blaðið - 15.02.2007, Side 18

blaðið - 15.02.2007, Side 18
blaöið VETUR $ SUZUKI ..er lífsstíll! SUZUKI BILAR HF. Skeifunni 17. Sími 568 5100. Sorgin í kroppi albínóans nnur Andrea Einars- dóttir er ung myndlist- arkona sem opnar sína fyrstu einkasýningu í Galleri Dvergi um næstu helgi. Um er að ræða brot úr seríu vídeóverka sem Unnur hefur verið að vinna að undanfarið og ber titilinn Melaninecholia. „Verkin fjalla öll um albínóa á einn eða annan hátt enda hafa þeir verið mér hugleiknir í nokkurn tíma. Það er mikil sorg yfir þeim og til dæmis fjallar annað verkið um andlegan og líkamlegan sárs- auka. Þetta eru mjög mæddir albín- óar sem eru þjakaðir af einmana- kennd. Samfélagið dæmir þá sem ljóta, þeir eru ljósfælnir og halda sig að mestu í skugganum. Verkið er satt að segja algjör viðbjóður og þegar ég horfði á það í fyrsta sinn fékk ég hálfgert sjokk þegar ég átt- aði mig á því hvers konar viðbjóður getur komið út úr manni,“ útskýrir Unnur Andrea. „Hitt verkið sem ég sýni í Gallerí Dvergi er annars eðlis þó bæði verk- in séu mjög tengd. Það fjallar um mann sem er að spila á brauðpíanó. Hann smyr hendurnar á sér með „ Verkið er satt að segja algjör viðbjóður og þegar ég horfði á það í fyrsta sinn fékk ég hálfgert sjokk þegar ég áttaði mig á því hvers konar viðbjóður get- ur komið út úr manni." smjöri og smyr píanóið. Útkoman er einhverskonar hljóðfærasamloka.“ Kristín Björk Kristjánsdóttir gerir tónlistina við verkin og seg- ir Unnur að þeim hafi upphaflega verið ætlað að þjóna tilgangi tónlist- armyndbanda. „Þáttur Kristínar er mjög mikilvægur í þessu öllu sam- an og tónlistin og verkin eru mjög samtvinnuð." Unnur útskrifaðist úr myndlist- ardeild Listaháskóla Islands árið 2005. Vídeóverk hennar og gjörn- ingar hafa farið víða um heim og meðal annars verið sýnd í Frakk- landi, Þýskalandi, Kanada, Ind- landi, Argentínu og Mexíkó. „Verkin mín hafa farið til um 17 landa. Þetta eru ekki sýningar sem ég hef sett upp sjálf heldur er um að ræða ýmsar hátíðir og farand- sýningar. Sá þáttur hefur því geng- ið vel.“ Unnur sýndi nýlega í Pal- estínu og segir hún það hafa verið sérkennilega reynslu. „Það er mjög erfitt að koma vestrænni menn- ingu þangað inn, og sýningarstjór- inn þurfti að fara í gegnum hindr- anir af ýmsu tagi. Sýningin var sett upp í Betlehem og var í raun ætlað að gefa Palestínumönnum innsýn í vestræna list. Það voru þó nánast engir Palestínumenn sem sáu sýninguna, aðeins útlendingar búsettir í Palestínu og opinberir starfsmenn sem vinna í menning- argeiranum." Unnur hefur í nógu að snúast þessa dagana. „Ég hef verið að gera ýmislegt fyrir utan myndlistina. Ég er til dæmis i hljómsveitinni Cocta- il Vomit sem er svona skemmtilegt hliðarverkefni. Svo er ég að vinna að sýningum sem haldnar verða í sumar.“ Sýning Andreu verður opnuð í Gallerí Dvergi, Grundarstíg 21, laug- ardaginn 17. febrúar klukkan 18. hihna@bladid.net Verk eftir Cézanne kemur í leitirnar Verk eftir franska meistarann Paul Cézanne sem ekki hefur ver- ið sýnt opinberlega í sextiu ár hef- ur verið enduruppgötvað á Ítalíu. Sýningarstjóri í Flórens fann verk- ið í einkasafni en það var málað á árabilinu 1860-1870 þegar Cézanne lagði í vana sinn að heimsækja Louvre í þeim tilgangi að taka gömlu meistara endurreisnarinnar sér til fyrirmyndar. Cézanne bjó í París frá 1861-1870. Myndir hans frá þessum tíma eru oft kenndar við dökka tímabilið og verkið sem fannst á Ítalíu er að mörgu leyti dæmigert fyrir þann tíma. Verkið er aðeins um 30 cm á hæð og er gert eftir fyrirmynd málverks eft- ir ítalska endurreisnarmálarann Paolo Veronese. Það sýnir máltíð á heimili Símons farísea. Málverkið var síðast sýnt í Flórens árið 1945 en eftir þá sýningu hvarf það spor- laust og engar eftirprentanir voru til af því. Verkið verður sýnt á ný í byrjun mars í Flórens.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.