blaðið - 30.12.2006, Síða 14
blaði
Útgáfufélag:
Stjórnarformaður:
Ritstjóri:
Fréttastjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Ár og dagurehf.
SigurðurG.Guðjónsson
Trausti Hafliðason
Brynjólfur Þór Guðmundsson og
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Elín Albertsdóttir
Nú árið er liðið
Nú er árið 2006 að líða undir lok og kemur aldrei aftur. Um áramót er
til siðs að rifja upp, staldra við og velta vöngum. Hvað var gott og hvað var
slæmt? Yfirleitt eru slíkir hlutir persónulegir og breytilegir frá manni til
manns, góðir eða slæmir. Þegar litið er til baka eru það þó stóru atburð-
irnir sem sitja eftir í minningunni. Atburðir sem sagnfræðingar framtíð-
arinnar munu velta vöngum yfir. Verður ársins, sem er að kveðja, minnst
í framtíðinni sem ársins þegar við sökktum landinu? Það er ekki ósenni-
legt að svo verði, enda er sú stund ofarlega í huga þegar Hálslón við Kára-
hnjúka fylltist af vatni. Það var dramatísk sjónvarpsstund, ekki ósvipuð
þeirri þegar stóratburðir gerast úti í heimi og sjónvarpsmyndavélar gera
mann að þátttakanda í atburðarás.
Bandaríski herinn kvaddi landið á þessu ári sem eru stórtíðindi í árs-
uppgjöri. Margir gagnrýndu harkalega hvernig að þeim málum var staðið
og enn hefur ekki verið upplýst hvernig svæði varnarliðsins nýtist í fram-
tíðinni. Þótt Bandaríkjamenn hverfi af vettvangi hafa aldrei fleiri útlend-
ingar verið búsettir hér á landi. Á málefnum þeirra er brýnt að taka á nýju
ári. Heimurinn hefur opnast og fsland er hluti af þeirri innflytjendaþróun
sem á sér stað um allan heim. Það má ekki líta neikvæðum augum á þessa
þróun, miklu frekar þarf að læra af mistökum annarra og fyrirbyggja að
upp komi vandamál á milli ólíkra menningarheima. Öll mál eru til þess
fallin að takast á við þau og leysa úr þeim á farsælan hátt.
Hvernig verður árið eða síðastliðin fjögur ár gerð upp hjá ríkisstjórn-
inni? Mun hún sitja uppi með þann stimpil að hafa verið klúðrari nýrrar
aldar? Ekki er ósennilegt að margir muni gera upp kjörtímabilið um þessi
áramót, enda kosningar í vor. Kjósendur ákveða þá hverjir eru best til þess
fallnir að takast á við óleyst mál á næstu árum þannig að sátt ríki.
Nú styttist í það að árið 2007 renni upp. Þetta gæti orðið gott ár en varla
þó síður viðburðaríkt en árið 2006. Það er löngu ljóst að lífgæðakapp-
hlaupið er mörgu öðru yfirsterkara hér á landi, enda hafa stjórnvöld kynt
undir mikilli þenslu á undanförnum árum. Sumir hafa auðgast verulega á
þenslunni en aðrir hafa aukið skuldir sínar mikið. Þeir sem hafa upplifað
þenslutímabil og önnur þar sem niðursveifla hefur náð taki á þjóðinni
óttast að hún endurtaki sig fyrr en seinna. Það má ekki koma harkaleg nið-
ursveifla nú því hún gæti orðið mörgum dýrkeypt. Með alþjóðavæðingu
er kannski minni hætta á slíkum sveiflum en þest væri að hér gæti ríkt
stöðugleiki. Þjóðin hlýtur að kjósa um stöðugleika í vor og ekki síður góða
fjölskyldustefnu; í börnunum bíður framtíðin.
Það er öllum hollt að líta til baka um áramót og velta fyrir sér hvað hægt
sé að gera betur á nýju ári. Það er ekki erfitt áramótaheit að efna.
Blaðið óskar öllum lesendum sínum gleðilegs árs og vonar að nýtt ár
boði betri tíma.
Elín Albertsdóttir
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Aöalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins
Hugmyndasamkeppni
±00 ára vélbátaútgerð
frá Sandgerði
4. febrúat ?007 ve.'öa 3CO ar íiöíri fra uví aö mb Gamntur nr 107 lagöist
við akkeri a Sandgeróisvík og nóf fiskveiöar fríi Sancgerói. Afcrmaó c*r aó
minnast pessara limamota útgeröasögu Sandgeröis 'i arlnu 2007 meo
uDosetnlngu minnisnierkls/iistaverHS sem sett veröi úpp S Halnarsvæömu
á svæöi vestan viö ijósavitann.
SandgeröiSDaer eln r t,i op,nnar samkeppni um hugmyndir ao mmms*
merki uin 100 Sra atinæli vélöótaútgeröar í Sartdgerö,.
Þcma vc/Uslns skal vcra tcn/;t válum, bátum. skipum, storfum sjómanna
og hatinu í slnum fjolbrcytllclka.
ve-rkiö veröi í pdvidd og hafi mpguieika a ao snúast eftir vindum. pannig
aö veikiö sé Síbreytilegt eihs og Skip í> sjó.
Gert er rað fyrir að verkió vc-rö ca 2 m S næö. efnisvai verði f samráði
viö nonnuö og dónmetno. l.ogö er anersia a aö um nreyfamegt prividdar-
verk veröi aö ræöa.
Tlllogum skal skitaú undir tfulnefni, en rútt hofundamafn fylgi i lokuúu
umslagl.
Tillógum má skila á pappir i stæróinni A4. Einnig má skilo inn þriviöum
htutum, en þá séu þeir ckki staerri um sig en 25 x 25 x 25 cm nó rum-
máli.
Tillöeum skal skilaö fyrir 25. janúar 2007. merktar:
Sandgeröisbaer
ÍOO ára afmæli vélbátaútgeröar í Sandgeröi
Voröunm - Miönestcrgi
245 Sar.dgerði
Pronn verölaun fyrir bestu hugmyndlrnar.
x. verðlaun kr. 150.000,-
2. verðiaún kr. 7S.C00.
3. veröíaun kr. 37.500,-
D-ðmnefnd áskilur sér rétt é aö mæía ekki með veröíaúnaveitingu ef ínn-
sendar -iliógur teijast að henr.ar mati ekk: stanaast gæöi eöa uopfytla
væntmgar aðsiandendo keppmnnar.
Aiiar mnsendlngar vetða meðhöriioláðar samkvæmt ísienskum nðfunðarétt-
arlogum og samið veröur sérstakiega um alnotarétl pelrra hugmynoa sem
veljast tll áfranil alda-idi viririsiu.
14
LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2006
bla6iö
SWí W ÉG SKVlp/ lit?i n
1?i$K SF/VT Ví4>VoTíuN. ÍF ÚQ Ky5í FKKr
Krí StJ /tWJóhaTÍWJJYWt
Fjör og fjörbrot
Það eru miklir umbrotatimar í
fjölmiðlum um þessar mundir, rit-
stjórar koma og fara, bæði Frétta-
blaðið og Morgunblaðið standa í
innri endurbótum, Viðskiptablaðið
er að breytast í dagblað og særa á
upp DV sem dagblað á nýjan leik,
verið er að undirbúa nýtt fréttatengt
vikurit og á tímaritamarkaðnum er
meira rót en nokkru sinni. Og árið
er ekki búið enn! Lesendur klóra sér
hins vegar i hausnum og velta því
fyrir sér hvernig þeir eigi að komast
yfir að lesa þetta allt saman.
Borðleggjandi má telja að fram-
undan er hörð barátta um lesendur
og auglýsendur, það er mikið undir
og það verður miklu til tjaldað.
Spurningin er þá helst sú hverjir
hafi mest erindi og þolinmæði, en
eins og fjölmiðlaátök undanfarinna
ára hafa glögglega leitt í ljós geta
jafnvel dýpstu vasar skjótt reynst of
grunnir þegar kemur að rekstri óarð-
bærra fjölmiðla.
Vörn í sókn
En það er athyglisvert að þessi
mikla sókn prentmiðla á sér stað ein-
mitt á sama tima og margir telja að
þeir standi á krossgötum gagnvart
ljósvakamiðlum og netinu. Erlendis
hefur þróunin mjög verið á eina
leið og dagblaðalesendum hefur
almennt fækkað ört undanfarna
áratugi og aldrei hraðar en nú. Þess-
arar sömu þróunar hefur gætt hér
á landi, en sé rýnt í tölur kemur í
ljós að seldum blöðum var farið að
fækka verulega um 2-3 árum áður
en Fréttablaðið, brautryðjandinn á
fríblaðamarkaðnum, hóf göngu sína
árið 2001. Á hinn bóginn bendir ým-
islegt til að fríblöðin kunni að hafa
Klippt & skorið
stöðvað þróunina og jafnvel snúið
henni við með því að venja nýjar
kynslóðir við blaðalestur, sem ella
hefðu sennilega farið á mis við hann
í meiri mæli.
En eftir stendur spurningin hvort
300.000 manna þjóð hafi áhuga og
tíma til þess að grúska í fimm dag-
blöðum, sem öll hafa ríkulegan
metnað. Auðvitað munu flestir velja
sér 1-2 dagblöð við hæfi til reglulegs
Andrés Magnússon
lestrar, en þau þurfa þá að likindum
að marka sér einhverja sérstöðu til
þess að ná hylli lesenda. Á það mun
reyna á næstu mánuðum.
Um leið má láta i ljós vonir um að
hin aukna samkeppni verði til þess
að bæta blöðin. Öll mega þau við
því að bæta uppbyggingu sina, svo
lesandinn rati betur um þau, vanda
betur prófarkalestur og allt þetta
venjulega, sem menn hafa fundið að
dagblöðum frá öndverðu.
Meira stuð!
Eitt er það þó öðru fremur, sem ég
held að íslenskir blaðamenn ættu að
velta fyrir sér, en það er gera blöð sín
fjörlegri og nánari lesendum.
Ég las það á bloggi Sigríðar
Daggar Auðunsdóttur, sem hyggst
stofna vikurit á næstu mánuðum,
að fréttablöð ættu enga vini að eiga,
en sú setning er höfð eftir Joseph Pu-
litzer. Ég er ekki sammála þessu. Ég
held að blöðum veiti ekki af vinum,
a.m.k. í hópi lesenda. Pulitzer fyrr-
nefndur hefur verið nefndur „faðir
nútímablaðamennsku", en hann átti
hugmyndina að blaðamannaskólum
undir lokin á 19. öld. Hún skaut þó
ekki rótum fyrr en á sjöunda áratug
síðustu aldar og þá fyrst og fremst
vestanhafs, rétt áður en dagblöðum
þar tók að hnigna. Þvi hefur meira
að segja verið haldið fram af sumum
að það sé engin tilviljun.
Kenning Pulitzers um blaða-
mennsku gekk ekki síst út á skyldur
blaðamanna við þjóðfélagið sem
fjórða valdsins og hann lagði ofur-
kapp á hlutlausa og faglega frásögn
til þess að uppfylla þær. En gallinn
er kannski sá að blaðafréttir hafa
fyrir vikið orðið æ þurrlegri, skýrslu-
legri og beinlínis leiðinlegri. Það er
ekkert sem segir að fréttir geti ekki
verið fjörlegar, vel stílaðar og fullar
frásagnargleði án þess að verða í
nokkru ónákvæmari eða óskýrari.
Má ekki vona að eitthvert blaðanna
reyni það ráð?
Það er komið að leiðarlokum hjá
höfundi hér á síðum Blaðsins, en
eftir áramót flyt ég mig um set á Við-
skiptablaðið. Eg vil nota tækifærið
til þess að þakka lesendum og sam-
starfsmönnum fyrir samfylgdina
undanfarna 20 mánuði; ég óska Blað-
inu góðs gengis og landsmönnum
gleðilegs árs. Og dags.
Höfundur er blaðamaður
r
Aramótablað Við-
skiptablaðsins gerir Sg*
upp árið, sem er að '
Ifða, með stæl, en þar má d
m.a. finna sarnfelldan frétta-
annál - með nokkra áherslu I
á atburði í viðskiptallfinu
vitaskuld - fleygustu ummæli ársins, nokkrar
grínaktugar útnefningar um helstu afrek ársins
og síðast en ekki sfst veitir hinn skarpskyggni
fjölmiðlarýnir blaðsins, Ólafur Teitur Guðna-
son, „fjölmiðlaverðlaunin 2006", en það eru
raunar skammarverðlaun vegna 41 amþögu,
uppákomu, ranghermis, rugls eða skandals í
fjölmiðlaheiminum. Það er gaman að segja frá
því að Blaðið sleppur alveg, en kannski dreif-
ingin hafi bara klikkað þegar verst stóð á, því
auðvitað hefur eitt og annað mátt betur fara
á þessum síðum, eins og þegar töivupóstar
Jónínu Benediktsdóttur voru af illskiljanlegum
ástæðum sagðir komnir til Brussels.
Sem kunnugt er hefur útgáfurétturinn
á OV hefur verið seldur til Dagblaðs-
ins-Vísis útgáfufélags
ehf., sem á að blása nýju lífi í
það og fjölga útgáfudögum á
næsta ári, en (Fréttablaðinu
í gær kom fram að Sigurjón
Magnús Egilsson, sem til
skamms tima var ritstjóri Blaðsins, hefði verið
ráðinn ritstjóri þess. Athygli vekur að hann og
Janus Sigurjónsson, sonur hans, eru meðal eig-
enda, því Sigurjón hefur til þessa ekki legið á
þeirri skoðun sinni, að illa fari á að eignarhald á
fjölmiðlum og ritstjórn þeirra sé á sömu hendi.
Stóra spurningin varðandi hið nýja rit-
stjórastarf Sigurjóns er vitaskuld hvort
stjórn Árs og dags, út-
gáfufélags Blaðsins, láti verða
af lögbannskröfu á hendur
Sigurjóni líkt og fram kom í
bréfi frá henni á dögunum.
Sigurður G. Guðjónsson,
stjórnarformaður Ars og dags,
telur augljóst að Sigurjón megi ekki vinna nokk-
urt starf á fjölmiðlum, hvorki launað né í sjálf-
boðavinnu, meðan á uppsagnarfresti hans hjá
Blaðinu stendur, en hann rennur ekki út fyrr en
í lok júlí á næsta ári. Hæstiréttur kvað nýverið
upp dóma, sem benda til þess að lögbannið
verði auðfengið.
andres.magnusson@bladid.net