blaðið - 30.12.2006, Page 25
blaðið
LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2006 25
Nýbökuð amma
„Helst stendur upp úr á árinu að
ég var kosin formaður lýðræðis- og
jafnréttisnefndar í Hafnarfirði,”
segir Amal Tamini. „Ég hef búið
á Islandi í n ár og með þessu nýja
hlutverki finnst mér ég enn frekar
boðin velkomin í íslenskt samfélag.
Nú finnst mér ég geta haft áhrif og
látið verulega til mín taka. Annars
varð ég amma í október þegar dóttir
mín eignaðist dóttur og það er yndis-
legt að vera í ömmuhlutverkinu. Þá
flutti ég til Hafnarfjarðar úr Kópa-
voginum. Hafnfirskt samfélag er fjöl-
skyldusamfélag, hlýlegt og opið.
Auðvelt er að tala við fólk og heilsa
því úti á götu. Ástandið í Pal-
estínu er mér ofarlega í
huga. Besta frétt ársins
þótti mér að íoo
ónir verða
íslenskukennslu fyrir
innflytjendur. Tungu-
mál er lykilatriði til
þess að þeir sem flytj-
ast hingað til lands
eigi greiða aðkomu
í samfélagið. Áður
var þetta dýrt nám
og eftir venjulegan
vinnutíma. Það
reyndist fólki erfitt en
nú er fyrirkomulagið
breytt og námið fellt inn í venju-
legan vinnutíma.
Ég er líka ánægð með hvernig
Alþjóðahúsinu hefur vaxið ás-
rnegin. Alþjóðahúsið er orðið
sannkölluð miðstöð innflytj-
enda hér á landi og hér fá þeir
góða aðstoð. Þegar ég kom
hingað til lands þurfti ég að
læra af reynslunni og það
getur reynst fulltímafrekt
þegar á móti blæs. Al-
þjóðahús er mikilvægt
fyrir alla fslendinga,
gamla og nýja.”
Lenti í hringiðunni
„Ég lenti í hringiðunni á árinu,”
segir Andri Sna^r Magnason rit-
höfundur. „Það var helst í fréttum
að ég var í frétftlm á árinu. Þeir
slökktu ljósin í borginni fyrir
mig og sá dagur stendur mér fast
í minni. Kennarasambandið setti
mig svo á heilsíðuauglýsingu,
ég hélt reyndar að fleiri myndu
birtast í þeirri auglýsingaherferð
að þakka gamla kennaranum
sínum fyrir vel unnin störf. En
svo voru þetta bara ég og Vigdís
Finnbogadóttir.
Árið var undirlagt af bók minni,
Draumalandinu, og árið á undan
miklu kyrrlátara. Vikunni áður en
bókin kom út sagði ég við kon-
una mína: Nú er tíminn fyrir
Draumalandið. Þvíég vissi
að útgáfa bókarinnar
myndi verða spréngja á
íslenskt þjóðfélag.
Ég veit eiginlega ekki
hvað ég get gert á
ári til að toppa
en hið minnsta fer
gang vinnsla á nýrri
hugmyndamynd
gerðri eftir
Draumaland
inu i leikstjórn Þorfinns Guðnason.
Þar verða nýttir möguleikar mynd-
arinnar, hlutirnir teknir í víðara
samhengi og allar aðferðir verða
leyfðar.
Af fréttum sem máttu missa sín
þá hefði ég viljað skipta út öllum
viðskiptafréttum fyrir fréttir
af nýsköpun í íslensku
skólastarfi. Ég skil
ekki þetta gríðarlega
magn viðskiptafrétta
hér á landi, þetta er of
áberandi og hverjum er
ekki sama?
Persónulegustu tíð-
indin voru þau að afi
minn lést á þessu ári.”
Andri Snær Magnason,
Sonurinn sagði pabbi
Ég myndi segja að Kárahnjúka-
málið í heild sinni beri hæst þegar
litið er til innlendra frétta á árinu
2006. Mér finnst öll þessi vinnuslys
og dauðsföll í kringum framkvæmd-
irnar ógnvekjandi og ljóst er að eitt-
hvað þarf að gera til þess að tryggja
betur öryggi þeirra starfsmanna sem
vinna á svæðinu. Ég hef unnið bæði
í frystihúsi og við húsbyggingar og
þessi slysatíðni finnst mér ekki eðli-
leg. Það hlýtur að vera verðugt verk-
efni fyrir stjórnendur á næsta ári að
fækka þessum slysum. Einn miðviku-
dagsmorgunn á síðasta ári átti eftir
að valda ákveðnum straumhvörfum
í lífi mínu en þá hélt ég niður á Gauk
á Stöng til þess að fara í prufu fyrir
sjónvarpsþáttinn Rock Star. Þá
fannst mér þetta bara svolítið fyndið
uppátæki en fjórum mánuðum síðar
var þetta ekki sérlega fyndið lengur.
Ég hef blendnar tilfinningar gagn-
vart Rock Star-þáttunum og hef ekki
viljað horfa á þá. Tónlistin var auð-
vitað skemmtileg en þetta raunveru-
leikasjónvarp hugnast mér ekki. Ég er
auðvitað ánægður með að 1
hafa komist svona langt í |
keppninni en ég myndi ekki
óska versta óvini
mínum þess að
lenda í þessu öllu
saman.
Ánægjulegasta
atvik ársins hjá
mér persónulega
er tvímælalaust
það að Mar-
inó sonur
minn sagði
pabbiífyrsta
sinn og segir
fátt annað
þessa dagana.
§ Sinubrunar á Mýrum Mestu
sinuetdar Islandssögunnar kvikn-
uðu á Mýrum ÍBorgarfirði að
morgni fimmtudagsins 30. mars
g og vörðu í tvo sólarhringa.
Lítill neisti kveikir stórt bál
Það sem stendur upp úr í árslok
hjá mér er frábær árangur starfs-
fólks hér í Straumsvík í kjölfar mesta
rekstraráfalls í 40 ára sögu fyrirtæk-
isins. Við urðum fyrir því óláni að
missa kerskála 3 úr rekstri vegna
tæknilegrar bilunar en með mikilli
elju, dugnaði og útsjónarsemi fólks
hér komst hann í gang aftur á ótrú-
lega skömmum tíma. Þessi bilun
hafði náttúrlega áhrif á persónulega
hagi á árinu líka, m.a. þurfti fjöl-
skyldan að sætta sig við brey tingar á
sumarleyfi ársins vegna hennar. Um
þessar mundir ber hins vegar hæst
í fjölskyldunni að yngsta barnið á
heimilinu missti á dögunum fyrstu
tvær tennurnar, sem eru til sýnis
öllum þeim sem koma í heimsókn í
stórri krukku.
Af öðrum fréttum á árinu fannst
mér sinueldarnir á Mýrum í Borg-
arfirði í mars mjög eftirminnilegir.
Þeir voru frekar óþægileg áminning
um það hve lítill neisti getur kveikt
stórt bál, en einnig fannst mér þeir
koma á sérkennilegum tíma. Á
árinu urðu einnig sögulegar breyt-
ingar í íslenskri pólitík, með afsögn
forsætisráðherra og uppstokkun í
ráðherrahópnum. En þótt árið hafi
að ýmsu leyti verið gott þá varpar
mikill fjöldi
alvarlegra
Rannveig Rist,
umferðarslysa
nokkrum skugga
á árið. Við
þurfum klár-
lega að breyta
umferðar-
menning-
unni í land-
inu og þótt
það sé ærið
verk er ég
sannfærð
um að
það sé
hægt.
Silvía NÓtt,
Drottningfædd á íslandi
„Persónulega stendur það helst
upp úr að ég er búin að komast að
því hvað ég er ógeðslega sterk per-
sóna, persóna með stærsta plötu-
samning sem gerður hefur verið
á íslandi, persóna með „filmcrew
following my every rnoove" skil-
uru, fyrir það hvað ég er merkileg,
sem verður dreift um heiminn
endilangan. Persóna sem gerir
engan mannamun á negrum eða
fötluðum. Persóna sem berst fyrir
fjöldann, einsömul í stormi og fær
ekkert nema skít til baka. Persóna
sem er öfunduð og fyrrverandi
kærastar berjast um og brjóta frið-
helgi heimilisins þegar maður er
með nýjan kærasta og berja hinn.
Persóna sem er fallegust af öllum,
samt svo þjáð, prinsessa með kór-
ónu sem er þyrnum stráð, það eru
mín örlög.
Það var gerð könnun um hvað
var mest talað um í fjölmiðlum
árið 2006 og útkoman var Silvía
Nótt. Þannig að þú gætir nú alveg
flett þessari spurningu um hvað
standi fréttalega upp úr á árinu
upp á Netinu eða hringt í Gallup
og spurt að þessari spurningu, sko.
Það geta allir verið sammála um
að ég er gjörsamlega búin að „fokk-
ing“ eiga þetta ár. „Drottning var
fædd yfir Island og hennar nafn
var Silvia Night“, er skrifað i sögu-
bækur íslands.“