blaðið - 30.12.2006, Page 22
lGUR 30. DESEMBER 2006
Sendum nýárskort
Borgarskjalasafn Reykjavíkur býður nú öllum að senda vinum og
ættingjum nýárskveðjur, sér að kostnaðarlausu. Nýárskortin eru
gömul falleg kort úr stóru póstkortasafni Borgarskjalasafns. Kort
in er að finna á vef Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is.
I þætti Viðars Eggertssonar á Rás 1 í dag er fjallað um gerð kvikmyndarinnar Ágirndar frá árinu
1952 og kvikmyndagerðarmennina Óskar Gíslason og Svölu Hannesdóttur. Svala var ung leikkona
og handritshöfundur og Óskar var þá einn þekktasti kvikmyndagerðarmaður þjóðarinnar. Þátturinn
hverfist um kvikmyndina og þá dramatísku viðburði sem urðu í lífi þessara tveggja listamanna
þegar þau unnu að myndinni. Þátturinn hefst klukkan 14:40.
Menningarheit
Það er til siðs ao strengja heit
um áramót, verða betri maður og
koma í verk öllum mögulegum
og ómögulegum hlutum. Það
er ekki úr vegi að gera betur í
sínu eigin menningarlífi og vera
vakandi fyrir öllum þeim skemmti-
legu viðburðum sem á dagskrá
eru á næsta ári.
Leikhús
ÓFAGRA VERÖLD eftir Anthony
Neilson sem sýnt er í Borgar-
ieikhúsinu var frumsýnt í gær.
Verkið er nútímaævintýri um
Lísu í Sundralandi og leyfir
áhorfandanum að gægjast inn í
undraheim geðveikinnar. Lísa fer
í ferðalag um Sundraland til að
endurheimta horfna klukkustund
úr sínu lífi og í ferð sinni kemst
hún í kynni við ýmsar undra-
verðar persónur sem þar búa.
íslenskt í bíó
Köld slóð er ekta íslensk
spennumynd þar sem náttúran
og voveiflegir atburðir eru í að-
alhlutverki. Alltaf gaman að sjá
íslenska mynd í bíó og gaman að
loksins er farið að gera íslenskar
spennumyndir sem taka sig ekki
of hátíðlega.
Senn verður tekin til sýninga
myndin Foreldrar eftir Ragnar
Bragason. Fyrri myndin Börn er
af mörgum talin ein besta mynd
ársins 2006 og það er aldrei
að vita nema Foreldrar verði sú
besta 2007.
Myndlist á nýju ári
Það ættu allir að gera það að
nýársheiti sínu á menningarsvið-
inu að fara á myndlistarsýningar
og njóta alls þess sem söfn og
gallerí hafa fram að færa. Það
eru til að mynda spennandi sýn-
ingar fyrirhugaðar á Listasafni
Reykjavíkur á nýju ári. Þær nýj-
ungar verða teknar upp á árinu
að nú verður ókeypis aðgangur
á safnið alla fimmtudaga. Einnig
er hægt að slá þrjár flugur (eða
söfn) í einu höggi þar sem að-
göngumiðinn gildir nú á öll söfnin
þrjú, Hafnarhúsið, Kjarvalsstaði
og Ásmundarsafn.
Ljóð fyrir alla
Ljóð eru alls ekki leiðinleg, litlaus
og Ijót og það er feikinóg fram-
boð af prýðilegum íslenskum
Ijóðum sem
sóma sér vel
á hreinum
náttborðum á
nýju ári. Kristín
Eiríksdóttir gaf
á síðasta ári
út Ijóðabókina
Húðlit auðnin
hjá Nýhil og
hefur hún
fengið prýði-
lega dóma
gagnrýnenda. Ekki er heldur úr
vegi að kynna sér það sem er
nýjasta nýtt erlendis. Þá er upp-
lagt að glugga í nýlega bók eftir
þann mikla
listamann
Leonard po-
hen, sem
ber titilinn
The Book
of Longing.
Þar sannar
hann enn
og aftur að
honum er
ýmíslegt til
lista lagt.
Spennandi ár framundan
„Ég er mjög ánægður með árið
sem er að líða hér á Listasafni
Reykjavíkur. Sérstaklega finnst
mér standa upp úr sýningin Pakk-
hús postulanna sem stóð yfir í Hafn-
arhúsi í september og október. Það
var mikill kraftur í henni og hún
lagði línurnar fyrir það sem við ætl-
um að gera í Hafnarhúsi á næstu
misserum. Það var líka mjög gam-
an að geta kynnt Þórdísi Aðalsteins-
dóttur hér á landi en henni hefur
gengið mjög vel erlendis, enda er
hún frábær listakona,“ segir Haf-
þór Yngvarsson, forstöðumaður
Listasafns Reykjavíkur, þegar hann
er beðinn að líta yfir árið 2006.
Listunnendur ættu ekki að verða
fyrir vonbrigðum með dagskrá
ársins 2007 á Listasafni Reykja-
víkur en þar getur að líta margan
gullmolann, meðal annars þekkta
erlenda listamenn sem sett hafa
upp spennandi sýningar í Evrópu
síðustu misserin. Það er líka mikið
tilhlökkunarefni að Kjarvalsstað-
ir verða opnaðir á ný 4. febrúar
eftir gagngerar endurbætur þar
sem meðal annars veggirnir voru
klæddir með gifsplötum og kaffi-
stofan gerð upp á skemmtilegan
hátt. „Við hlökkum mikið til að
svipta hulunni af Kjarvalsstöðum
og munum opna með mjög spenn-
andi sýningu sem ber yfirskriftina
Foss. Þar er verk eftir Ólaf Elías-
son, Rúrí, Heklu Dögg Jónsdóttur
og þekktan, bandarlskan málara
sem heitir Steir. Allt eru þetta lista-
menn sem nota fossinn sem hugtak
í verkum sínum og það er mjög
gaman að gera það hér á Islandi,"
segir Hafþór.
Ungt fólk í forgrunni
í Listasafni Reykjavíkur hefur
ungum, íslenskum listamönnum
verið gert hátt undir höfði að und-
anförnu og á næsta ári mun engin
breyting verða þar á. „I Hafnarhúsi
tökum við upp þráðinn frá Pakk-
húsi postulanna með því að taka
einn sal sérstaklega undir það að
kynna unga, íslenska listamenn
sem ekki hafa sýnt í söfnunum áð-
ur. Það er ekkert aldurstakmark en
hér er um að ræða sterka listamenn
sem eru tilbúnir að koma fram
með heildstæða sýningu. Þarna er
meðal annars um að ræða Birtu
Guðjónsdóttur, Geirþrúði Hjörvar
og Sigurjón Guðjónsson."
Ein viðamesta sýning Listasafns
Reykjavíkur á næsta árier hönn-
unarsýningin Kvika sem opnuð
verður á Kjarvalsstöðum um miðj-
an mai í samstarfi við Hönnunar-
vettvang, Listahátíð í Reykjavik og
fleiri aðila. Sýningarstjóri er hönn-
uðurinn Guðrún Lilja Gunnlaugs-
dóttir og leggur hún áherslu á að
sýna það fremsta sem er að gerast
í íslenskri hönnun í dag auk þess
að draga fram i dagsljósið óvænt
nýsköpunarverkefni. Hafþór seg-
ir það sérstaka ánægju að fá Guð-
rúnu Lilju til liðs við safnið enda
hafi hún sýnt mikla hæfileika á
sínu sviði.
Listamenn fúsir að
koma til fslands
Franski listamaðurinn Pierre
Huyghe hefur vakið mikla athygli
fyrir verk sín og setti hann meðal
annars upp stóra sýningu í Tate
Modern safninu í Lundúnum fyrir
nokkru. Á vetrarhátíð mun hann
opna sýningu í Listasafni Reykja-
víkur. „Það er mikill fengur að fá
Huyghe hingað til lands. Við erum
ekki alveg komin með á hreint
hvað hann ætlar að gera en við er-
um mjög spennt. Hann ætlar að
hafa samband við mig 8. janúar
og kynna betur fyrir okkur sínar
hugmyndir," segir Hafþór. Huyg-
he kallar sýningaröðina sína Cele-
bration Park og þar hefur hann
blöndu af eldri verkum og eitthvað
spánnýtt sem hann hannar fyrir
hverja'sýningu. Hafþór segir það
furðulega lítið mál að fá svo þekkt-
an listamann hingað til lands.
„Við getum vitanlega ekki boðið
eins mikla peninga og söfn á borð
við Tate Modern en á móti kemur
að listamennirnir hafa flestir mik-
inn áhuga á íslandi og eru því oft
tilbúnir til þess að koma hingað og
sýna jafnvel þó svo að hér sé ekki
um stórar fjárhæðir að ræða.“
Nánari upplýsingar um dagskrá
ársins 2007 má finna á www.lista-
safnreykjavikur.is.
Líf og fjör í Hallgrímskirkju iJ/*r
Um þessar mundir fagnar List-
vinafélag Hallgrímskirkju 25.
starfsári sínu en það var stofnað
haustið 1982 í þeim tilgangi að efla
listalíf við kirkjuna. Síðan hefur fé-
lagið staðið fyrir ótal glæsilegum
viðburðum og engin breyting mun
verða þar á því dagskráin fyrir
næsta ár er sérlega spennandi. Sem
dæmi má nefna að orgelsnillingur-
inn Oliver Latry, organisti Notre
Dame dómkirkjunnar í París, sæk-
ir Hallgrimskirkju heim í febrúar
og orgelleikarinn Michael Radul-
escu frá Vínarborg stígur á land í
maí. Það er hefð fyrir því að haldn-
ir séu sérstakir áramótatónleikar í
kirkjunni við áramót og að þessu
sinni mun Kristinn Sigmundsson
stíga á stokk með trompettleikur-
unum Ásgeiri H. Steingrímssyni
og Eiríki Erni Pálssyni auk þess
sem Hörður Áskelsson leikur á
orgel. „Síðan orgelið var vigt höf-
um við haldið þessum sið að hafa
trompett- og orgeltónleika. Það hef-
ur bara einu sinni áður verið söngv-
ari, en Diddú söng fyrir hartnær tíu
árum. Þeim Ásgeiri og Eiríki datt í
hug að gaman væri að breyta út af
vananum og það vildi svo skemmtí-
lega til að Kristinn er staddur hér
á landi yfir áramót-
in og var til í að
taka þátt í þessu
skemmtilega verk-
efni,“ segir Inga
Rós Ingólfsdóttir,
framkvæmdastjóri
Listvinafélagsins,
og bætir við að lítil
strengjasveit muni
einnig koma fram
með þeim félögum
og því sérlega mikið lagt í tónleik-
ana að þessu sinni. Að sögn Ingu
Rósar eru um 400 félagar í Listvina-
félaginu og fer þeim sífellt fjölgandi.
''*r< „Þetta er yndislegt samfé-
lag, fólk sem trúir á þessa
^ ' menningarstarfsemi
sem okkur finnst að eigi
heima í Hallgrímskirkju.
Kirkjan hefur ákveðna sér-
stöðu og er einn fjölsótt-
asti ferðamannastaður á
Islandi. Það spyrst út hvað
er að gerast í kirkjunni og
við leggjum mikinn metn-
að í það að gera dagskrána
sem best úr garði hvert
ár,“ segir Inga Rós að lok-
um. Tónleikar Kristins
og Trompeteria hefjast
á gamlársdag klukkan 17. Nánari
upplýsingar um dagskrá Listvmafé-
lagsins má finna á www.hallgrims-
kirkja.is.