blaðið - 15.02.2007, Page 6
6 FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2007
blaAiö
INNLENT
Keyrði upp tröppur
Þrítug kona missti stjórn á jepplingi í austurborginni
síödegis á þriðjudag. Bíllinn fór upp nokkrar tröppur
og stöðvaðist á vegg við hliðina á inngangi í verslun.
Litlu mátti muna að illa færi en til mikillar lukku slas-
aðist enginn. Tjón ökumanns er hins vegar talsvert.
REYKJAVÍK
Handtekin vegna innbrota
Fjögur ungmenni voru handtekin við verslunarmiðstöð
í Vesturbæ Reykjavíkur aðfaranótt miðvikudags, sam-
kvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæð-
inu. Eru þau grunuð um tilraun til innþrots í verslunarmið-
stöðina og innþrot í fyrirtæki. Þau eru öll um 18 ára gömul.
LÖGREGLAN
Afsakanir ökumanna
Lögregian fær hinar ýmsu skýringará ofsahraða ökumanna.
Liðlega tvítugur piltur var stöðvaður á Vesturlandsvegi
á 135 kílómetra hraða á þriðjudag. Hann sagðist vera að
reynsluaka þílnum. Annar var stöðvaður og sagðist nauð-
synlega þurfa að komast í ákveðna verslun fyrir lokun.
NÝJIVÖRULISTINN ER KOMIN
Hringið og pantið vörulista í síma 568 2870
eða á heimasíðu okkar www.friendtex.is
" - ■ ■ ■ ■-' ■ ■ - ■
Getum bætt við okkur góðum sölufulltrúum á
stórhöfuðborgarsvæðinu, frábært tækifæri
fyrir þá sem vilja auka tekjur sínar
Létt fyrir
línurnar
I _
i
og eggjalaus
Frískandi kostur
VOGABÆR
Sími 424 6525 www.vogabaer.ls
Börn að leik Einungis
44 prósent ungmenna
sögðust setjast niður
með foreldrum sínum og
ræða málin.
Mynd/Frikki
^ ii Tll' _ m 1
iilfeg v
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna um aðstæður barna:
w
Islensk börn ein-
mana og utangarðs
■ íslendingar í miðjunni í menntamálum ■ Heilsufar barnanna mjög gott
Eftir Atla ísleifsson
atlii@bladid.net
„Það er sláandi hvað íslensk ung-
menni eru einmana," segir Björk
Einisdóttir, framkvæmdastjóri
Heimilis og skóla, um niðurstöður
nýrrar skýrslu Barnahjálpar Samein-
uðu þjóðanna (UNICEF) um velferð
barna í ríkustu löndum heims. Tíu
prósent íslenskra ungmenna sögðust
vera einmana og finnast þau vera
utangarðs í samfélaginu og mæld-
ist hlutfallið hér á landi hærra en
í flestum öðrum ríkjum sem rann-
sóknin náði til.
Björk segir þetta vera skilaboð
til foreldra að setjast niður með
börnum sínum og ræða við þau, ekki
einungis þegar þau eru lítil heldur
einnig fram eftir aldri. „I skýrsl-
unni segir að einungis 44 prósent
íslenskra ungmenna segjast setjast
niður með foreldrum sínum og ræða
málin. Þetta hlutfall ætti að vera
miklu hærra. Við viljum það öll og
vonandi gerum við eitthvað til þess
að bæta ástandið.“
UNICEF kynnti nýja skýrslu um
velferð barna og ungmenna í rík-
ustu löndum heims í gær. Litið var
til sex þátta við gerð skýrslunnar,
efnahagslegra gæða, heilsufars og
öryggis, vina- og fjölskyldutengsla,
menntunar, áhættuhegðunar og
tilfinninga ungmenna um eigin vel-
líðan. Niðurstöðurnar benda til þess
að ríki í norðurhluta Evrópu standi
sig best, en þau eru efst á listum í um
helmingi þáttanna.
Velferð barna mældist mest í Hol-
landi, Svíþjóð, Danmörku og Finn-
landi. Tölulegar upplýsingar frá
íslandi vantaði hins vegar í fjölda
tilfella. Björk segist fagna gerð skýrsl-
unnar og að verið sé að skrásetja vel-
ferð barna í OECD-löndunum. „Hins
vegar er sláandi að tölulegar upp-
lýsingar vanti frá íslandi í mörgum
þáttum og þess vegna er okkar staða
ekki sambærileg í öllum tilvikum.
Stjórnvöld verða að taka þetta til
skoðunar."
Heilsufar barna og ungmenna á
íslandi mældist mjög gott og skip-
aði ísland annað sæti á listanum, en
Svíþjóð toppsætið. Þar er tekið tillit
til tíðni ungbarnadauða, hlutfalls
barna sem fæðast undir meðalþyngd,
bólusetningar barna gegn helstu
Foreldrar þurfa
að setjast oftar
niður og ræða
við börnin sín
Björk Einisdóttir,
framkvæmdastjóri
Heimilis og skóla
barnasjúkdómunum og dauðsfalla
vegna slysa, sára, morða eða sjálfs-
víga. ísland er í efsta sæti yfir heilsu
ungbarna og er tíðni ungbarnadauða
á Islandi sú lægsta í heimi. Bólusetn-
ingum á íslandi virðist að vissu leyti
vera ábótavant, en þar er ísland í 12.
sæti.
íslendingar eru í miðjunni hvað
varðar menntamál barna og ung-
menna í rannsókn UNICEF. Þar var
litið tillæsis, stærðfræðigetu, vísinda-
kunnáttu, hlutfalls ungmenna í skóla
og hlutfalls þeirra sem reikna með
að fá starf sem krefst lítillar kunn-
áttu og þekkingar. Björk segir ljóst
að varðandi menntaþáttinn standi Is-
lendingar ekki nógu vel. „Þessar nið-
urstöður eru í takti við niðurstöður
annarra rannsókna sem hafa verið
gerðar og sýna meðal annars 25 pró-
senta brottfall úr framhaldsskólum.“
Skemmdarverk í Hafnarfirði:
Þrír í haldi vegna skemmda
Lögreglan metur skem-
mdirnar Mikið tjón varö
víðsvegar um Hafnarfjörð
aöfaranótt miðvikudags.
Þrír piltar á aldrinum 15 til 17 ára
voru handteknir í gær grunaðir um
fjölda skemmdarverka víðsvegar um
Hafnarfjörð aðfaranótt miðvikudags.
Einn þeirra var búinn að játa þegar
Blaðið fór í prentun í gær, samkvæmt
upplýsingum frá Lögreglustöðinni í
Hafnarfirði. Talið var að yfirheyrslur
myndu standa yfir fram á kvöld. Gíf-
urlegt tjón hlaust af þessum verknaði.
Piltarnir beygluðu og brutu rúður
í að minnsta kosti 30 bílum. Slóðin
eftir þá er um allan Hafnarfjörð en
iðnaðarhverfið gegnt álverinu, hest-
húsin við Kaldárselsveg og Vellirnir
eru meðal þeirra svæða sem þeir
heimsóttu.
Samkvæmt upplýsingum frá trygg-
ingafélögum eru það einungis ein-
staklingar sem eru með kaskótrygg-
ineu oe bílrúðutrveeineu sem eru
tryggðir fyrir skemmdarverkum ef
þeir sem frömdu verkin finnast ekki.
Einstaklinearnir sitia hins veear
alltaf uppi með sjálfsábyrgðina en
algengast er að hún sé tæplega fimm-
tíu búsund krónur.