hjá Flugmálastjórn:
-